22.02.1984
Neðri deild: 50. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 3082 í B-deild Alþingistíðinda. (2684)

159. mál, tekjuskattur og eignarskattur

Ólafur Ragnar Grímsson:

Herra forseti. Það voru fróðlegar ræður sem hv. þm. Þorsteinn Pálsson, 1. þm. Suðurl., og hv. 1. þm. Vestf. fluttu fyrr við þessa umr. Það voru einkum og sér í lagi tvö meginatriði sem þeir töldu þessu frv. til tekna. Fyrra atriðið var að með þessu frv. væri stuðlað að því að einstaklingum væri gefinn kostur á að leggja fram fjármagn í stórum stíl til eflingar atvinnulífsins og í öðru lagi væri þetta liður í þeirri stefnu stjórnvalda að styrkja fjármagnsgetu at­vinnuveganna.

Við skulum líta á þessar tvær meginröksemdir frá öðrum sjónarhóli en gert hefur verið með tilvísun til þessa frv. Hvað er hv. ríkisstj. að gera á ýmsum öðrum sviðum? Hæstv. fjmrh. hefur ákveðið nýtt form á sparnaðarbréfum ríkisins til að gera þau girnilegri fyrir almenning í landinu og stuðla að því að ríkið fái í sinn hlut meira af því sparifé sem í umferð er í þessu landi. Hæstv. fjmrh. Sjálfstfl. hefur með þessum hætti gert sér sérstakt far um að styrkja samkeppnisstöðu ríkisins á hinum almenna sparifjármarkaði. Til viðbótar hefur fjmrh. ákveðið að taka upp þá nýbreytni að gefa út sérstaka ríkisvíxla í því skyni að hvetja fjár­magnseigendur til að afhenda ríkissjóði fjármagn sitt til ráðstöfunar. Margt bendir til að þetta form ríkisvíxla verði með þeim sérkennilega hætti að á þeim verði engin ákveðin vaxtakjör, heldur verði í hverjum mán­uði boðin út ákveðin upphæð ríkisvíxla og fyrirtækjum, bönkum og einstaklingum gefinn kostur á að senda tilboð til fjmrh. í einstakar milljónir, tugi milljóna af ríkisvíxlum, sem fjmrh. og Seðlabankinn láta síðan af hendi.

Það er þess vegna alveg ljóst að með þessum tveimur aðferðum hefur hæstv. ríkisstj. ákveðið að styrkja mjög möguleika ríkisins til að draga til sín fjármagn frá viðskiptabönkunum sem þjóna atvinnuvegunum, af því fjármagni einstaklinga og fyrirtækja sem ella væri sett í atvinnurekstur, og breyta þannig hlutföllum í fjár­magnsskiptingunni milli ríkisins og atvinnuveganna rík­inu í hag. Þetta er stefna sem felur í sér stórfellda aukningu á ríkishlutdeildinni í ráðstöfun sparifjárins í landinu.

Í þriðja lagi hafa komið fram í fjh.- og viðskn. þessarar deildar upplýsingar sem benda til þess að hæstv. fjmrh. og hæstv. félmrh. beiti sér nú fyrir því að lífeyrissjóðirnir í þessu landi hætti í verulegum mæli að ráðstafa fjármagni sínu til fjárfestingarlánasjóða at­vinnuveganna og beini því í aðrar áttir. Nú skal ég ekki um það ræða á þessu stigi hvernig sú stefna mun nákvæmlega birtast. Það á eftir að koma í ljós. En það er a.m.k. ljóst að af hálfu þessara tveggja hæstv. ráðh. er nú verið að þreifa sig áfram með þriðju aðferðina, sem á að fela það í sér að færa fjármagn frá atvinnulífinu og sjóðum þess yfir í ráðstöfunarvald ríkisins. Það er þess vegna algjörlega út í hött og rangfærslur hinar mestu þegar þessir tveir hv. þm., Þorsteinn Pálsson og 1. þm. Vestf., eru að reyna að halda því hér fram að ríkisstj. sem hér er við völd sé eitthvað annt um að styrkja sérstaklega fjármagnsmöguleika atvinuveganna í samkeppni við ríkisvaldið.

