06.03.1984
Sameinað þing: 61. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 3396 í B-deild Alþingistíðinda. (2921)
432. mál, tilraunastöðin á Reykhólum
Ólafur Þ. Þórðarson:
Herra forseti. Það kemur úr hörðustu átt þegar fjvn.-menn koma með yfirlýsingar eins og þær að ákveðið sé að leggja niður stofnanir sem þeir vita mætavel sjálfir að þeir hafa lagt til fjármagn á yfirstandandi ári. Spurningin er þá sú, hvort þeir hafa litið svo á að það fjármagn hafi átt að fara til starfsmanna til að borga þeim laun út uppsagnarfrestinn.
Ég vil undirstrika að á mörgum stöðum þarf að gera rekstur hagkvæmari, það blasir við. Það má vel vera að líka þurfi á Reykhólum. Og það má vel vera að hv. 3. þm. Vestf. geri sér grein fyrir því þó að hann tali öðruvísi nú. En hitt verður að sjálfsögðu ekki liðið af þm. Vestfjarða að sá merki árangur sem náðst hefur í sauðfjárrækt á Reykhólum verði látinn renna út í sandinn. Það verður tryggt að áframhaldandi ræktun þess fjárstofns, sem þarna er, eigi sér stað.
Ég vil undirstrika það alveg sérstaklega að í flestum löndum hefur búfjárrækt náð bestum árangri þar sem bændur sjálfir hafa verið látnir glíma við þau mál. Og ég vil minna á að við erum búnir að ná mjög miklum árangri í nautgriparækt á þessu landi. Nythæsta kú á Íslandi mjólkaði 10 þús. lítra. Hvað skyldi það fara mörgum prósentum yfir meðalnytina sem notuð er í verðlagsgrundvellinum?
Ég hygg að menn bæti sig ekki með þeim málflutningi sem hér hefur verið hafður í frammi, eins og að það eigi að fara að leggja þessa tilraunastöð niður. Ég fagna því að ákvörðun hefur verið tekin um að hún skipti sér af æðarrækt og hún skipti sér af fiskirækt. Á því sviði eru miklir möguleikar. En það er öruggt mál að við munum gæta þess að sá árangur sem náðst hefur í sauðfjárrækt á Reykhólum verði ekki eyðilagður.