27.02.1984
Sameinað þing: 57. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 3193 í B-deild Alþingistíðinda. (2747)
Rannsókn kjörbréfs
Forseti (Þorv. Garðar Kristjánsson):
Borist hefur svohljóðandi bréf:
„Reykjavík, 24. febr. 1984. Páll Pétursson, 2. þm. Norðurl. v., hefur í dag ritað mér á þessa leið:
„Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og mun ekki geta sinnt þingstörfum á næstunni leyfi ég mér með skírskotun til 138. gr. laga um kosningar til Alþingis að óska þess að 1. varamaður Framsfl. í Norðurl. v., Sverrir Sveinsson veitustjóri, Siglufirði, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.“
Þetta er yður hér með tilkynnt, herra forseti, með ósk um að fram fari í Sþ. rannsókn á kjörbréfi varamanns. Ingvar Gíslason, forseti Nd.“
Bréfi þessu fylgir kjörbréf Sverris Sveinssonar. Þá hefur borist svohljóðandi bréf:
„Reykjavík, 27. febr. 1984. Friðjón Þórðarson, 1. þm. Vesturl., hefur í dag ritað mér á þessa leið:
„Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og mun því ekki geta sinnt þingstörfum um sinn leyfi ég mér með skírskotun til 138. gr. laga um kosningar til Alþingis að óska þess að 1. varamaður Sjálfstfl. í Vesturlandskjördæmi, Sturla Böðvarsson sveitarstjóri, Stykkishólmi, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.“
Þetta er yður hér með tilkynnt, herra forseti, með ósk um að fram fari í Sþ. rannsókn á kjörbréfi varamanns. Ingvar Gíslason, forseti Nd.“
Bréfi þessu fylgir kjörbréf Sturlu Böðvarssonar.
Ég vil leyfa mér að óska þess að kjörbréfanefnd taki þessi kjörbréf til rannsóknar. Á meðan verður fundinum frestað. Fundinum er frestað í fimm mínútur. [Fundarhlé. ]