29.02.1984
Neðri deild: 53. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 3287 í B-deild Alþingistíðinda. (2828)

31. mál, kosningar til Alþingis

Ólafur Þ. Þórðarson:

Herra forseti. Það er vel að Alþb. hefur notað jólin og það sem liðið er af þessu ári til að taka þá ákvörðun að það ætli að standa við það að jafnréttismál á fleiri sviðum verði til afgreiðslu hér í þinginu. En það skýtur mjög skökku við að slá því hér fram að þeir Alþb.-menn ætli að ganga eftir því við hæstv. ríkisstj.

Ég vil minna á það alveg sérstaklega að það frv. sem hv. 3. þm. Reykv. vék hér að áðan er flutt af formönnum stjórnmálaflokkanna, ekki af ríkisstj. Og ef þeir ætla að vera sjálfum sér samkvæmir hljóta þeir, formenn stjórnmálaflokkanna, að setjast niður og fara að klára það verk sem þeir lofuðu á sínum tíma, þannig að það sé eitthvað annað og meira en skrum í þingsölum sem birtist í yfirlýsingum eins og þeirri sem hér kom fram. Mér þætti sanngjarnt að þeir færu að setjast niður og klára sitt verk, þannig að hægt væri að ræða þessi mál nokkuð samhliða hér í þinginu.

Það er út af fyrir sig góðra gjalda vert að hv. 3. þm. Reykv. hefur notað jólin og þennan tíma ársins til að taka þá ákvörðun að hann og hans flokkur séu reiðubúnir að standa við þetta. En þá er líka rétt að þeir fari að koma sér að verki og fari að vinna þau frv. sem þeir lofuðu að koma á framfæri.

Ég tel rétt, herra forseti, að vekja á því athygli að mál afgreiðast ekki hér í þinginu með yfirlýsingum um að þeir ætli að gera þetta eða hitt, heldur með því að þeir leggi fram frv. til staðfestingar á þeim yfirlýsingum.