22.02.1984
Efri deild: 54. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 3059 í B-deild Alþingistíðinda. (2663)
198. mál, Þjónustu- og endurhæfingarstöð sjónskertra
Heilbr.- og trmrh. (Matthías Bjarnason):
Virðulegi forseti. Frv. það sem hér liggur frammi er samið af nefnd sem fyrrv. heilbr.- og trmrh. setti á fót í des. 1982 og falið var að gera tillögur um framkvæmd sjónverndarmála hér á landi. Þessi nefnd hefur lokið störfum og skilað ítarlegum tillögum um úrbætur og stefnumótun í sjónverndarmálum. Auk þessa frv., sem ég mæli hér fyrir, hefur nefndin skilað eftirfarandi tillögum: drögum að frv. til l. um gleraugnafræðinga, en fullbúið frv. hefur verið lagt fram fyrir alllöngu hér í hv. Ed., drögum og reglum um úthlutun hjálpartækja fyrir blinda og sjónskerta, drögum að reglugerð um augntækna, tillögum um verðlagningu gleraugna og niðurfellingu aðflutningsgjalda og tillögum um þátttöku ríkisins í gleraugnakaupum.
Það er álit þessarar nefndar að ekki sé annað fært en að skipa fyrir um þau mál er snerta stofnun sjónstöðvar með lögum vegna þeirrar samræmingar sem þeim er ætlað að hafa í för með sér og þess kostnaðar sem af þeim muni leiða og ég mun nánar víkja að hér á eftir og ekki síst vegna þeirrar réttarbótar er þau hafa í för með sér fyrir sjónskerta. Það er allt nefndarinnar að töluvert skorti á slíkt nú í dag. Heilbr.- og trmrn. tekur undir þessi sjónarmið nefndarinnar.
Með þessu frv. er sérstaklega tekið á eftirfarandi þáttum: starfsemi sjónstöðvar, skipulagningu sjónverndar í landinu, úthlutun hjálpartækja og hlutdeild hins opinbera í augnlækningaaðfeðrum og samvinnu við aðra aðila sem sýsla með störf á þessu sviði.
Á undanförnum árum hafa verið sett margs konar lög til að koma þeim þegnum þjóðfélagsins til hjálpar sem á hjálp hafa þurft að halda. Má í því tilviki nefna almenn lög eins og lög nr. 47/1979 um aðstoð við þroskahefta, sem féllu úr gildi við gildistöku laga nr. 41 á s.l. ári um málefni fatlaðra, og enn fremur má nefna sérlög eins og lög um Heyrnar- og talmeinastöð Íslands nr. 35 frá 1980, en sú stofnun annast hvers konar þjónustu við heyrnarskerta, svo sem prófun heyrnar og úthlutun heyrnartækja. Það er ekki vafi á að með tilkomu þeirra laga hefur hlutur þeirra sem þau voru gerð fyrir orðið stærri og betri.
Sú þjónusta sem veitt hefur verið á sviði sjónverndar, þ.e. félagsleg þjónusta og endurhæfing sjónskertra, hefur svo til eingöngu verið í höndum Blindrafélagsins, en það var stofnað árið 1939. Eins og kunnugt er hefur félagið verið einn helsti brautryðjandi í málefnum blindra hér á landi og helgað starfsemi sína hagsmunamálum blindra og sjónskertra ásamt Blindravinafélagi Íslands.
Um efnisatriði þessa frv. er það helst að segja að lagt er til að sett verði á stofn stofnun á vegum ríkisins er nefnist Þjónustu- og endurhæfingarstöð sjónskertra, þ.e. sjónstöð. Engin slík stofnun hefur verið fyrir hendi hér á landi til þessa. Þeir sem njóta mundu þessarar þjónustu yrðu fyrst og fremst þeir sem ekki geta við dagleg störf notað venjuleg gleraugu sökum sjóndepru.
Eitt af markmiðum slíkrar stofnunar yrði að tryggja að ávallt séu á boðstólum sem fullkomnust hjálpartæki fyrir sjónskert og blint fólk og að tryggt verði að viðgerðarþjónusta verði sem best. Þess vegna yrði að starfa innan stofnunarinnar sérþjálfað fólk til að leiðbeina sjúklingum og þjálfa þá til að ná sem fullkomnastri nýtingu þeirra tækja sem á boðstólum eru. Kappkosta þarf að ná til sem flestra sem á þessari aðstoð þurfa að halda, t.d. með ferð út á land í tengslum við augnlækningaferðalög á vegum heilbrigðisstjórnarinnar. Á vegum heilbrigðisstjórnarinnar hefur reglubundið verið haldið uppi augnlækningaferðalögum, en þau eru farin í lækningaskyni. Þjálfunarþátturinn hefur ekki verið ræktur sem skyldi, þ.e. endurhæfingin, og hið sama má reyndar segja um greininguna. Þannig liggur ljóst fyrir að margir þeirra sem þurft hafa á slíkri þjónustu að halda í tímanna rás hafi ekki notið hennar, þar sem sjúkdómsgreiningarþátturinn hefur ekki verið ræktur sem skyldi, og hafa blindir og sjónskertir verið skörinni lægra settir en t.d. heyrnarskertir og heyrnardaufir hvað þetta snertir.
