06.03.1984
Sameinað þing: 61. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 3393 í B-deild Alþingistíðinda. (2916)

432. mál, tilraunastöðin á Reykhólum

Fyrirspyrjandi (Kjartan Ólafsson):

Herra forseti. Ég vil þakka hæstv. landbrh. fyrir svörin við þessari fsp. minni. Ég var ánægður með þau að sumu leyti en ekki öllu leyti. Ég skil málið svo að ákvörðun hafi í rauninni enn ekki verið tekin í þessu máli og af hálfu landbrn. sé verið að vinna að útvegun þess — ég leyfi mér að segja — litla fjármagns sem þarna getur skorið úr. Hæstv. ráðh. nefndi að launasamningar frá 1977 hefðu gert reksturinn á tilraunabúum og þ. á m. á Reykhólum erfiðan. Ég efast ekki um að svo sé en það hefur nú verið víðar, bæði í opinberum rekstri og annars staðar.

En hæstv. ráðh. nefndi að þarna hefði á síðasta ári verið um að ræða 300 þús. kr. svo að þetta sýnast nú ekki vera stórir fjármunir.

Ég fagna því að hæstv. ráðh. upplýsti hér að stjórn RALA hefði tekið þá stefnu að halda áfram sauðfjárræktunartilraunum á Reykhólum og hverfa frá því að flytja þær þaðan. En í þessum efnum vil ég vænta þess að mjög vandlega verði hlustað á ráðleggingar þess manns sem annast hefur og haft yfirumsjónir með þessum tilraunum í 20 ár, dr. Stefáns Aðalsteinssonar. En hann leggur á það áherslu að tilraununum verði haldið áfram með þeim hætti sem verið hefur nú að undanförnu og segir m. a. í bréfi til oddvita Reykhólahrepps, sem ég hef hér afrit af, með leyfi hæstv. forseta:

„Ef stofninn yrði fluttur frá Reykhólum væri kippt fótunum undan allri núverandi starfsemi. Gæti það hæglega leitt til þess að stofninn yrði eyðilagður á stuttum tíma.“

Á öðrum stað leggur dr. Stefán, sem á manna mestar þakkir skildar fyrir þann árangur sem náðst hefur í ullarræktun, áherslu á að Reykhólabúið verði rekið í sama formi og verið hefur.

Ég þarf ekki að orðlengja mjög um þetta. Ég vil þó taka fram, vegna orða hæstv. ráðh. um afstöðu Búnaðarsambands Vestfjarða, að það er mikill misskilningur ef hæstv. ráðh. hefur fengið þær upplýsingar að Búnaðarsamband Vestfjarða sé sátt við að þessum tilraunum verði hætt. Þessi samþykkt er þvert á móti á þann veg að þar er reyndar fagnað viðbótartilraunum af öðru tagi, þ. á m. að aukin áhersla verði lögð á tilraunir með grasrækt, en í samþykkt stjórn Búnaðarsambands Vestfjarða segir, með leyfi hæstv. forseta:

„Stjórn Búnaðarsambands Vestfjarða mótmælir þessum ráðagerðum að leggja niður sauðfjárbúið á Reykhólum. Tilraunastöðin á Reykhólum á að þjóna landbúnaði á Vestfjörðum og bendir stjórnin á að landbúnaður þar standi höllum fæti vegna slæms árferðis, sauðfjársjúkdóma og framleiðsluskerðinga. Það er því eindregin ósk bænda þar að sú þjónusta verði efld en ekki dregið úr henni þannig að starfsemi tilraunastöðvarinnar á Reykhólum styrki byggðina á Vestfjörðum enn frekar en verið hefur.“

Þarna er sem sagt um að ræða eindregin mótmæli gegn því að horfið verði frá umræddum sauðfjárræktartilraunum.

Það hefur einnig komið fram í samþykkt nýlokins Búnaðarþings um tilraunastöðvarnar, sem samþykkt var einróma, að þar ríkti skilningur á mikilvægi tilrauna til að tryggja íslenskum ullar- og skinnaiðnaði sem best hráefni. Í samþykkt Búnaðarþings segir orðrétt:

„Sérstaklega er æskilegt að þær tilraunir og aðgerðir verði sem raunhæfastar er stuðlað gætu að enn fjölbreyttari og betri markaðsvöru á sem flestum sviðum. Þar ber m. a. að hafa í huga gott hráefni fyrir íslenskan ullar- og skinnaiðnað.“

Þegar nú liggur fyrir, skv. vottorði Álafoss sem ég kynnti áðan, að einmitt ullin af þessu fé fer 90% í úrvalsflokk á meðan önnur ull fer að jafnaði ekki nema sem svarar 12.6% í slíkan úrvalsflokk sýnist næsta fráleitt að ætla að draga úr starfsemi Reykhólastöðvarinnar og harla ólíklegt að ekki töpuðust við það nokkuð margar litlar 300 þús kr. sem þarna vantaði upp á á síðasta ári. Þetta vildi ég segja til áréttingar en vil treysta því að hæstv. ráðh. athugi vel sinn gang og hrapi ekki að ákvörðunum og hlusti vandlega á þá menn sem best eru hnútum kunnugir og sérfróðastir um þau efni sem hér hefur verið rætt um.