06.03.1984
Sameinað þing: 61. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 3401 í B-deild Alþingistíðinda. (2927)

207. mál, sjúklingaskrár

Stefán Benediktsson:

Herra forseti. Aðeins örstutt spurning til heilbrmrh.

Skil ég það rétt að um meðferð á upplýsingum um sjúklinga gildi engin refsiákvæði, þ. e. sé farið ógætilega með þessar upplýsingar, þannig að þær lendi í höndum þriðja eða fjórða aðila, nái engin refsiákvæði laga yfir slíka meðferð?