23.02.1984
Sameinað þing: 56. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 3169 í B-deild Alþingistíðinda. (2732)
208. mál, starfsmannasjóðir
Flm. (Kristjana Milla Thorsteinsson):
Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir till. til þál. um kynningu á starfsmannasjóðum, sem er 208. mál í Sþ., þskj. 371.
Flutt hefur verið frv. til l. á þskj. 231 um frádrátt frá skattskyldum tekjum manna vegna fjárfestingar í atvinnurekstri. Í því frv. er að finna nánari skilyrði um frádráttarbærni framlaga til atvinnurekstrar, sem sett eru fram á þskj. 230 í frv. til l. um breyt. á lögum um tekju- og eignarskatt.
Í frv. um frádrátt frá skattskyldum tekjum er gert ráð fyrir mismunandi leiðum til fjárfestinga sem gera framlög til atvinnurekstrar frádráttarbær frá skatti.
Í fyrsta lagi er um að ræða möguleika til að leggja fé inn á sérstakan stofnfjárreikning sem bundinn er minnst í sex mánuði, en verður að notast sem stofnfé innan sex ára frá því að innborgun fór fram.
Í öðru lagi er um að ræða kaup á hlutabréfum í hlutafélögum milliliðalaust. Til þeirra félaga sem kaupa má hlutafé í eru gerðar nokkuð strangar kröfur um fjölda hluthafa og upphæð hlutafjár. Einnig er þess krafist að ársreikningur viðkomandi félags sé öllum aðgengilegur og ekki lagðar neinar hömlur á viðskipti með hlutabréf félagsins.
Í þriðja lagi gerir frv. ráð fyrir að framlög í svonefnda starfsmannasjóði verði frádráttarbær frá skattskyldum tekjum. Að lokum er um að ræða kaup á hlutabréfum í
félögum sem ekki uppfylla þau skilyrði sem áður um getur.
Öllum þessum leiðum er það sameiginlegt að þeim er ætlað að hvetja almenning til meiri framlaga til uppbyggingar atvinnulífsins en verið hefur hingað til.
Það ber margt til þess að almenningur hefur ekki lagt mikið fé milliliðalaust í fyrirtæki. Ein ástæðan er að frjáls sparnaður hefur verið í lágmarki vegna þess að ekki hefur þótt fýsilegt að spara saman fé meðan verðbólga var mikil og raunvextir neikvæðir. Einnig hefur lengi vantað verðbréfamarkað þar sem hægt er að kaupa og selja verðbréf og hlutabréf á frjálsum markaði. Hluti sparnaðar landsmanna hefur verið þvingaður í formi skyldusparnaðar og gjalda til ýmissa sjóða. Þvingaður sparnaður nemur nú helmingi heildarsparnaðar. Skortur er því á fjármagni sem nýta mætti í nýjan og arðbæran atvinnurekstur þar sem sýnt er fyrir löngu að undirstöðuatvinnuvegir Íslendinga, landbúnaður og sjávarútvegur, geta ekki skapað þann fjölda nýrra starfa sem þörf er á í náinni framtíð.
Árið 1981 vann 52.1% af mannafla þjóðarinnar við þjónustustörf en 26.4% við iðnaðarstörf. Búast má við enn fleira fólki í þess konar störf á næstu árum. Til þess að störfum fjölgi nægilega mikið þarf nýsköpun og endurskipulagning í þessum greinum að eiga sér stað, bæði með stofnun nýrra fyrirtækja og með því að hlúa að þeim sem fyrir eru. Til þess að svo megi verða þarf áhættufé sem ekki er alltaf hægt að krefjast að hið opinbera leggi fram. Byggja þarf á grunni starfandi fyrirtækja og ekki síst að stofna ný sem mundu leita nýrra leiða í framleiðslu og hvers kyns þjónustu svo þróun og framfarir geti átt sér stað.
Tilkoma örtölvunnar hefur valdið byltingu í tækniheiminum og mun ég ekki reyna að lýsa öllum þeim undrum sem henni fylgja. Sérfræðingar í tölvufræðum segja að við stöndum enn aðeins á þröskuldinum að þeim tækniheimi sem mun opnast mannkyninu á næstu árum. Mikilvægt er að vera viðbúinn að nýta þá þróun, fylgjast vel með og ýta undir að hugvit og framtak einstaklingsins fái að njóta sín þar til fulls.
