28.02.1984
Sameinað þing: 59. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 3231 í B-deild Alþingistíðinda. (2791)
173. mál, takmörkun fiskveiða í skammdeginu
Sjútvrh. (Halldór Ásgrímsson):
Herra forseti. Ég ætla að halda mig við þá till. sem hér er flutt en hún hljóðar þannig:
„Alþingi ályktar að fela ríkisstj. að beita sér fyrir því að fiskveiðar verði mjög takmarkaðar í svartasta skammdeginu.“
Ég vil leyfa mér að halda því fram að það hafi verið stefna á undangengnum árum að takmarka fiskveiðar eftir því sem talið er skynsamlegt eins og verða má í svartasta skammdeginu. Þannig voru loðnuveiðar stöðvaðar í des., þorskveiðibann tók gildi í des. Hitt er svo annað mál að ekki er hægt að banna mönnum að gera alla hluti í svartasta skammdeginu. Það bannar enginn manni að bjarga húsinu sínum frá skemmdum jafnvel í svartasta skammdeginu og jafnvel þótt menn þurfi að fara út að nóttu til. Á vissum tímum er ekki hægt að banna mönnum að sækja í ákveðna fiskstofna. T.d. er ufsinn verðmætastur í svartasta skammdeginu. Það er, eins og hér hefur komið fram, fiskur sem er mjög verðmætur á erlendum mörkuðum um áramót. Rækjuveiði innfjarða er talið heppilegt að stunda í svartasta skammdeginu. Skelveiðar á Breiðafirði, skelin er tiltölulega hagstæð einmitt á þessu tímabili en fer síðan rýrnandi þegar komið er fram á þennan tíma nú, þannig að þessi mál eru með margvíslegum hætti.
Ég er þeirrar skoðunar að mjög erfitt sé að draga ákveðna línu í þessum efnum. Hér verði að reyna að stjórna og koma á reglum í fullu samráði við hagsmunaaðila og ég tel að það hafi verið gert á undanförnum árum. Að vísu hafa verið ágreiningsmál uppi milli sjómanna og útvegsmanna um hvort ekki væri rétt að stöðva allan flotann t.d. um áramót. Það hefur sérstaklega verið áhugamál sjómanna að gera það og það hefur verið gert að langmestu leyti. En eftir hafa staðið ákveðin skip sem stundað hafa siglingar árum saman og sinnt ákveðnum mörkuðum sem eru okkur Íslendingum verðmætir.
Einnig þarf að hyggja að því í þessu sambandi hvenær við gerum mest verðmæti úr okkar auðlindum. Ég hef enga trú á því að sjómennska verði almennt stunduð í tímavinnu og skv. almanaki. Þar verða menn að reyna að vega og meta eftir því sem menn best þekkja til í viðkomandi verstöðvum og eftir þeirri þekkingu sem þeir hafa á viðkomandi fiskistofnum og þar er erfitt að setja um ákveðnar reglur. Hitt er svo annað mál að það er mjög eðlilegt að menn reyni að komast hjá því, og ég skil þessa till. þannig, að sækja sjó þegar verst er tíðarfarið og ég held að íslensk sjómannastétt hafi gert það og það leiki sér enginn að því að fara út í slíka hluti. Hins vegar Liggur alveg fyrir að það var slík tilhneiging m.a. í loðnuveiðinni á sínum tíma. Menn sóttu mjög fast í mjög vondu veðri og það lá við slysum. En það var áður en kvótafyrirkomutag var tekið upp í loðnuveiðinni.
Ég ætla ekki að fara að blanda þessari till. saman við atmenna stjórnun fiskveiða enda mun aldrei verða hægt að flokka takmörkun á fiskveiðum í svartasta skammdeginu undir beina stjórnun fiskveiða. Þar eru önnur sjónarmið sem koma fram og slík takmörkun getur aldrei komið í staðinn fyrir stjórnun fiskveiða. En ég vildi aðeins benda á að ég tel að menn hafi leitast við á undanförnum árum að takmarka fiskveiðar í svartasta skammdeginu án þess að það kæmi um of við þá verðmætasköpun sem verður að eiga sér stað í landinu og veitir ekki af um þessar mundir.