05.03.1984
Neðri deild: 54. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 3362 í B-deild Alþingistíðinda. (2885)
156. mál, sveitarstjórnarkosningar
Flm. (Þorsteinn Pálsson):
Herra forseti. Ég mæli hér fyrir frv. til l. um breytingu á lögum um sveitarstjórnarkosningar á þskj. 223. Flm. þessa frv. eru formenn Sjálfstfl., Framsfl., Alþb. og Alþfl. Það var fyrst birt sem fylgiskjal með frv. til stjórnskipunarlaga sem samþykkt var á síðasta þingi. Það er nú endurflutt í tengslum við frv. til staðfestingar á þeim stjórnskipunarlögum og frv. til l. um kosningar til Alþingis, sem einnig er á dagskrá þessa fundar hér í dag.
Efni þessa frv. er í beinum tengslum við frv. um breytingu á lögum um kosningar til Alþingis. Það gerir í fyrsta lagi ráð fyrir því að þrátt fyrir þær breytingar sem gert er ráð fyrir að verði samkvæmt frv. um breytingu á lögum um kosningar til Alþingis að því er varðar það atriði hvernig finna eigi hve margir frambjóðendur hafa náð kosningu af hverjum lista, þá skuli óbreytt skipan haldast að því er varðar kosningar í sveitarstjórnir. Í öðru lagi er gert ráð fyrir því að sama regla gildi varðandi möguleika kjósenda á að hafa áhrif á það hvernig listum er breytt, bæði að því er varðar kosningar til Alþingis og til sveitarstjórna. Hér er því einungis um að ræða samræmingaratriði við frv. það sem hér liggur fyrir varðandi kosningar til Alþingis. Frv. er þannig í beinum tengslum við það frv. og er eðlilegt að efnisleg umr. fari fram um það efni og hefur orðið samkomulag um það milli þingflokka að svo verði. Ég ætla því ekki á þessu stigi að hafa fleiri orð um efni frv. en legg til, herra forseti, að því verði að lokinni þessari umr. vísað til 2. umr. og til þeirrar sérstöku nefndar sem lagt hefur verið til að kosin verði í þessari deild til að fjalla um frv. til breytingar á lögum um kosningar til Alþingis og frv. til staðfestingar á stjórnskipunarlögum.