05.03.1984
Neðri deild: 54. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 3358 í B-deild Alþingistíðinda. (2881)
Umræður utan dagskrár
Svavar Gestsson:
Herra forseti. Ég skal verða við tilmælum forseta um að stytta mjög mál mitt þó að hér sé um að ræða mikilvægt mál sem ástæða væri til að ræða mjög ítarlega, eins og fyrri ræðumenn hafa gert í þessari umr.
Ég kveð mér aðallega hljóðs í fyrsta lagi til að þakka hv. þm. Jóhönnu Sigurðardóttur fyrir að hefja þessa umr. og fyrir að hafa óskað eftir þeim upplýsingum sem fram hafa komið frá hæstv. fjmrh. í þessu efni. Ég kveð mér í annan stað hljóðs til að vekja athygli á því, að þó að nokkrar stofnanir hafi neitað að gefa tilteknar upplýsingar er ekki þar með sagt að menn eigi að láta þar staðar numið. Ég held að óhjákvæmilegt sé að Alþingi beini fsp. til viðkomandi fagráðherra í þessu efni, þ. e. þeirra ráðh. sem hafa með að gera þær stofnanir sem neita að gefa upplýsingar. Í þessum efnum dettur mér í hug stofnun eins og Landsvirkjun, sem sjálfsagt er að óska eftir við hæstv. iðnrh. að hann gefi hér upp lýsingar um, og hið sama á við um aðrar stofnanir. Ég held að nauðsynlegt sé að bera fram fsp. til viðkomandi fagráðh. um þeirra stofnanir því að það á enginn að geta skotið sér undan því að gefa upplýsingar í þessu efni. Það á að vera algjörlega útilokað að slíkt gerist og ég held að það sé nauðsynlegt að þingið fylgi eftir því verki sem hafið er með fsp. hv. þm. Jóhönnu Sigurðardóttur.
Í annan stað vil ég minna á að að undanförnu hefur mikið verið rætt um kaup og kjör, m. a. í ræðu hv. 7. landsk. þm. Kristínar Halldórsdóttur, í tengslum við þá kjarasamninga sem gerðir hafa verið. Ég held að það sé alveg óhjákvæmilegt að menn geri sér grein fyrir að þeir kjarasamningar snerta stöðu kvenna á vinnumarkaðnum alveg sérstaklega, sérstaklega þær konur sem starfa í útflutningsgreinum og eru í rauninni sá hópur vinnandi fólks í þeim greinum sem fjölmennastur er. Ég held að nauðsynlegt sé að læra það af reynslu liðinna mánaða að gott er að halda ráðstefnur og gott er að halda fundi og gott er að gera ályktanir, en mestu skiptir bersýnilega að fólk láti til sín taka þegar ákvarðanir eru teknar um launin, þ. e. í kjarasamningunum sjálfum. Mér finnst að í þeim kjarasamningum sem nú hafa verið gerðir hafi ekki verið tillit tekið til þeirrar stöðu kvenna sem hér er um að ræða í landinu og ekki hafi verið hlustað á þá baráttu sem fram hefur farið á þeirra vegum á undanförnum mánuðum. Ég held því að óhjákvæmilegt sé að af reynslu liðinna mánaða verði dreginn ákveðinn lærdómur, sem sé sá, að konur beiti því afli á vinnumarkaðnum sem þær hafa og geta haft. Ég held að þær eigi ekki og megi ekki láta lítillækka sig með þeim hætti sem gerist þegar ekkert tillit er tekið til þeirra sjónarmiða nema með almennum vendingum, almennum orðum, almennri undirtekt undir þau sjónarmið sem fram koma, en það er ekkert aðhafst nema síður sé þegar úrslitum er ráðið um þessi mál, t. d. við gerð kjarasamninga. Ég tel að þetta sé mjög alvarlegt og skipti mjög miklu máli fyrir þá víðtæku kvennahreyfingu sem hefur verið í gangi á undanförnum mánuðum.
Loks, herra forseti, til að lengja þessa umr. ekki frekar, þá skildi ég hæstv. fjmrh. svo, að hann tæki vel í þau almennu jöfnunarsjónarmið sem fram komu í máli hv. fyrirspyrjanda. Þessa vegna fyndist mér eðlilegt í beinu framhaldi af því að fara þess á leit við hæstv. fjmrh. að hann tryggi Alþingi upplýsingar um hvernig gengur að framkvæma þau jöfnunarsjónarmið sem hann lofaðist til að framkvæma í ráðuneyti sínu. Væri eðlilegt að upplýsingar um þetta kæmu reglulega inn í fjvn. og þeir hv. þm. sem þar sitja gangi eftir þeim upplýsingum frá fjmrh. jafnharðan og verkinu miðar fram hjá honum.