Hv. þm. Þorsteinn Pálsson er nefnilega að beita sér fyrir því að ríkisforsjá og ríkisvald hvað varðar ráðstöf­un fjármagns á Íslandi aukist stórlega í þessari valdatíð Sjálfstfl. Það erum við, talsmenn Alþb., sem erum að mæla gegn því að með þessum hætti sé hlutur ríkisins í fjármagnsdreifingunni aukinn. Við höfum þvert á móti lagt til að möguleikar atvinnulífsins í landinu í heild sinni til að ráðstafa þessu fjármagni í samvinnu launafólks og stjórnenda fyrirtækjanna væru stórlega auknir. En það er fjmrh. Sjálfstfl. og ríkisstj. Sjálfstfl. sem eru að finna hér upp, nánast í hverjum mánuði, nýjar aðferðir í formi nýrra gylliboða varðandi sparnaðarbréf ríkisins, varðandi ríkisvíxla og varðandi nýjar aðferðir um ráðstöfun á fjármagni lífeyrissjóð­anna til að styrkja frekar hlutdeild ríkisins. Það er þess vegna alveg ljóst, að þegar litið er á málin frá þessum sjónarhóli verður það nánast eins og að skemmta skrattanum þegar þessir þm. mæla á þann veg hér að ríkisstj. sé að draga úr hlutdeild ríkisins. Það er mesti misskilningur.

Það sem ríkisstj. er hins vegar að gera með þessu frv., eins og það liggur hér fyrir, er að skapa stóreigna­mönnum í landinu, sem eiga hlutdeild fyrst og fremst í stærri fyrirtækjum landsins, möguleika til að greiða minna af hlutafjáreign sinni og arðsemi þeirri, sem þeir fá út úr sínum fyrirtækjum, til almennra sjóða í landinu. Þá er ég kominn að seinni ástæðunni sem nefnd hefur verið þessu frv. til stuðnings, að það gefi almenningi í landinu kost á að leggja fram fjármagn til atvinnulífsins. Hvaða almenningi? Er það almenningurinn sem hefur 10–11 þús. kr. á mánuði. Eru það þær þúsundir sem hv. þm. Þorsteinn Pálsson var að nefna áðan að ríkisstj. hefði sérstaklega í hyggju að koma til móts við með hliðarráðstöfunum í kjölfar kjarasamninga? Eru það þær þúsundir sem kjararannsókn Kjararannsóknar­nefndar leiðir í ljós að þurfi að framfleyta sér og fjölskyldu sinni á launum sem nægja ekki fyrir húsa­teigu, mat, hita og rafmagni?

Það er alveg ljóst að ríkisstj. hefur með kjarastefnu sinni stórlega skert möguleika fólks til að leggja fram fjármagn í atvinnulífið í landinu. Hvernig halda menn að ríkisstj. sem skert hefur lífskjörum fjórðung geti komið hér og sagt: Við erum að efla möguleika fólks til að leggja fram fjármagn í atvinnulífið. Það er a.m.k. ekki mikið samræmi í því að byrja fyrst á því að skerða lífskjör fólksins í landinu um fjórðung og rúmlega það og koma svo hér og segja: Við erum að styrkja stöðu fólksins til að leggja peninga í atvinnulífið. — Það er að vísu rétt að með þessu frv. er verið að styrkja stöðu stóreignafólks og efnameira fólks til að leggja fram peninga með skattleysishætti í atvinnulífið, en allur fjöldinn, þúsundirnar, tugþúsundirnar í þessu landi hafa eftir valdatöku þessarar ríkisstj. haft miklu minni mögu­leika til að leggja peninga sína í útgerðarfyrirtækin í sinni heimabyggð, í iðnfyrirtæki í sinni heimabyggð, í þjónustuiðnað og ýmsar aðrar atvinnugreinar, sem menn vilja byggja upp í samvinnu allt í kringum landið, einfaldlega vegna þess að þúsundir heimila þurfa nú á öllu sínu fjármagni að halda til að halda sér lifandi, í húsaleigugreiðslur, mat, síma, rafmagn og klæði.

