06.03.1984
Sameinað þing: 61. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 3395 í B-deild Alþingistíðinda. (2919)
432. mál, tilraunastöðin á Reykhólum
Landbrh. (Jón Helgason):
Herra forseti. Ég stend upp fyrst og fremst til að láta í ljós undrun mína yfir þessu tali um að leggja eigi niður tilraunastöðina á Reykhólum. Ég veit ekki hvaðan sú hugmynd er komin sem hv. síðasti ræðumaður var að tala um. Ég hélt að ég hefði sagt nægilega skýrt að hugmyndin var að reyna að gera reksturinn hagkvæmari. Ég tel að það sé sjálfsögð skylda stjórnar Rannsóknastofnunar landbúnaðarins, hvort sem fjárveitingar eru rúmar eða þröngar, að reyna að haga rekstri á þann hátt sem hagkvæmastur er miðað við þau markmið sem menn setja sér. Ég skýrði frá því áðan hvernig hugmyndir það hefðu verið. Það kom ekki fram að ætti að skera niður fjárstofninn. Það væri furðulegt ef stjórn Rannsóknastofnunar landbúnaðarins ætlaði að fara að eyðileggja þann árangur sem allir eru sammála um að þarna hafi náðst og þurrka hann alveg út.
Hins vegar vitum við að viðhorf eru sífellt að breytast í landbúnaði eins og öðru og það þarf alltaf að leita nýrra leiða. Ég skýrði frá ýmsum hugmyndum sem menn væru með og að efla þyrfti tilraunastarfsemi þarna og gera hana fjölbreyttari einmitt til að styrkja byggðina jafnframt því sem hugað væri að grundvallaratriðinu fyrir búskap á Vestfjörðum sem er grasræktin. Við vitum að hún er erfiðari þar en í flestum öðrum landshlutum, vegna þess að hitastig er þar lægra. Því er nauðsynlegt að vera þar með tilraunastarfsemi.
Ég hef að öðru leyti engu við þetta að bæta, nema ég vil láta í ljós undrun mína yfir tali þeirra sem eru með þá fullyrðingu að hugmyndir hafi verið um að leggja niður tilraunastarfsemina á Reykhólum.