31.10.1983
Efri deild: 10. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 419 í B-deild Alþingistíðinda. (289)

42. mál, orkulög

Iðnrh. (Sverrir Hermannsson):

Virðulegi forseti. Hv. 5. þm. Vesturl. velti fyrir sér hvert framhald yrði á meðferð þessa máls í hv. nefnd. Með vísun til þess sem segir í stjórnaryfirlýsingu, til að mynda þetta berum orðum, að sveitarfélögin skuli sjálf ákveða verð á þjónustu sinni, þ.á m. rekstri hitaveitu o.s.frv. er auðvitað lagt til að þetta frv. til staðfestingar á brbl., um vald iðnrh. til að taka ákvörðun um orkuverð, verði fellt. Ég á helst ekki von á því að framhaldið verði með öðru móti. Um þetta var enginn ágreiningur í hæstv. ríkisstj., sem af líkum leiðir.

Varðandi orð hv. 2. þm. Austurl., þá get ég haft skammar signingar yfir svari til hans þeirra vegna. Eins og fram kom í framsögu minni er það ekki stefna núv. ríkisstj. að haga málum með þessum hætti, en að sjálfsögðu, ef allt ætlar úr skorðum að ganga, verðlag orkunnar í landinu eins og nú standa sakir, þá gæti auðvitað komið til þess að ríkisstj. yrði að grípa í taumana. Ég tók það fram að það er skoðun mín og hæstv. ríkisstj. að það sé ekkert, alls ekkert svigrúm til að hækka orkuverð frá því sem það nú er, t.d. til rafhitunar húsa og hjá hitaveitum, sem hæst orkuverð hafa, alls ekkert.

Hitt kann að vera, að það finnist hitaveitur, ég skal ekki um það dæma, sem selja orku sína svo ódýrt að þær teldu fært þess vegna að taka ákvörðun um hækkun á hitaveitugjöldum til að mynda. Um það skal ég ekki dæma. En það verður þá að vera á þeirra ábyrgð. Auðvitað mun ríkisstj. fylgjast með að þessi mál gangi ekki úr skorðum og, eins og ég tók fram, það er brýnasta nauðsyn að finna ráð til að létta þessum ofurþunga gjalda af fimmtungi þjóðarinnar, þar sem þessi gjöld, húshitunarkostnaðurinn, eru sannanlega að sliga heimilin. En sá háttur sem á var hafður við setningu þessara brbl. og fylgt eftir með því að synja um orkuverðshækkanir, enda þótt það hefði leitt til ótrúlegrar skuldasöfnunar hjá Landsvirkjun, það er ekki sá háttur sem núv. ríkisstj. ætlar að hafa á þessum málum. En ég fullvissa hv. deild um það, að vandlega verður fylgst með framgangi þeirra og að sjálfsögðu mun ríkisstj. framkvæma þau lög sem hún setur um verðlagsákvæði að öllu leyti.