27.02.1984
Efri deild: 55. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 3210 í B-deild Alþingistíðinda. (2762)

197. mál, virðisaukaskattur

Davíð Aðalsteinsson:

Virðulegi forseti. Hæstv. fjmrh. hefur nú flutt langa og ítarlega ræðu um þetta frv. til l. um virðisaukaskatt. Ég hef ekki hugsað mér að fjalla um þetta frv. í löngu máli, síður en svo. Ég vildi segja hér örfá orð.

Það er laukrétt sem fram hefur komið að lengi hefur verið til umr. að breyta því skattkerfi sem hér hefur verið og á því lagastoð að meginhluta frá 1960 enda þótt söluskattur hafi verið innheimtur fyrr. Það er mín skoðun að á undanförnum árum hafi menn jafnvel heykst á því að gera betrumbætur á núverandi sölu­skattskerfi. E.t.v. á það að hluta til rót að rekja til þess að menn hafa um skeið haft í huga mjög mikla breytingu á innheimtu svipaðs skatts, eins og hér er komið fram, upptöku virðisaukaskatts, sem er náttúr­lega ekkert annað en söluskattur með öðru formi.

Ég vil, eins og hv. síðasti ræðumaður, ekki síst vekja athygli á þeim skattbreytingum og nýjum gjald­stofnum sem upptaka virðisaukaskatts hefði í för með sér. Það er nokkuð sterkt kveðið að orði, að mér finnst, í aths. með frv. enda þótt mér finnist að hæstv. ráðh. hafi farið mildilegum orðum um það. Mér finnst vera tekið nokkuð sterkt til orða í aths. með frv. á þá lund að óhjákvæmilegt sé að hafa sama skatthlutfall, einu gildir hvaða starfsemi eigi í hlut. Að vísu er hér getið um undantekningarákvæði en þau eru að mínum dómi alls ekki nógu víðtæk. Ég viðurkenni að undantekningar frá slíkri skattheimtu, eins og raunar hefur sannast með innheimtu söluskattsins, eru erfiðar í framkvæmd og valda því miður ruglingi. Hins vegar er rétt sem komið hefur fram að ef menn ætla að taka upp þennan virðisaukaskatt og hafa sem flesta þætti vöru og þjón­ustu þar inni í, m.a. matvæli, er augljóst að neyslu­vöruverð hækkar verulega og allt upp undir 20% á matvöru. Þetta er miklu meiri hækkun en svo að maður sjái fram úr þeim afleiðingum, a.m.k. í augnablikinu, sem það hefði í för með sér.

Ég segi þetta síður en svo vegna þess að ég sé á móti því að athuga og hafa sífellt í athugun okkar skattkerfi. Að mínum dómi er eðlilegt að það breytist með breyttum þjóðfélagsháttum, með breyttum viðskipta­háttum. Ég tek undir það, það er eðlilegt sjónarmið. En hins vegar megum við vara okkur á því að taka þarna of stór stökk í því sambandi að gera ekki greinarmun á hinni ýmsu starfsemi. T.d. varðandi matvöruna vil ég, eins og raunar hefur verið gert, grípa örstutt niður í aths. með frv. en þar stendur:

„Þrátt fyrir að virðisaukaskattur hafi verið innleiddur í flestum löndum Vestur-Evrópu er framkvæmd skatt­heimtu þó mjög mismunandi. T.d. er skatthlutfallið mjög mismunandi frá einu landi til annars, svo og hvaða starfsemi er skattskyld og hver ekki.

Í mörgum löndum Evrópu eru í gildi fleiri en eitt skatthlutfall eftir því hvaða starfsemi á í hlut og er fjöldi skatthlutfalla og flokkun einstakra tegunda af vörum og þjónustu á þessi skatthlutföll mjög mismunandi eftir löndum. Þó er lægsta hlutfallið undantekningarlaust á matvöru og öðrum nauðsynjavörum.“ Að vísu mun það vera svipað eða sama í Danmörku, Noregi og Svíþjóð.