Þess vegna er það einnig ljóst, að þegar á þetta mál er horft í tengslum við það sem ríkisstj. er að gera í heild sinni hefur þessi ríkisstj. meir en nokkur önnur ríkisstjórn skert möguleika alls almennings í þessu landi til að leggja eitthvað af mörkum til þróunar atvinnulífsins.

Hér er fyrst og fremst á ferðinni frv. sem er gert fyrir þann mikla minni hl. í þessu landi sem eru fyrirtækja­eigendur, stóreignamenn og hátekjufólk. Þetta frv. er liður í þeirri stefnu ríkisstj. að gera þá fátæku fátækari og þá ríku ríkari. Það er ósköp eðlilegt að útgerðarfjöl­skyldurnar, sem eiga togarana og frystihúsin í kringum landið, fagni þessu frv. Það er ósköp eðlilegt að þeir sem hafa verið að stofna fyrirtæki til að búa til lek plaströr fagni svona frv. (Gripið fram í: Gúmmí­slöngur.) Eru það gúmmíslöngur? Lekar gúmmíslöngur þá. (Gripið fram í.) Það er alveg eins með þetta frv. og frv. um lausaskuldir bænda, sem vikið var að hér fyrir nokkrum dögum, að einstakir þm. ættu að fara að tilkynna þá sérstöku fjárhagslegu hagsmuni sem þeir hafa sjálfir af þeim frv. sem til umr. eru.

Þegar litið er á þetta frv. í ljósi annarra aðgerða sem ríkisstj. er að gera er alveg ljóst, eins og ég hef hér sagt, að þetta er breyting á skattalögum sem fyrst og fremst stuðlar að því að styrkja hag fyrirtækjaeigenda, stór­eignafólks og hátekjufólks, enda er alveg ljóst að það eru ákveðnir þjóðfélagshópar í þessu landi sem hafa öðlast miklu betri hag eftir að ríkisstj. tók við völdum. Einstaklingar sem reka eigin fyrirtæki, sem eru með ýmiss konar rekstur og fólk í vinnu, komast miklu betur af sem eigendur fyrirtækja og rekstraraðilar í dag en þeir gerðu áður. Þær fjölskyldur sem lifa á vinnu annarra í formi fyrirtækjareksturs hafa núna miklu meira til ráðstöfunar í þessu þjóðfélagi en þær höfðu áður. Þetta frv. er þess vegna flutt fyrir þær fáeinu þúsundir í þessu landi sem eru stóreignamenn og hátekjufólk og eiga stórfyrirtækin í þessu landi. Þetta er flutt fyrir fjölskyldurnar í Sjóvá og Eimskip, einkaút­gerðarfyrirtækjunum í kringum landið og aðra sem eru aðilar að stóru, öflugu, kapítalísku fyrirtækjunum í þessu landi. Þetta er ekki frv. í þágu valddreifingar, hv. þm. Þorsteinn Pálsson, enda kom það rækilega fram í ræðu hv. þm. að hann áttaði sig á því að gagnrýni þm. Sighvats Björgvinssonar hitti rækilega naglann á höfuð­ið þegar hv. þm. Sighvatur Björgvinsson afhjúpaði hér að þetta frv. í þeim búningi sem ríkisstj. og Sjálfstfl. leggur það fram snertir á engan hátt það markmið að stuðla að þróun smárra fyrirtækja eða valddreifingu í atvinnulífi á Íslandi, heldur er þetta frv. gagngert sniðið fyrir kapítalísku risana í íslensku atvinnulífi, Hafskip, Eimskip og stóru einkaútgerðarfyrirtækin.