En til þess að þeir sem vilja geti sett á stofn ný fyrirtæki eða endurbæta önnur þurfa þeir að hafa aðgang að fjármagni, eins og áður segir, en ekki að þurfa sífellt að bíða eftir frumkvæði hins opinbera. Þær leiðir til að fá frádrátt frá skattskyldum tekjum vegna fjárfestingar í atvinnurekstri sem ég nefndi áðan eru allar hvati til almennings til aukinna framlaga til atvinnurekstrar.
Stofnun starfsmannasjóða í þessu skyni er að ég hygg nýmæli hér á landi. Sjóðirnir eru hugsaðir sem sameignarfélög sem starfa í tengslum við tiltekin hlutafélög og eingöngu mynduð af starfsmönnum viðkomandi félags með því eina markmiði að kaupa hlutabréf þess félags. Með slíkum kaupum gefst starfsmönnum viðkomandi félags kostur á að draga tillag sitt frá skattskyldum tekjum. Enn fremur fá þeir tækifæri til aukinna áhrifa á starfsemi fyrirtækjanna.
Ekki er ætlast til að sjóðurinn sem heild fari með atkvæði aðila sinna á hluthafafundum, heldur ráði hver aðili um sig atkvæðum sínum í hlutfalli við eign sína í sjóðnum. Enginn einn aðili getur þó farið með meira atkvæðamagn en 5% af heildarhlutafé hlutafélags vegna aðildar sinnar að sjóðnum. Tel ég það mikinn kost við sjóðina að hver aðili ráði yfir sínu framlagi sjálfur.
Stofnun sjóða hjá hverju félagi gerir ráð fyrir minnst 30 starfsmönnum hjá félaginu og að hlutafé þess sé a.m.k. 3 millj. kr. Slíkir sjóðir eru líklegir til að vekja áhuga starfsmanna og hvetja til framleiðniaukningar. Þar sem menn hafa lagt fram fé til fyrirtækja sem þeir vinna við hefur það gefist mjög vel og veitt starfsmönnum aukin ítök í stjórnun félaganna.
Mönnum hefur orðið tíðrætt hér um laun almennings og slæma afkomu við umr. sem hafa orðið um frv. um tekju- og eignarskatt og frádrátt frá skattskyldum tekjum vegna hlutabréfakaupa og fjárfestingar í atvinnurekstri. Ekki skal dregið í efa að láglaunafólk á lítið aflögu til fjárfestinga og hlutabréfakaupa. Neysla undanfarna mánuði bendir samt til þess að talsvert af fólki hafi meira fé handa á milli en þarf fyrir brýnustu nauðsynjum. Það væri þjóðhagslega hagkvæmara ef eitthvað af því fé rynni frekar til uppbyggingar atvinnulífsins fyrir framtíðina en til tafarlausrar neyslu sem að skaðlausu mætti e.t.v. fresta um nokkurn tíma. Átak í sparnaði mundi einnig draga úr þeim verðbólguhugsunarhætti sem allt of lengi hefur verið hér á landi.
Þar sem fyrrnefndir starfsmannasjóðir eru nýmæli í fjárfestingum almennings þarf að kynna þá starfsmönnum og stjórnendum fyrirtækja. Gefa þarf út upplýsingabæklinga um að hvaða gagni slíkir sjóðir geta komið í atvinnulífinu og hvernig hægt er að stofna þá. Slík kynning gæti verið á vegum viðskrn. Hugsanlegt er að rn. feli ýmsum hagsmunasamtökum, svo sem starfsmannafélögum og samtökum atvinnurekenda, að gefa út slíka fræðslubæklinga um gagnsemi og nauðsyn slíkra sjóða án þess að miklu væri kostað til.
Þetta kann að þykja lítið mál, en ég hef þá trú að starfsmannasjóðir geti gegnt lykilhlutverki í framtíðinni og þess vegna megi ekki láta undir höfuð leggjast að koma tilgangi þeirra á framfæri við sem flesta.
Herra forseti. Það er von mín að nánari upplýsingar um títtnefnda starfsmannasjóði verði til þess að þeir verði stofnaðir sem víðast og þátttaka almennings í bráðnauðsynlegri uppbyggingu atvinnulífsins aukist á þann hátt.
Að lokinni þessari umr., herra forseti, legg ég til að málinu verði frestað og vísað til allshn.