23.02.1984
Sameinað þing: 56. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 3124 í B-deild Alþingistíðinda. (2713)

Umræður utan dagskrár

Forseti (Þorv. Garðar Kristjánsson):

Það skal tekið fram, að forseti hefur ekki vald til að knýja einn eða neinn til að tala né til að tala ekki. En ég geri fastlega ráð fyrir að hæstv. fjmrh. taki til máls og hann hefur nú kvatt sér hljóðs og tekur til máls. — Ég bið hv. 4. þm. Norðurl. e. afsökunar á þessu brengli, en það er til góðs fyrir þingheim.