Sú ríkisstj. sem hér situr að völdum stuðlar að því að skerða lífskjör almennings meir og meir. Hv. þm. Þorstein Pálsson vék að því í ræðu sinni að ríkisstj. vildi stuðla að því að bæta sérstaklega kjör þeirra verst settu og hefði nú í gær gert samkomulag við fulltrúa Alþýðusambandsins og Vinnuveitendasambandsins um með hvaða hætti þetta yrði gert. Fyrst hv. þm. Þor­steinn Pálsson, sem fjölmiðlar upplýsa í gær og í dag að hefur verið aðili að þessu samkomulagi ásamt hæstv. forsrh. fyrir hönd ríkisstjórnarmeirihl. hér á Alþingi við fulltrúa ASÍ og VSÍ, hóf umr. um þetta samkomulag hér, þá væri æskilegt að hann upplýsti nokkur atriði í þessu sambandi. (SighB: Ég held að það sé öllum fyrir bestu að hann þegi um það.) Nei, ég held að það sé öllum fyrir bestu að hv. þm. Þorsteinn Pálsson geri grein fyrir því hér t.d. hvort hann er sammála þeirri till., sem sagt er að Vinnuveitendasambandið hafi lagt fram, að 300–330 millj. kr. til þessara aðgerða verði aflað innan fjárlaga með þeim hætti að minnka niður­greiðslur. Það hefur komið skýrt fram að þetta er tillaga Vinnuveitendasambandsins. Svo er sagt í fjölmiðlum a.m.k. og hv. þm. Þorsteinn Pálsson getur þá upplýst ef það er ekki rétt. Hann hefur í samvinnu við hæstv. forsrh. tekið að sér að framkvæma þetta samkomulag og þess vegna er spurt að því hér: Á að afla fjár til þessara aðgerða, sem sagt er að eigi að bæta kjör hinna verst settu, með því að lækka niðurgreiðslur eða m.ö.o. með því að hækka verð á mjólk, kjöti og almennum lífsnauðsynjum fólksins í landinu? Ef svo er er alveg ljóst að hér er á ferðinni umfangsmikill kjara­fölsun. Það er tekið með annarri hendinni sem látið er með hinni. Og þær fjölskyldur sem nú lifa fyrst og fremst á grjónagraut, sem eins og allir vita er búinn til úr mjólkurafurðum að verulegu leyti, þurfa að fara að greiða enn hærra verð fyrir þann fræga graut en þær hafa gert til þessa.

Í öðru lagi væri æskilegt að hv. þm. Þorsteinn Pálsson svaraði því hér hvort hann er sammála þeirri skoðun eftirmanns síns í framkvæmdastjórastóli Vinnuveit­endasambands Íslands að ríkisstj. muni ekki hér á Alþingi flytja frv. um þau atriði sem hér hefur verið rætt um að væru liðir í þessu samkomulagi né heldur hrinda þeim í framkvæmd eftir öðrum leiðum nema það liggi fyrir að öll verkalýðsfélög í landinu samþykki þann kjarasamning sem forustumenn ASÍ og VSÍ gerðu í gær. Er það einnig stefna hv. þm. Þorsteins Pálssonar og ríkisstj. að framkvæma þessi mál með þessum hætti, að taka samningsvaldið af hinum einstöku verkalýðsfé­lögum í landinu með því að segja: Hinir lægstlaunuðu, hinir verst settu, þeir sem þurfa að lifa á 10 þús. kr. launum eða minna, fá ekkert til sín nema öll verkalýðs­félögin allt í kringum landið samþykki þennan samning óbreyttan? — Er það afstaða hv. þm. Þorsteins Páls­sonar? Er það sú afstaða sem ríkisstj. hefur mótað?

