06.03.1984
Sameinað þing: 61. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 3377 í B-deild Alþingistíðinda. (2895)
174. mál, lífefnaiðnaður
Guðmundur Bjarnason:
Herra forseti. Ég vil í örstuttu máli þakka hv. fyrirspyrjanda fyrir að hreyfa þessu máli hér á Alþingi nú. Það er sannarlega ljóst að það var tímabært. En ég vil jafnframt þakka hæstv. iðnrh, fyrir þau svör sem hann hefur gefið og fyrir þau viðbrögð sem hann hyggst nú sýna í þessu máli.
Auðvitað er það leitt að svo brýnu og þörfu máli, sem hér er um að ræða, skuli ekki hafa verið gefinn meiri gaumur og að það hafi einhverra hluta vegna þokast til hliðar. Við því er ekkert að segja úr því sem komið er, heldur ber nú að taka til höndum.
Það kom fram hjá hæstv. iðnrh. að fjárveitingar hafa engar verið til þessara verkefna, hvorki 1983 né 1984. Það er að sjálfsögðu alltaf einhverju fjármagni varið á fjárlögum til að rannsaka og kanna nýjar leiðir og nýjar hugmyndir á sviði iðnaðar, en e. t. v. þarf í þetta stærri upphæðir en menn geta klipið af óráðstöfuðum fjárveitingum. En þó hygg ég að það sé ekki endilega nægjanleg ástæða til að skjóta sér bak við að ekkert hafi gerst í málinu. Aðalatriðið er að það skuli nú vera áhugi til þess að hrinda þessu máli í framkvæmd, sem upphaflega var hreyft á þingi af þáv. alþm. Guðmundi G. Þórarinssyni.
Eins og atvinnumálum er nú háttað hljótum við að verða að leita allra leiða til að auka þjóðartekjur okkar. Mér skilst að hér geti verið um mikla fjármuni að ræða. Þetta tengist matvælaiðnaði og lyfjaiðnaði, sem hvort tveggja eru atvinnugreinar sem við Íslendingar hljótum að gefa alveg sérstakan gaum. Ég fagna því þeim upplýsingum sem koma frá hæstv. iðnrh. um að hann hafi nú sett á stað starfshóp hjá Rannsóknaráði til að koma hreyfingu á þetta mál og vænti þess að það muni bera árangur og þjóðin eigi eftir að njóta þess í ríkum mæli sem hér kann að vera á ferðinni. Það eru ábyggilega miklir möguleikar fyrir hendi.