22.02.1984
Neðri deild: 50. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 3090 í B-deild Alþingistíðinda. (2686)

159. mál, tekjuskattur og eignarskattur

Sighvatur Björgvinsson:

Herra forseti. Víst er það rétt að með því samkomulagi sem virðist hafa tekist á vinnumarkaðnum þá skulum við gera okkur fulla grein fyrir því að þar með hefur fátæktin verið fest í sessi á Íslandi. Þar með ganga menn út frá því sem gefnu að heilu atvinnugreinarnar í landinu eigi ekki að greiða mannsæmandi kaup. Engum blandast hugur um að þau grunnlaun sem um er samið sem lágmarkslaun eru ekki laun sem hægt er að lifa af. Þær atvinnugreinar í þessu landi sem ekki geta borgað meira kaup eru atvinnu­greinar sem grundvallast á því að halda starfsfólki sínu neðan fátækramarka. Með samþykkt við slíka kjara­samninga er hæstv. ríkisstj. búin að festa fátækt í sessi hér á landi og með afstöðu sinni er forusta Alþýðusam­bandsins búin að fallast á það.

Og ég spyr: Fyrst menn eru nú farnir að selja þau réttindi sem áunnust fyrir mörgum árum, jafnvel ára­tugum, eins og þau að fólki á aldrinum 16–18 ára skuli ekki greidd lægri laun en svokallað fullorðið fólk á að fá, hvenær kemur þá að því að fallist verður á að skrá að nýju karla- og kvennataxta skv. samningum stéttarfé­laganna?

Herra forseti. Þetta á ekki erindi inn í þessa umr., en ég vil aðeins vekja athygli manna á því, að eftir því sem ég best veit er hæstv. fjmrh. væntanlegur heim í kvöld. Við þær aðstæður sem nú eru orðnar held ég að ekki geti hjá því farið að Alþingi, a.m.k. stjórnarandstaðan og líklega alþm. allir, hljóti að krefjast þess að við fyrsta tækifæri fari hér fram umr. utan dagskrár á Alþingi, helst þegar á morgun, um þrjú atriði.

Í fyrsta lagi það sem hv. þm. Ólafur Ragnar Gríms­son vék hér að áðan, hver á að verða framkvæmd ríkisstj. á fyrirheitinu við verkalýðshreyfinguna um hækkun mæðra- og feðralauna, barnabótaauka o. fl. Þetta verður að sjálfsögðu að liggja fyrir. Eini aðilinn sem getur gengið eftir svörum við þessari spurningu við þessar aðstæður er Alþingi Íslendinga.

Með sama hætti er það aðeins Alþingi sem getur gengið eftir svari við spurningunni: Eru einhver skilyrði sem hæstv. ríkisstj. setur og ekki hafa komið fram um þessa framkvæmd? Það er t.d. nauðsynlegt fyrir Dags­brúnarverkamenn, sem halda sinn fund annað kvöld, að vita þetta áður en þeir ganga til atkvæða um þau samkomulagsdrög sem fyrir liggja. Hvaða skilyrði setur ríkisstj. verkalýðshreyfingunni fyrir framkvæmd á því fyrirheiti sem hún gaf verkalýðshreyfingunni varðandi þessa samninga?

Í þriðja lagi liggur fyrir sú afstaða fjmrh., sem hann hefur þráfaldlega lýst, að verði samið um hærra kaup en nemur 4% muni hann segja af sér. Þessa yfirlýsingu hefur hæstv. ráðh. þráfaldlega gefið frammi fyrir al­þjóð, t.d. í sjónvarpi. Og það verður að liggja fyrir, herra forseti, áður en lengra er haldið hver er afstaða fjmrh. eins og málin standa. Ég held að alþm., ekkert síður stjórnarsinnar en stjórnarandstæðingar, hljóti að fara þess á leit að slík umr. geti orðið sem allra fyrst utan dagskrár hér á Alþingi og þá helst ekki síðar en á morgun.

Herra forseti. Ég ætla ekki að fara fleiri orðum almennt um efnahagsmálin og það ástand sem nú er orðið í okkar þjóðfélagi. Ég ætla aðeins að vekja athygli á því, að hv. 1. þm. Suðurl. tók í ræðu sinni áðan undir þær ábendingar og tillögur sem ég gerði um breytingu á þessu frv., þannig að ef það verður að lögum, sem er umdeilanlegt hvort eigi að verða við þessar aðstæður, að maður segi ekki meira, ef það verður að lögum þá verði hinum smáa gefinn jafnmikill réttur og risunum í íslensku atvinnulífi. Ég treysti því að hv. þm., sem á sæti í fjh.- og viðskn., flytji þessa sameiginlegu skoðun okkar þangað inn og beiti sér fyrir því að í n. verði gerð sú breyting sem gera þarf á frv. til þess að þetta sameiginlega viðhorf, sem við lýstum báðir, nái fram að ganga.