Fyrr en þessum spurningum hefur verið svarað og báðum neitandi liggur ekkert fyrir um að þær aðgerðir sem hv. þm. Þorsteinn Pálsson var að hæla sér af séu til að bæta kjör fólksins í landinu. Það væri þess vegna mjög æskilegt að áður en þessari umr. lýkur yrðu veitt svör við þessum spurningum.

Hv. þm. Þorsteinn Pálsson sagði áðan að það væri sú grundvallarafstaða borgaralegra afla sem aðgreindi þau frá öðrum öflum að fólk ætti að komast út úr erfið­leikunum með vinnu. Þetta má vissulegu til sanns vegar færa. Það hefur verið grundvallarstefna þessarar ríkisstj. að fólk eigi að vinna lengur og meira fyrir minna og minna. Fólk er nú mörgum klst. tengur að vinna fyrir hitareikningnum á mánuði, mörgum klst. lengur að vinna fyrir símareikningnum, mörgum klst. lengur að vinna fyrir rafmagnsreikningnum og einnig mörgum klst. lengur að vinna fyrir opinberum gjöldum, t.d. í Reykjavík. Alþýðusamband Íslands hefur t.d. gefið út sérstaka skrá yfir það hve mörgum tugum klst. í hverjum mánuði venjuleg launafjölskylda er nú lengur að vinna fyrir hinum einföldustu nauðsynjum síns heimilis. Er þetta stefna hinna borgaralegu afla, að fólkið í landinu eigi að leggja meira á sig, það eigi að vinna meira til að halda í sama horfi og áður, en á sama tíma, eins og með þessu frv., fái hinir ríku, efnameiri og eigendur fyrirtækjanna meira og meira fyrir minna og minna?

Að þessu leyti er kannske skilgreining hv. þm. Þorsteins Pálssonar rétt, að fjöldinn á að vinna, en fjármagnseigendurnir eiga að fá meira í sinn hlut fyrir æ minna og minna. Þeir eiga að leggja minna til sameigin­legra þarfa samkv. þessu frv. Þeir eiga að fá meira í sinn hlut skv. þessu frv. Þar er ekki verið að leggja vinnumælikvarðann til grundvallar. Þar er fjár­magnseignin ein lögð til grundvallar. Það er þar sem skilur á milli þeirrar lífshugsjónar sem hann hefur gerst talsmaður fyrir hér og þeirrar sem við erum fulltrúar fyrir ýmsir aðrir hér í salnum, að við viljum að manngildið ráði því hvað er hreyfilögmál þjóðfélagsins, en ekki fjármagnseignin, eins og hún gerir í þessu frv.

Herra forseti. Hæstv. ríkisstj. hefur einnig lagt hér fram á Alþingi frv. um virðisaukaskatt. Samkvæmt því frv., ef að lögum verður, annaðhvort á þessu þingi eða snemma á næsta þingi, mun verðlag á matvælum stórlega hækka hér í þessu landi. T.d. á samningstíma þeirra kjarasamninga sem undirritaðir voru í gær mun, ef þetta stjfrv. verður samþykkt, verð á matvælum hækka jafnvel um rúm 20% á einum degi. Ef það fer svo saman að á sama tíma séu niðurgreiðslur skornar niður kannske um þriðjung til að afla fjármagns í ráðstafanir til góða launafólki og virðisaukafrv. tekur gildi einhvern tímann síðar á þessu ári, hvort sem það verður hérna megin við sumarið eða síðar á árinu, er alveg ljóst að ríkisstj. stefnir að því að stórauka enn framfærslukostnað venjulegra heimila í þessu landi á sama tíma og möguleikar fjármagnseigendanna og hlutabréfaeigendanna í stórfyrirtækjunum að skara eld að sinni köku hafa verið stórlega auknir.

