06.03.1984
Sameinað þing: 61. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 3402 í B-deild Alþingistíðinda. (2930)

430. mál, kvörtunarnefnd

Fyrirspyrjandi (Svavar Gestsson):

Herra forseti. S. l. vor, 1983, var lögum um heilbrigðisþjónustu breytt nokkuð og voru breytingarnar felldar inn í heildarbálk sem er gefinn út sem lög nr. 59/1983. Í þessum breytingum er m. a. um að ræða nýmæli sem snertir möguleika þeirra sem njóta heilbrigðisþjónustunnar hér á landi til þess að bera upp kvartanir ef menn telja ástæður til. Þessi ákvæði er að finna í 3. gr. laganna, 5. tölul., en þar segir, með leyfi hæstv. forseta:

„Landlækni er skylt að sinna kvörtunum eða kærum er varða samskipti almennings og heilbrigðisþjónustunnar. Heimilt er að vísa ágreiningsmálum til sérstakrar nefndar sem í eiga sæti þrír menn tilnefndir af Hæstarétti og ráðherra skipar til fjögurra ára í senn. Enginn nefndarmanna má vera starfsmaður heilbrigðisþjónustunnar og einn skal vera embættisgengur lögfræðingur og jafnframt formaður. sömu reglur gilda um varamenn. Ráðh. setur nefndinni starfsreglur að fengnum tillögum hennar. Kostnaður vegna starfa nefndarinnar greiðist úr ríkissjóði.“

Nú er skammt um liðið síðan þessi lög voru sett en engu að síður taldi ég ástæðu til að vekja athygli á þessari nefnd vegna þess að ég tel að hún hafi miklu hlutverki að gegna í heilbrigðisþjónustunni hér á landi. Ég hef af þeim ástæðum lagt fyrir hæstv. heilbr.- og trmrh. eftirfarandi fsp.:

„1. Hefur verið skipuð nefnd til að sinna kvörtunum eða kærum er varða samskipti almennings og heilbrigðisþjónustunnar skv. 5. tölul. 3. gr. laga nr. 59/1983 um heilbrigðisþjónustu. Ef svo er, hverjir skipa nefndina?

2. Hefur ráðherra sett nefndinni starfsreglur?

3. Hve mörg mál hafa nefndinni borist til þessa?

4. Hve mörg mál hefur nefndin afgreitt?“

Ég vænti þess að hæstv. ráðh. sjái sér fært að svara þessari fsp. eins og hún er hér fram borin.