27.10.1983
Sameinað þing: 9. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 384 í B-deild Alþingistíðinda. (269)
Umræður utan dagskrár
Hjörleifur Guttormsson:
Herra forseti. Hæstv. utanrrh. sagði hér að við ættum að fordæma ef okkur ofbyði, ef okkur blöskraði. Það er greinilegt að mælirinn er ekki fullur hjá hæstv. utanrrh. varðandi framferði Bandaríkjamanna gagnvart Grenada. Ég harma ekki aðeins þessa afstöðu forsrh., ég hlýt að fordæma þessa niðurstöðu hans og ég lít á hana sem afar alvarlegan atburð.