Það er þess vegna með þessu frv. ekki verið að leggja grundvöll að því að í þessu þjóðfélagi geti allur fjöldinn tekið þátt í atvinnurekstrinum. Það er mesti misskiln­ingur. Það er ekki stefna þessarar ríkisstj. að allur fjöldinn geti tekið þátt í atvinnurekstrinum. Ríkisstj. hefur þvert á móti gert allan fjöldann svo auman tekjulega séð að hann hefur engar stærðir afgangs til þess að leggja af mörkum til atvinnulífsins í landinu, hvort sem hann vill gera það með sparnaði eða með því að taka beinlínis þátt í fyrirtækjunum í gegnum eignar­aðild. Það hefur engin ríkisstjórn á Íslandi svipt venju­legt fólk í þessu landi í jafnríkum mæli möguleikum á því að taka þátt í atvinnulífinu annaðhvort með sparnaði eða eignarþátttöku og þessi ríkisstj. Það er þess vegna algjörlega út í hött að þessir ungu fulltrúar Sjálfstfl., frjálshyggjunnar, komi hér upp í ræðustólinn og geri sig breiða, eins og þeir gerðu áðan 1. þm. Vestf. og 1. þm. Suðurl., í þá veru að hér sé verið að efla þátttöku fjöldans í atvinnulífinu og gera honum kleift að taka þátt í því. Það er verið að styrkja stöðu hinna fjársterku. Það er verið að styrkja stöðu stóreignafjölskyldnanna sem hafa raðað sér í kringum Eimskip, Sjóvá, Hafskip og stærstu útgerðarfyrirtækin í kringum landið til að geta haldið áfram að skara eld að sinni köku.

Þetta er frv. sem beitir skattalegum aðferðum til að draga fjármagnið saman á hendur æ færri og gera möguleika þeirra til að styrkja efnahagslega stöðu sína sífellt betri og betri. Að þessu leyti er þetta frv. í algjörri andstöðu við þá stefnu sem t.d. hv. þm. Eyjólfur Konráð Jónsson lagði ríka áherslu á hér á árum áður og hins vegar meira í ætt við stefnuna um að selja ömmu sína eða gefa vændi frjálst að lögum og leyfa fíkniefna­sölu að grassera í borginni skv. lögmálum markaðarins og hinna fjársterku, sem postuli nýfrjálshyggjunnar á Íslandi og innan Sjálfstfl. hefur boðað í blaðagreinum að undanförnu.

Það liggur fyrir að bæði Alþýðusamband Íslands og Bandalag starfsmanna ríkis og bæja hafa mótmælt meginákvæðum þessa frv. Ég vek rækilega athygli á að þeirri samþykkt greiddu atkv. allir fulltrúar í stjörnum þessara samtaka. Í Morgunblaðinu í dag er birtur listi yfir þá sem eru í verkalýðsmálaráði Sjálfstfl. Ýmsir í þeim hópi sátu í stjórn Alþýðusambandsins og BSRB á þeim fundum þar sem þessi afstaða var mótuð. Í miðstjórn Sjálfstfl. eru líka menn sem hafa greitt atkv. gegn þessu frv. á vettvangi samtaka launafólks og ef menn skoða skrána yfir fulltrúa í verkalýðsmálaráði Sjálfstfl. er alveg ljóst að í þeim hópi eru einstaklingar sem standa að mótmælum Alþýðusambandsins og BSRB gegn þessu frv. Sjálfstfl. er sem betur fer ekki svo heillum horfinn að það sé ekki enn þá hægt að finna menn innan hans sem gera sér grein fyrir því hvað er hagsmunum almennings í landinu fyrir bestu og hvað ekki, hvað það er sem fyrst og fremst þjónar hagsmun­um hinna ríku og hvað það er sem fyrst og fremst þjónar hagsmunum launafólksins í landinu. Ég held að æskilegt væri að hv. þm. Þorsteinn Pálsson kæmi hér upp og sýndi fram á hvað það væri í einróma umsögn Alþýðu­sambandsins og Bandalags starfsmanna ríkis og bæja um þessi frv. sem er rangt. Hvað er það sem er rangt, hv. þm. Þorsteinn Pálsson, í afstöðu sjálfstæðismann­anna innan stjórnar BSRB og sjálfstæðismannanna innan stjórnar Alþýðusambandsins til þessa frv.? Þorir hv. þm. að gera grein fyrir því hér í salnum? Þorir hann í rökræður við sjálfstæðismennina í samtökum launafólks um þetta frv. eða kemur hann bara, eins og hann gerði hér áðan, og breiðir um sig með almennum óljósum frösum um að hér sé verið að styrkja hag almennings í landinu, efla sparnað, draga úr ríkisumsvifum og þetta sé barátta milli borgaralegra afla og sósíalismans, þessir séu á móti, þessir séu talmenn sósíalismans, en þeir sem eru með þessu frv. séu talsmenn borgaralegra afla?

