22.02.1984
Neðri deild: 50. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 3080 í B-deild Alþingistíðinda. (2683)

159. mál, tekjuskattur og eignarskattur

Þorsteinn Pálsson:

Herra forseti. Ég hygg að það sé rétt sem fram hefur komið í þessari umr. að þetta frv. svo og það frv., sem er á dagskrá þessa fundar um frádrátt á skattskyldum tekjum manna vegna fjárfest­ingar í atvinnurekstri og fylgir með þessu frv. sem hér er til umr., séu meðal merkustu nýmæla sem fram hafa komið á þessu þingi. Það er alveg ótvírætt að sú stefnumörkun sem í þessum frv. felst er markverð og mun alveg vafalaust leiða til farsældar fyrir íslenskt atvinnulíf. Það er líka rétt að þau viðhorf sem koma fram í þessum frv. kristalla ágreining milli borgaralegra og sósíalískra sjónarmiða við stjórn landsins.

Þau nýmæli sem hér er um að ræða lúta bæði að atvinnufyrirtækjunum sjálfum, eins og hér hefur komið fram, og eins einstaklingunum. Atvinnufyrirtæki fá nú tækifæri til að draga frá tekjum sínum ákveðið hlutfall til að leggja í fjárfestingarsjóði. Ég held að við þær kröppu aðstæður í atvinnu- og efnahagsmálum sem við búum nú við sé afar mikilvægt að stuðla að aukinni fjárfestingu, stuðla að því að fjölga atvinnutækifærum og þessi ákvæði lúta að því markmiði.

Sömuleiðis er mikilvægt að hér er gert ráð fyrir rýmkuðum fyrningarreglum. Það skiptir miklu máli fyrir íslenskt atvinnulíf að það geti tekið þátt í þeim öru tæknibreytingum sem nú eiga sér stað og endurnýjað vélar og tækni í því skyni að auka framleiðni.

Að því er varðar einstaklingana eru hér einnig stigin mikilvæg skref, bæði að því er varðar meðferð arðs og færslur í stofnfjársjóði og eins að því er varðar aukna fjárfestingu í atvinnurekstri. Hvort tveggja horfir til mikilla framfara og stuðlar að því að gera möguleika manna jafnari en áður að því er varðar sparnað í almenna bankakerfinu og í atvinulífinu. Mikilvægt er að styrkja stöðu atvinnulífsins í þessu tilliti.

Þær heimildir sem hér eru veittar í þessu skyni eru ýmsum takmörkunum háðar og ég hygg að færa megi alveg skýr rök fyrir því að á ýmsum sviðum eru þessar takmarkanir fullþröngar. Ég er í mörgu tilliti sammála því viðhorfi sem kom fram hjá hv. 3. þm. Vestf. að því er varðar kröfur um fjárfestingu í hlutabréfum hluta­félaga þar sem gert er ráð fyrir að um sé að ræða hlutafélög sem hafi hlutafé er nemi 10 millj. kr. og að hluthafar séu a.m.k. 100. Ég hygg að það sé rétt að víða um land og einnig hér á þéttbýlissvæðinu komi fyllilega til álita að slaka á þessum kröfum. Þó að úti á landsbyggðinni hafi vaxið upp öflug fyrirtæki og stór sem falli undir þennan ramma er þar einnig mikið um minni fyrirtæki og við verðum á næstu árum að leggja áherslu á uppbyggingu slíkra fyrirtækja. Ég tel þess vegna fullkomlega eðlilegt að í meðferð n. um málið verði þessar ábendingar teknar til athugunar í því skyni að kanna hvort þarna megi slaka á kröfum.

Fram kom í ræðu hv. 3. þm. Reykv. fyrr í þessari umr. að að hans mati er hér verið að færa fjármagn yfir til einstaklinga á sama tíma og verið er að skera niður opinbera þjónustu. Ég held að nauðsynlegt sé að minna á í þessu sambandi að á undangengnum mánuðum hafa verið gerðar mjög víðtækar ráðstafanir á ýmsum öðrum sviðum skatta- og tryggingamála til að styrkja stöðu einstaklinga og fyrst og fremst þeirra sem við kröppust kjör búa. Þegar núv. ríkisstj. tók við völdum voru sérstakar ráðstafanir gerðar í þessu skyni er fólu í sér hækkun á persónuafslætti, hækkun á barnabótum, tvöföldun á mæðra- og feðralaunum og hækkun lífeyris­trygginga umfram almennar launabreytingar. Í skatta­frv. sem liggur fyrir þessu þingi er gert ráð fyrir að greiðslubyrði tekjuskatts á þessu ári lækki nokkuð hjá þeim sem hafa meðaltekjur og lægri tekjur. Ríkisstj. hefur fallist á hugmyndir aðila vinnumarkaðarins um sérstakar ráðstafanir í þágu lágtekjufólks með hækkun barnabóta, en einnig hækkun á mæðra- og feðralaunum og hækkun á tekjutryggingu ellilífeyris.

Hér hafa sem sagt verið stigin þrjú mjög mikilvæg skref í þessa veru í þágu þeirra einstaklinga sem við kröppust kjör búa. En þegar hv. 3. þm. Reykv. ræðir um þessi máletni og ber saman sýnist hann gleyma þessum mikilvægu staðreyndum og gegnir það furðu. Enda þótt hann hafi að því er virðist fylgst vel með umr. um stjórnmál á undangengnum mánuðum virðast þessi mikilvægu atriði hafa farið fram hjá honum.

Óumdeilt er að atriði sem þessi hafa heillavænleg áhrif á atvinnureksturinn. Hér kemur auðvitað skýrt fram mismunandi afstaða manna til þess hvernig á að byggja upp þetta þjóðfélag. Sósíalistar vilja vitanlega byggja upp atvinnulífið með þeim hætti að það sé undir sem mestri ríkisforsjá. Þeir sem aðhyllast borgaraleg viðhorf skynja á hinn bóginn að mikilvægast er að atvinnulífið sjálft hafi sem mest frumkvæði að nýjung­um, það hafi frumkvæðið að því að brjótast um og efna til nýmæla í atvinnurekstrinum. Þess vegna er nauðsyn­legt að skapa því svigrúm til að takast á við þessi verkefni. Miðstýring leiðir ekki til mestra framfara, það sýnir reynslan.

Að því er varðar sparifjármarkaðinn er það alveg rétt að þetta frv. er innlegg í baráttuna um sparifé. Vita­skuld er það það. Við stöndum frammi fyrir ákaflega mikilvægum verkefnum í atvinnumálum. Við þurfum að efla atvinnulífið. Við viljum gera fjárfestingu í atvinnu­lífinu jafngilda öðrum sparnaði til að treysta atvinnu­lífið, til að fjölga atvinnutækifærum. Sósíalistar vilja vitaskuld draga úr þessu. Þeir vilja auka hin opinberu umsvif. Þeir vilja auka hina opinberu þjónustu á kostnað atvinnuveganna, á kostnað framleiðslunnar. Við erum að deila um grundvallaratriði í í íslenskum efnahagsmálum. Komið hefur fram í þessum umr. að sósíalistar vilja komast út úr erfiðleikunum með eyðslu, við viljum komast út úr erfiðleikunum með vinnu og með því að skapa atvinnulífinu tækifæri til að vaxa og blómgast. Þessi frv. eru mikilvægur þáttur í þeirri viðleitni, nýmæli sem ég trúi og treysti að marki þáttaskil í íslenskri atvinnusögu. — [Fundarhlé.]