06.03.1984
Sameinað þing: 61. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 3401 í B-deild Alþingistíðinda. (2928)

207. mál, sjúklingaskrár

Fyrirspyrjandi (Guðmundur Einarsson):

Herra forseti. Ég þakka ítarlegt svar hæstv. ráðh. við spurningum mínum. Þetta er mikilvægt mál, að ég held, og kemur reyndar víða við, þar sem má segja að um hliðstæð mál geti verið að ræða, t. d. í dómskerfi og víðar.

Það hefur komið fram að það gilda lög um upplýsingasöfn og meðferð upplýsingasafna á almennan hátt, en ekki nein sérstök lög um meðferð slíkra upplýsinga í daglegri vinnslu þeirra starfsmanna sem hafa þessi gögn með höndum. Það er spurning hvort ástæða er til að setja lög um það. Nefnd sú sem hæstv. ráðh. vitnaði til komst að þeirri niðurstöðu að þess væri ekki þörf og það má rétt vera. En þá hvílir um leið mikil ábyrgð á starfsfólki og skv. þeim tilmælum sem landlæknir hefur gefið út hvílir mikil ábyrgð á yfirlæknum einstakra deilda að fylgjast með að þarna sé farinn sá gullni meðalvegur í upplýsingaleynd og upplýsingaskyldu sem augljóslega er nauðsynleg. Það hlýtur að vera mikilvægt að ítreka við starfsfólk þá ábyrgð sem það hefur og þá þagnarskyldu sem það ber gagnvart utanaðkomandi aðilum til þess að þarna megi á hverjum tíma ríkja það nauðsynlega traust sem er forsenda þess að þetta starf geti farið fram, ótruflað.