Er Björn Þórhallsson, miðstjórnarmaður í Sjálfstfl. og varaforseti Alþýðusambands Íslands, er greiddi atkvæði gegn þessu frv. í miðstjórn Alþýðusambands­ins, á móti borgaralegum öflum skv. skilgreiningu Þorsteins Pálssonar hér? Er hann kannske einn af þeim vondu sósíalistum sem eru að berjast gegn þessu frv.? Er varaformaður BSRB, sjálfstæðismaður úr Hafnar­firði, sem situr í verkalýðsmálaráði Sjálfstfl. og líka greiddi atkv. gegn þessu frv., líka fjandmaður borgara­legra afla, einn af þessum vondu sósíalistum sem eru á móti þessu frv.? Væri ekki æskilegt að hv. þm. Þor­steinn Pálsson kallaði saman fund í flokki sínum og segði þessum mönnum að þeir væru að berjast gegn hinum borgaralegu öflum, ef hann ætlar að bjóða okkur hér í þingsal upp á þann málflutning að þeir sem tala gegn þessu frv. séu að tala gegn borgaralegum öflum? Er það kannske þannig að í æðstu forustustöðum í Sjálfstfl. sé fullt af mönnum sem eru á móti hinum borgaralegu öflum og hinni borgaralegu stefnu, það séu laumusósíalistar komnir inn í innstu raðir miðstjórnar Sjálfstfl. og skipi veglegan sess í stjórn verkalýðsmála­ráðs Sjálfstfl.?

Auðvitað afsannar yfirlýsing BSRB og ASÍ megin­kjarnann í málflutningi hv. þm. Þorsteins Pálssonar áðan. Hans eigin flokksmenn hafa svarað honum með formlegri yfirlýsingu sem send hefur verið Alþingi. Og ég fullyrði að ef menn skoða þær umsagnir sem Alþýðusamband Íslands og BSRB hafa sent Alþingi á undanförnum árum um hin ýmsu frv., sem hér hafa verið til meðferðar, hefur sjaldan ef nokkurn tíma verið tekið jafnsterkt til orða og í mótmælunum sem send eru gegn þessu frv. Ég skora á hv. þm. Þorstein Pálsson og 1. þm. Vestf. og aðra þm. Sjálfstfl. að skoða skjalasafn Alþingis og gá hvort alþýðusamtökin í landinu hafa nokkru sinni tekið jafnsterkt til orða í mótmælum sínum gegn frv. sem hér hefur verið lagt fram. Það gerðu það allir, ég endurtek það, sem í stjórn þessara samtaka sitja.

Hefur þetta frv. t.d. verið rætt í verkalýðsmálaráði Sjálfstfl.? Hefur það tekið einhverja afstöðu til þessa frv.? Er það eitt af óskabörnum Verslunarráðsins sem þessi nýfrjálshyggjuforusta í Sjálfstfl. leiðir hér fram — mennirnir sem annaðhvort eiga fyrirtæki eða hafa verið í forsvari fyrir fyrirtæki?

