31.10.1983
Efri deild: 10. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 424 í B-deild Alþingistíðinda. (293)

42. mál, orkulög

Helgi Seljan:

Virðulegi forseti. Hæstv. iðnrh. sagði að það væri ekki stefna þessarar hæstv. ríkisstj. að taka sér vald. Það er hressilega mælt, því að engin ríkisstj. hefur tekið sér rækilegra vald en einmitt þessi, tekið sér vald til að skipa málum fólksins í landinu á þann hátt sem hún hefur gert. En auðvitað skil ég mætavel að ríkisstj. vill ekki taka sér hið sama vald og hún hefur tekið sér gagnvart fólkinu gagnvart jafngöfugu fyrirtæki og Landsvirkjun. Ég skil það mætavel.

Ófögur var lýsing á þessu fyrirtæki og rekstri þess, Landsvirkjunarfyrirtækinu, hjá hæstv. núv. iðnrh. Og ekki er mikil ráðdeild á þeim bæ greinilega, enda hefur okkur löngum verið það ljóst, þó að menn hafi haft þar ákveðna goðsögn í huga, að ýmislegt væri öðruvísi á þeim bæ en vera ætti, sem skýrist náttúrlega fyrst og síðast af því hvernig þar er staðið að orkusölunni til útlendinga, þar sem sami aðili á reyndar stóran þátt í þeim samningum sem þar hafa verið gerðir.

En það er rétt hjá hæstv. iðnrh., hann hefur komið hér með margendurteknar yfirlýsingar um þann ofurþunga hitunarkostnaðar sem hvílir á íbúum þessa lands. Og vissulega var það svo, þegar þessar hækkanir á gjaldskrá Landsvirkjunar flæddu út yfir alla bakka núna í vor, að hæstv. ríkisstj. sá sér ekki annað fært en að láta um leið nokkrar niðurgreiðslur á húshituninni af hendi til viðbótar. En auðvitað veit hæstv. iðnrh. betur en allir aðrir að þær niðurgreiðslur, sem áttu að heita mildandi aðgerðir m.a.s. og hafa verið talin ein helsta skrautfjöðrin í hinum mildandi aðgerðum, þær 150 millj. eru allar horfnar. Þær hurfu í Landsvirkjunarhítina allar eins og þær lögðu sig. Og það sem meira er, almenningur hefur þar bætt við, hann hefur bætt þar við í húshitunarkostnaði til að greiða í þessa sömu hít. Ég vildi gjarnan spyrja hæstv. iðnrh. um það hverju hann teldi að þessar niðurgreiðslur, þessi mildandi aðgerð, hefði skilað í raunverulegri lækkun húshitunarkostnaðar fólksins í landinu. Hverju hefur hún skilað frá því að þessi ríkisstj. tók við, eftir öll þau stóru orð sem þar voru uppi höfð? Ég veit nokkurn veginn svarið en ég vildi gjarnan fá að heyra þessa lækkun, þessa mildandi aðgerð, af vörum hæstv. iðnrh. sjálfs.