28.02.1984
Sameinað þing: 59. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 3232 í B-deild Alþingistíðinda. (2792)

173. mál, takmörkun fiskveiða í skammdeginu

Flm. (Eyjólfur Konráð Jónsson):

Herra forseti. Mig langar aðeins til að þakka ræðumönnum öllum fyrir þessar umr. og fyrir það sem þeir hafa sagt. Við höfum kannske ekki verið alveg sammála um alla hluti, en ég held þó að málin hafi skýrst og þessi tími því ekki illa notaður.

Ég vil aðeins víkja að örfáum atriðum, sem gætu valdið misskilningi, í ummælum manna hér. Með leyfi forseta les ég upphaf grg. till., sem við hér ræðum, en það er svona:

„Þegar menn nú telja sig tilneydda að setja reglur um meiri eða minni takmörkun fiskveiða virðist liggja beint við að draga mjög úr veiðum á þeim árstíma þegar þær eru í senn óhagstæðastar og hættulegastar. Fiskvinnsla er einnig óarðbær á þessum árstíma og atvinna slitrótt hjá landverkafólki.“

Að þessu vék ég í framsöguræðunni, þó kannske ekki nægilega skýrt. Ég býst ekki við að mér hefði dottið í hug að flytja þessa till. ef ekki háttaði þannig til, að það þarf að stöðva flotann meira og minna á hverju ári ef fiskigengd verður ekki meiri en spáð er. Og þá er það auðvitað augljóst mál að það ber að gera þegar veiðarnar eru allt í senn: hættulegastar, dýrastar og veiðarfæratjónið mest og olíunotkun mest og aflinn nýtist hvað verst í landi og vinnuaflið, á hátíðisdögum og í erfiðleikum skammdegisins. Um þetta held ég nú að menn þurfi ekkert að deila. Auðvitað er þetta takmörkun veiða en það er heldur ekki orðað sterkara en takmörkun veiða. Hér kom fram að siglingar gætu verið hagstæðastar á stærstu og öflugustu togurunum um áramótin. Ég skal ekkert neita því að það gæti verið ástæða til að það væri heimilað þó að þessi till. yrði samþykkt. Hún er ekki afdráttartaus um að það eigi að stöðva allar veiðar. Eins má kannske segja um innfjarðarveiðar á skelfiski að það gæti vel verið hægt að stunda þær að einhverju leyti.

Till. er auðvitað flutt fyrst og fremst til þess að fá umr. á dálítið annað stig og kannske á nokkuð annan veg en hún var hér fyrir áramótin þegar menn sáu ekki annað en kvóta. Við vitum að það eru kvótar hér á mörgum veiðum, og ég er sérstaklega þakklátur hæstv. sjútvrh. fyrir að rekja það hér að við verðum sjálfsagt að notast við hann að einhverju leyti í sumum veiðum, en við getum áreiðanlega mildað hann með þessum hætti. Nú kann svo að fara, og vonandi fer svo, að þorskveiðar verði mun meiri en fiskifræðingar hafa spáð. Það kann jafnvel svo að fara að það verði eins með þorskinn og loðnuna að það verði hægt að afnema kvótann. Kvótinn í loðnuveiðum núna er búinn, það tekst ekki einu sinni að veiða þá loðnu sem fiskifræðingar telja nú eðlilegt að veiða. Ég segi: við getum öll fagnað yfir því að þessi hluti kvótans er þegar hruninn vegna þess að loðnan varð meiri. Sérstaklega óska ég auðvitað hæstv. sjútvrh. til hamingju með að þurfa þó ekki að kljást við þetta.

Það getur verið að þegar komið er fram yfir mitt ár séu svo og svo mörg skip búin með sinn kvóta og verði þess vegna kannske bundin í lengri tíma. En ég er að leggja til hér að hafður verði sem einhvers konar viðmiðunartími einn og hálfur mánuður í svartasta skammdeginu, síðan um páska, þegar vinnuafl nýtist illa og miklir frídagar eru, og jafnvel hvítasunnuhelgi líka eins og hér var stungið upp á og síðan í sumarfríatímanum. Það er atveg rétt að nægilega mörg höft eru fyrir í sjávarútvegi, en það er náttúrlega verið að setja á núna mestu höftin sem um getur. Kvóta á öll skip sem takmarkar veiðitímann og auðvitað aflamagnið. Það má kannske segja að það mundi lítið draga úr veiðum að stöðva flotann eitthvað lengur en gert er. Það er alveg rétt að megnið af flotanum er stöðvað um sjálfa hátíðisdagana. Ég er að leggja til að það verði gert lengur. Það dregur kannske ekki nein ósköp úr veiðum, en það sparar a.m.k. það fé sem fer í að reyna að afla þessara fáu titta sem þá fást með langdýrustu veiðum sem stundaðar eru á landinu, og maður er þá ekki að hætta mannslífum á sama tíma eða vera með smáfleytur á sjó.

Mér finnst þetta vera svo augljóst mál að að þessu beri að hyggja og ég efast ekkert um að hæstv. sjútvrh. og hverjir þeir sem með stjórn þessara mála fara í framtíðinni muni gera það. En aðalatriðið er að hafa manndóm í sér, eins og hér hefur gerst í þessum umr., til að skoða allar leiðir, einn og allir sem til máls hafa tekið, til þess að ræða málin öfga- og hleypidómalaust og reyna að skýra þau frá öllum sjónarmiðum. Svo kann að fara, og vonandi fer svo, að þessi kvóti verði ekki eins bölvaður og ég hef haldið. Hann er búinn í loðnuveiðunum og vonandi verður fiskigengd það mikil að hann verði ekki jafnerfiður í framkvæmd eins og á horfist nú. Þess vegna skulum við bara bíða og sjá.