Herra forseti. Það er ljóst af þessu frv. að þeir sem að þessari ríkisstj. standa ætla að halda áfram á þeirri braut að efla fátækt þúsundanna í þessu landi, en styrkja eignastöðu og fjármagnsmyndun þeirra fáu sem hafa yfir verulegu afgangsfjármagni að ráða í þessu landi. Það er mikill misskilningur að þessi ríkisstj. sé að draga úr hlutdeild ríkisins í ráðstöfun fjármagns. Hún er í reynd að stórauka hlutdeild ríkisins með því að búa til sérstök gylliskilyrði á hinum nýju ríkisskuldabréfum, með því að finna upp sérstakt form á ríkisvíxlum og með því að reyna að fá lífeyrissjóðina til að hætta að leggja fjármagn sitt til fjárfestingarsjóða atvinnuveganna og færa það yfir í annað.

Herra forseti. Ég vænti þess að áður en þessari umr. lýkur svari hv. þm. Þorsteinn Pálsson þeim spurning­um, tveimur sérstaklega, sem ég bar fram til hans varðandi hver væri afstaða hans og ríkisstj. gagnvart því með hvaða hætti ætti að afla fjár til þeirra aðgerða sem þeir samþykktu í gær, hann og hæstv. forsrh., að standa að. Er hugmyndin um að gera það með minnkun niðurgreiðslna virkilega til umræðu? Er það jafnvel ætlun ríkisstj. að samþykkja hugmyndir Vinnuveitenda­sambands Íslands um það form? Og er ríkisstj. eða Þorsteinn Pálsson sérstaklega sammála þeirri yfirlýs­ingu framkvæmdastjóra Vinnuveitendasambandsins að það komi ekki til greina að neinar af þessum aðgerðum í þágu hinna verst settu í þjóðfélaginu komi til fram­kvæmda fyrr en hvert og eitt einasta verkalýðsfélag í þessu landi hefur samþykkt kjarasamninga? Ef slík væri afstaðan væri það ekki aðeins að þessir herramenn, þessir sjálfskipuðu fulltrúar frjálshyggjunnar sem tóku samningsréttinn af launafólkinu í landinu um mitt s.l. ár, helgasta réttinn sem launafólk hefur, sviptu honum burtu með lögum, hafi hafið feril sinn með þeim hætti, heldur ætli þeir líka að halda honum áfram með því að stilla hinum frjálsu samtökum launafólks í landinu upp við vegg með þeim hætti og segja: Við höfum tekið hina verst settu í landinu, hina fátækustu í landinu, sem gísla og þeir fá ekki auknar barnabætur, þeir fá ekki aukinn mæðrastyrk, þeir fá ekki hækkun lágmarkslauna nema þið samþykkið allir á línunni umræðulaust þann kjara­samning sem gerður hefur verið. — Þar með væri hinn formlegi samningsréttur af hinum einstöku verkalýðsfé­lögum, hvort sem það er á Suðurlandi, Vestfjörðum, Norðurlandi eða í Reykjavík, tekinn með því að nota hina fátækustu í þessu landi sem gísla í þessu skyni. Sú afstaða sem framkvæmdastjóri Vinnuveitendasam­bandsins lýsir í Morgunblaðinu í dag, að hann og Vinnuveitendasambandið ætli að beita fátækt fjöldans sem svipu og taka samningsréttinn af einstökum verka­lýðsfélögum, væri kórónan á þá ríkisstj. sem hóf feril sinn með því að svipta samningsréttinum algjörlega burt. Og ég spyr hv. þm. Þorstein Pálsson: Er hann sjálfur í fyrsta lagi, er Sjálfstfl. í öðru lagi og er ríkisstj. í þriðja lagi sammála afstöðu forstjóra Vinnuveitenda­sambands Íslands?