Vert er að benda á að allt forvarnarstarf á þessum vettvangi skilar sér í sparnaði annars staðar innan kerfisins, eins og mörg dæmi sanna. Þannig hefur sýnt sig að með tilkomu heyrnar- og talmeinastöðvarinnar og með reglubundnum ferðalögum á vegum þeirrar stofnunar út á land til að greina heyrnardeyfu sparast fjárhæðir í sérkennslu sem er miklu dýrari og umfangsmeiri en venjuleg kennsla. Rétt greining og rétt meðferð hefur leitt til þess að mörg börn hafa getað notið eðlilegrar kennslu.
Nú liggur ljóst fyrir að stofnun stöðvar sem þessarar kostar fjármuni. Nefnd sú sem vann að þessu máli lagði fyrir rn. áætlun um kostnað vegna þjónustu- og endurhæfingarstöðvar sjónskertra og fylgir áætlun þessu frv. Áætlunin tekur mið af verðlagi fyrir ári, en nefndin skilaði upphaflegum tillögum sínum hvað snertir þennan þátt í febrúar í fyrra. Þetta ber að hafa í huga við mat á kostnaði.
Til að byrja með er talið nægjanlegt að fá til starfa sérfræðinga í tvö stöðugildi, gleraugnafræðing í hálfu starfi, sjónþjálfa í fullu starfi og ritara í hálfu starfi. Í upphafi yrði reynt að tengja læknisfræðilega þáttinn við starfsemi augndeildar Landakotsspítala og þá lækna er þar starfa. Hvað snertir reksturskostnað er gengið út frá því í áætlun nefndar þeirrar sem vann að frv. að leigt yrði rými í húsnæði Blindrafélagsins við Hamrahlíð í Reykjavík að flatarmáli um 150 m2 og gengið út frá því að húsið sé frágengið og leiga standi yfir í 10–15 ár. Á vegum Blindrafélagsins hefur verið unnið að innréttingu þessa húsnæðis með það fyrir augum að koma þar fyrir sjónstöð og er því ekki óraunhæft að taka það með í reikninginn. Rétt er þó að benda á að Framkvæmdasjóður þroskaheftra og öryrkja samkv. lögum nr. 47 frá 1979, nú Framkvæmdasjóður fatlaðra, hefur að hluta til staðið undir framkvæmdum við húsnæði Blindrafélagsins og mun rn. leggja á það áherslu að fé úr sjóðnum verði varið til að koma upp aðstöðu fyrir sjónstöð, þannig að leigugreiðslur féllu niður.
Hvað snertir stofnbúnað er reiknað með að hann kosti sem nemi 4 millj. kr. á verðlagi fyrir ári, en rétt er að geta að töluvert er komið af stofnbúnaði í búningi gjafa. Ég vil sérstaklega vekja athygli á að gert er ráð fyrir því í frv., sbr. 5. gr. 2. mgr., að ráðh. setji að fengnum tillögum stjórnar stofnunarinnar reglur um þátttöku ríkisins í kostnaði vegna útvegunar á hvers konar sérhæfðum hjálpartækjum fyrir sjónskerta í samræmi við hliðstæðar greiðslur almannatrygginga. Hér er um að ræða yfirfærslu til einstaklinga vegna þátttöku ríkisins í kaupum á hjálpartækjum, þ.e. rétt sjúklings. Hefur þessi kostnaður verið metinn á s.l. ári 500 þús. kr., sbr. þá áætlun sem fylgir frv. Hér eru lagðar til hliðstæðar reglur og varðandi heyrnartækjaúthlutun, en upphæðir eru allar miklu lægri.
Ég vil líka geta þess að í frv. stendur að lög þessi öðlist gildi 1. jan. 1984, en vil biðja hv. nefnd sem fær frv. til umfjöllunar að hafa í huga að ég legg til að lög þessi öðlist gildi 1. jan. 1985, þannig að það komi ekki til útgjalda á þessu ári, enda um það samið og allir aðilar á það fallist.
Virðulegi forseti. Ég sé ekki ástæðu til að fara frekari orðum um frv. sem hér liggur fyrir. Hér er um sjálfsagt réttindamál að ræða að mínu mati. Hvað snertir frekari upplýsingar vísa ég til grg. með frv., sem er ítarleg, og legg til að að lokinni þessari umr. verði frv. vísað til 2. umr. og hv. heilbr.- og trn.