29.02.1984
Efri deild: 56. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 3276 í B-deild Alþingistíðinda. (2810)
212. mál, skógrækt
Ragnar Arnalds:
Virðulegi forseti. Ég er eindregið hlynntur því frv. sem hér er flutt enda þótt ég sé að vísu, sem áhugamaður um skógrækt kannske fyrst og fremst með það í huga að skógur á Íslandi geti orðið íbúum landsins til yndisauka og til fegurðarauka fyrir landið. Hitt er mér ekki alveg jafnljóst, hversu mikil not verða af skógum fyrir landbúnað þegar fram líða stundir. En ég tel að þau áform sem í þessu frv. felast eigi fyllsta rétt á sér í ákveðnum mæli ef ekki er um allt of stórar fjárhæðir að ræða og sjálfsagt sé að gera tilraunir í þessa átt og að ríkið styðji þá viðleitni með þeim hætti sem frv. gerir ráð fyrir.
Í frv. er bersýnilega um tvenns konar stuðning að ræða. Það er annars vegar stuðningur skv. 2. gr., styrkir til þeirra sem vilja koma upp trjálundum á jörðum sínum, og svo hins vegar skv. 3. gr., styrkir til ræktunar nytjaskóga á bújörðum þar sem skógræktarskilyrði eru vænleg. Ég vil taka það fram um fyrri áformin, sem munu eiga stoð í núverandi skógræktarlögum, að ég teldi eðlilegra að orða þetta á þann veg að heimilt væri að styrkja þá sem vilja koma upp trjálundum á landi sínu. Vegna þess að ég á ekki sæti í þeirri nefnd sem fær málið til meðferðar vildi ég koma þessari ábendingu á framfæri. Mér finnst ekki að það eigi að setja það að skilyrði fyrir því að menn geti fengið styrk til þess að koma upp trjálundum að þeir eigi jörðina þar sem trjálundurinn er ræktaður. Það getur vel staðið á með ýmsum hætti, að menn hafi fengið leigða nokkra hektara lands til skógræktar eða þá keypt ákveðið landsvæði út úr jörð og ætla sér að rækta þar skóg án þess að um búrekstur sé að ræða hjá viðkomandi aðila. Þá finnst mér að þeir sem vilja friða landið og auka skóg á Íslandi með því að leggja til mikið fé, erfiði og vinnu, eigi jafnan rétt til þess þótt þeir séu ekki jarðeigendur eða búrekstraraðilar eins og þeir sem búrekstur stunda. Ég vona að menn geri sér fulla grein fyrir því sem ég á við. Hugmynd mín um breytingu er fyrst og fremst sú að þarna væri orðunum „á jörðum“ í 2. gr. frv. breytt í: „á landi“. Það hefur að sjálfsögðu dálítið víðtækari merkingu og mundi ná til fleiri aðila. Ég hygg að kostnaðarauki af þessu þyrfti ekki að vera svo yfirþyrmandi og í öllu falli væri þetta sanngjörn og eðlileg niðurstaða.
Varðandi hitt málið að ríkissjóður styrki ræktun nytjaskóga á bújörðum þar sem skógræktarskilyrði eru vænleg ætla ég ekki að öðru leyti að fjölyrða um þau áform. Vel má vera að þetta reynist raunhæft en það má líka vera að svo fari að eftir 25–30 ár verði ekki þau not fyrir íslenskt timbur sem menn hyggja nú. Það er auðvitað alltaf tekin einhver áhætta í þessum efnum. Ég er alveg reiðubúinn að styðja það að þessi áhætta sé tekin en ég vil vekja athygli á því að ekki þarf endilega að fara saman að skógræktarskilyrði séu vænleg, eins og segir í 3. gr. frv., annars vegar og svo hins vegar að skógræktarskilyrði séu vænlegust, eins og segir aftur síðar í frv. þar sem bent er á fimm sérstök héruð þar sem skógræktarskilyrði séu vænlegust. Ég vænti þess að skilja megi frv. og þennan mun á þessum tveimur orðum á þennan veg, að styrkir til ræktunar nytjaskóga séu ekki bundnir við þau tilteknu svæði sem nefnd eru á bls. 4 með teikningum á bls. 5. Þó að þetta séu áreiðanlega vænlegustu svæðin eru vafalaust fleiri svæði á landinu sem eru vænleg, eins og segir hér í 3. gr. Ég vona að það eigi að skilja frv. á þann veg að þau geti einnig komið til greina.
Ég nefni bara sem dæmi þar sem ég þekki til, að á nokkrum stöðum í Skagafirði er talið að skógræktarskilyrði séu vænleg og reynslan hefur sýnt það. Hins vegar dettur mér ekki í hug að halda að þau séu jafn vænleg og á þeim stöðum sem hér eru tilgreindir, enda er það ekki eitt af þeim svæðum sem hér eru nefnd. Það eru vafalaust betri skógræktarskilyrði á Héraði eða innst í Eyjafirði svo að nefnd séu dæmi. Vafalaust eru þar vænlegust skilyrði.
Ég vona að það sé réttur skilningur hjá mér, hæstv. ráðh. andmælir því ef það er misskilningur, að það sé gert ráð fyrir því að fleiri svæði geti komið þarna til greina en þau sem eru tiltekin í grg.