06.03.1984
Sameinað þing: 61. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 3385 í B-deild Alþingistíðinda. (2910)

431. mál, samgöngumál í Ísafjarðarsýslu

Fyrirspyrjandi (Kjartan Ólafsson):

Herra forseti Á þskj. 395 hef ég leyft mér að bera fram fsp. til samgrh. um samgöngumál í Ísafjarðarsýslu. Varðar fsp. hugmyndir um jarðgangagerð annars vegar og hins vegar byggingu brúar yfir Dýrafjörð. Svo sem flestum mun kunnugt eru samgöngur milli byggðarlaga erfiðari á Vestfjörðum en víðast annars staðar á landinu. Valda þar mestu um margir og miklir fjallvegir og mikil snjóalög. Allir sem til þekkja eru sammála um að hinar erfiðu samgöngur ásamt fábreytni í atvinnulífi, takmarkaðri þjónustu og háum framfærslukostnaði eigi mestan þátt í þeim miklu brottflutningum fólks frá Vestfjörðum sem átt hafa sér stað á undanförnum árum.

Á árunum 1971–1982 fluttu 1166 einstaklingar brott frá Vestfjörðum umfram aðflutta. Er sú tala ekki aðeins sú hlutfallslega hæsta yfir landið, heldur er áðurnefnd tala yfir brottflutta umfram aðflutta á þessu árabili hærri frá Vestfjörðum, fámennasta kjördæmi landsins en frá nokkru öðru kjördæmi, enda þótt enginn hlutfallsreikningur komi þar til. Þannig hafa íbúar Vestfjarða orðið stöðugt smærri hluti af heildaríbúafjölda landsins á undanförnum árum og áratugum og víða stendur byggðin mjög höllum færi. Slík þróun ætti að vera landsmönnum öllum ærið áhyggjuefni þó ekki væri nema með tilliti til hins gífurlega mikla framlags Vestfirðinga til þjóðarframleiðslunnar, útflutningsframleiðslunnar sérstaklega, langt umfram það sem íbúahlutfallið gefur tilefni til.

Það mun flestra manna mál að engin ein framkvæmd sé líklegri til að treysta byggð á Vestfjörðum en stórátak í samgöngumálum og þá ekki síst hvað varðar tengingu byggðanna þar innbyrðis. Í Ísafjarðarsýslu og kaupstöðunum tveimur, Ísafirði og Bolungarvík, búa nú um 2/3 af öllum íbúum Vestfjarða, þar af um 6300 manns í þéttbýlisstöðunum sex frá Ísafirði, Bolungarvík og Súðavík til Þingeyrar. Á öllu þessu svæði eru vetrarsamgöngur milli byggðarlaga sérstaklega örðugar og standa öllum samskiptum fyrir þrifum. Hugmyndir hafa verið uppi um gerð a. m. k. þriggja jarðganga á þessu svæði. Sú framkvæmd ásamt byggingu brúar yfir Dýrafjörð mundi gerbreyta öllum aðstæðum á þessum slóðum, skapa sterka þjónustuheild og opna margvíslega möguleika, ekki aðeins til fjölbreyttari mannlegra samskipta heldur einnig til stóraukinnar hagkvæmni á fjölmörgum sviðum. Eru þeir fjármunir ómældir sem við slíkt mundu sparast þegar til lengdar lætur.

Tími minn hér í ræðustól leyfir ekki ítarlegan rökstuðning fyrir þessu máli nú, en ég vænti svara um gang athugana og undirbúnings frá hæstv. samgrh. Það sem ég tel aðkallandi nú þegar er að hafist verði handa um brúargerð yfir Dýrafjörð hið allra fyrsta og einnig að tryggja fjármuni til bráðnauðsynlegra rannsókna á möguleikum varðandi jarðgangagerð í Ísafjarðarsýslu. Hef ég þá í huga tengingu Bolungarvíkur, Ísafjarðar, Súgandafjarðar og Önundafjarðar, svo og tengingu Dýrafjarðar og Arnarfjarðar. Þeir núverandi vegir sem slík jarðgöng gætu gert óþarfa eru Óshlíðarvegur frá Bolungarvík til Ísafjarðar og fjallvegirnir yfir Botnsheiði, Breiðdalsheiði og Rafnseyrarheiði, einhverjir erfiðustu fjallvegir á vetrardegi á landinu öllu. Ég hygg að hér sé til gífurlega mikils að vinna og um að ræða kjarnamál varðandi alla þróun byggðar á Vestfjörðum. Ég efast ekki um góðan vilja samgrh. til að ýta á þau mál sem ég hér hef minnst á og tel að það geti verið hv. Alþingi og þjóðinni reyndar allri fróðlegt að heyra hvernig undirbúningur í þessum efnum nú stendur. Ég læt mér ekki detta í hug að hægt sé að taka ákvarðanir um framkvæmdir án þess að ítarlegar athuganir séu þar á undan gengnar, en rannsóknirnar eru það sem alls ekki má dragast öllu lengur að hefjast handa um af fullum krafti.

Ég læt máli mínu lokið að sinni, herra forseti, og vænti svara hæstv. ráðherra.