Þetta leiðir huga okkar að sjálfsögðu að því að þrátt fyrir að þau lönd, sem hér er getið um, hafi búið við þess konar skattheimtu, sem hér er verið að fjalla um, hefur ekki tekist af ýmsum ástæðum að koma á sama skatthlutfalli. Ég hygg að í mörgum tilvikum hafi verið gengið til baka, ef ég má svo að orði komast, þ.e.a.s. skatthlutfall hafi verið lækkað frá því sem upphaflega var framkvæmt við gildistöku virðisaukaskatts í við­komandi löndum.

Það eru margar fleiri spurningar sem vakna að sjálfsögðu en þessar. Ég vil lýsa þeirri skoðun minni að ég tel út af fyrir sig ekki að það þurfi að vera óeðlilegt í öllum tilvikum að neyslu sé með einhverjum hætti stýrt á grundvelli skattlagningar. Ég tel að í sumum tilvikum geti það verið fullkomlega réttlætanlegt. Hitt er það að erfitt er að greina þarna sundur, þ.e.a.s. setja á einn bekk það sem við viljum kalla eðlilega og brýna neyslu, nauðþurftir, og svo á annan bekk eyðsluna. Þarna er erfitt að setja mörk á milli og ekki síst þegar við förum að huga að því hvað byggir upp framtíðarstoðir í okkar efnahagskerfi. Ég skal viður­kenna að það sem okkar efnahagskerfi þyrfti kannske fyrst og fremst á að halda í dag væri að okkur væri lagnara og við gengjum fremur fram í því en hitt að framleiða margt af því lífsgæðaglingri sem við þurfum að eyða dýrmætum gjaldeyri til að kaupa. En ekki meira um það.

Komið hefur fram í máli hæstv. ráðh., sem er jafnframt skýrt í aths. með frv., að upptaka og fram­kvæmd virðisaukaskatts hefur í för með sér verulega meiri kostnað en innheimta söluskattsins. Að þessu þarf að sjálfsögðu að huga. Sannleikurinn er sá að innheimta söluskattsins hefur kostað sáralítið. Þar hafa að vísu ekki mjög margir komið til miðað við innheimtu eða skil á virðisaukaskatti ef upp yrði tekinn. Það er ekki víst að menn séu tilbúnir til þess að auka á þessu sviði kostnað vegna innheimtu skatts. Það þarf að meta, ekki síst hvort þessi skattur innheimtist betur og eðli­legar, sem ég út af fyrir sig efast ekki um þegar um er að ræða að innheimta skatt á fleiri viðskiptastigum en einvörðungu í hinu síðasta. Ég efast ekki um að skatturinn myndi fremur skila sér þegar um er að ræða lægri fjárhæð hverju sinni sem innheimtur er . Skv. frv. er gert ráð fyrir að virðisaukaskatturinn yrði 21%. Með þeirri prósentu er skilað viðlíka fjárhæð og núverandi söluskattur ásamt söluskattsauka og orkujöfnunargjaldi sem samanlagt gerir 23,5%. Ég geri fremur ráð fyrir að þeir útreikningar sem hér eru séu réttir. Hitt vil ég minna á að ég hef grun um að til grundvallar þeirri tölu liggi það að virðisaukaskattur, ef upp yrði tekinn, leggist á í langtum fleiri tilvikum en samstaða mundi verða um.

Ég lofaði því að tala ekki langt mál um þetta frv. Ég vil að síðustu leggja áherslu á að fjh.- og viðskn. vandi ekki síður til verka um þetta frv. en önnur sem hún fjallar um. Við skulum ekki gera hér breytingar breytinganna vegna, síður en svo. Við þurfum að athuga þetta mjög vel. Ég endurtek það sem ég sagði áðan: Ég er ekki í mínu máli að mæla gegn því í sjálfu sér að upp verði tekinn einhver slíkur skattur sem þetta frv. felur í sér. Ég vil aðeins leggja áherslu á að menn reyni eftir föngum að gera sér grein fyrir viðverandi efnahagsaðstæðum — og e.t.v. langvarandi, eftir atvikum góðar eða slæmar-og að við reynum að sníða þetta sem best eftir því hagkerfi og þeim aðstæðum sem við búum við hér heima.