05.03.1984
Neðri deild: 54. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 3352 í B-deild Alþingistíðinda. (2878)

Umræður utan dagskrár

Fjmrh. (Albert Guðmundsson):

Virðulegi forseti. Ég skal reyna að leitast við að svara hv. 2. landsk. þm., en 1. spurning var: Telur fjmrh. að sá gífurlegi mismunur sem fram kemur á ómældri yfirvinnu og bílastyrkjum milli kynja hjá ríkisstofnunum sé eðlilegur þegar milli 92 og 95% af þeirri upphæð sem greidd er í þessa liði rennur til karla en aðeins 5–8% til kvenna?

Á þessari stundu get ég ekki sagt hvort um eðlilegan eða óeðlilegan mun er að ræða á ómældri yfirvinnu og bílastyrkjum milli kynja hjá ríkisstofnunum, en ef í ljós kemur í þeirri könnun sem er í gangi í framhaldi af fyrri spurningum hv. þm. að verulegur munur er þar á þarf það athugunar við. Ég mun beita mér fyrir því að niðurstaða liggi fyrir mjög fljótlega og vona ég að hv. þm. láti sér nægja að fá skrifleg svör frá mér.

2. spurningin hljóðar svo: Telur fjmrh. að þessar upplýsingar kalli á sérstaka athugun af hálfu fjmrn. með hliðsjón af því að líkur séu á að 30 ára gömul lög um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins séu brotin svo og lög um jafnrétti kvenna og karla frá 1976, sem fela í sér að óheimilt sé atvinnurekanda að mismuna starfsfólki eftir kynferði að því er varðar veitingu hvers konar hlunninda?

Ég verð auðvitað sem fjmrh. að halda þeirri könnun áfram sem ég gat um áðan og taka inn í þá könnun það sem felst í 2. spurningunni um hvort lögin um jafnrétti kvenna og karla á þessu sviði séu brotin. Það segir sig sjálft að það væri langt gengið ef ríkið gengi á undan með að brjóta sín eigin lög. Ég get ekki svarað þessu öðruvísi en að Alþingi hefur samið lög og þau lög eru til að fara eftir og ég tel að ríkið eigi að gefa þar fordæmi sem öðrum verður til fyrirmyndar.

En 3. spurningin er þannig: Er fjmrh. tilbúinn að beita sér fyrir að samræmd verði kjör hjá körlum og konum sem vinna hlið við hlið ef í ljós kemur að karlmenn beri meira úr býtum fyrir sömu eða sambærileg störf með launauppbótum sem felast í bílastyrkjum og ómældri yfirvinnu?

Ég hef eiginlega ekkert annað en sama svarið við þessari spurningu. Þetta er í athugun í rn. og ég mun svara því skriflega ásamt tveimur fyrri spurningunum. En ég segi það sem mína skoðun — og hún hefur komið fram á Alþingi áður — að sé um sambærileg störf og sambærilega menntun karla og kvenna að ræða tel ég sjálfsagt að jafna þar á milli. Um launauppbætur o. fl. veit ég ekki nógu mikið á þessu stigi til að geta svarað spurningunni eins skýrt og virðulegur þm. óskaði eftir að ég mundi gera, en ég mun svara þessum spurningum innan tíðar. Þetta er í vinnslu í launadeild fjmrn. og virðulegur þm. mun fá skrifleg svör eins fljótt og ég ræð við.

Í fjórða lagi er spurt: Eru þeir aðilar sem ekki hafa gefið upplýsingar eins og lög nr. 31 frá 1982 kveða á um undanþegnir upplýsingaskyldu og ef svo er á hvaða forsendum? Síðan var spurt: Hvað hyggst ráðh. gera vegna undandráttar stofnana við að svara fsp. frá Alþingi?

Þar er mitt svar: Eins og fram kom í skriflegu svari mínu við fsp. hv. fyrirspyrjanda voru það níu stofnanir sem ekki skiluðu ríkisbókhaldi umbeðnum upplýsingum. Að frátöldum Skálholtsskóla er alfarið um stofnanir að ræða sem ekki geta talist ríkisstofnanir í venjulegum skilningi þessa orðs. Annars vegar er um að ræða stofnanir sem ríkissjóður er ekki beinn eignaraðili að, oft eins konar sjálfseignarstofnanir. Meðal þeirra má nefna Fiskifélag Íslands, Búnaðarfélag Íslands, Brunabótafélag Íslands, Síldarútvegsnefnd og Aflatryggingasjóð sjávarútvegsins. Hins vegar er um að ræða sameignarfélög eða fyrirtæki með eignaraðild ríkissjóðs, eins og Orkubú Vestfjarða og Landsvirkjun. Eftirtaldar þessara stofnana fá fjárveitingu á fjárlögum ár hvert: Búnaðarfétag Íslands, Fiskifélag Íslands og Aflatryggingasjóður. Hinar stofnanirnar, sem allar eru í B-hluta fjárlaga eða ríkisreiknings, fá hins vegar ekki bein framlög úr ríkissjóði.

Núgildandi ákvæði um gerð ríkisreiknings eru að stofni til frá 1966. Á þeim tíma sem síðan er liðinn hefur lögum um ýmsar stofnanir verið breytt, nýjar stofnanir orðið til og starfshættir annarra breyst. Meðal annars af þessum ástæðum gætir nú nokkurs ósamræmis um hverjar af þessum stofnunum eru teknar með í ríkissjóðsuppgjörum. Ríkir raunar nokkur vafi á hvaða aðilar falli undir almenn ákvæði laga um ríkisbókhald, gerð ríkisreiknings og fjárlaga. Endurspeglast þessi vafi í afstöðu margra þeirra stofnana sem neitað hafa að gefa upplýsingar sem nauðsynlegar voru til að gefa svör við fsp. hv. fyrirspyrjanda. Hef ég ákveðið að fela ríkisreikningsnefnd, sem starfar skv. 70. gr. laga um ríkisbókhald o. fl., að athuga þessi mál og er fastlega að vænta að afstaða um þessi mál verði tekin fyrir gerð næstu fjárlaga. Mun ég biðja ríkisreikningsnefnd að athuga hvaða stofnanir, sjóðir og fyrirtæki skuli falla undir samræmda bókhaldsmeðferð ríkisins skv. lögum nr. 52 frá 1966. Jafnframt mun ég fela nefndinni að gera tillögur um með hvaða hætti Alþingi verði best gerð grein fyrir fjárreiðum þeirra fyrirtækja og félaga sem falla undir A- og B-hluta ríkissjóðs, en hér er um að ræða félög sem þiggja fjárstyrk úr ríkissjóði eða ríkissjóður er eignaraðili að.

Um það sérstaka atriði er þessi fsp. lýtur að vil ég taka fram að ég hef þegar gefið umbeðnar upplýsingar að því marki sem unnt er á grundvelli ríkisreiknings. Að sjálfsögðu er það eðlileg krafa að Alþingi séu veittar hliðstæðar upplýsingar um aðrar stofnanir sem fá rekstrarfé sitt úr ríkissjóði eða stofnanir sem lúta yfirstjórn ráðh. skv. lögum. Slík upplýsingagjöf er hins vegar ekki á mínu færi á grundvelli upplýsinga úr ríkisbókhaldi miðað við þá framkvæmd sem ríkt hefur á undanförnum árum. Tel ég því rétt að beina fsp. varðandi þessar stofnanir til þess ráðh. sem þær heyra undir.

Virðulegi forseti. Ég vona að ég hafi svarað nægjanlega fsp. fyrirspyrjanda að öðru leyti en því að það sem á vantar kemur skriflega eins fljótt og auðið er.