06.03.1984
Sameinað þing: 62. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 3419 í B-deild Alþingistíðinda. (2955)

189. mál, fríiðnaðarsvæði við Keflavíkurflugvöll

Flm. (Karl Steinar Guðnason):

Herra forseti. Ég hef leyft mér ásamt Kjartani Jóhannssyni og Stefáni Benediktssyni að flytja hér svohljóðandi till. til þál.:

„Alþingi ályktar að fela Framkvæmdastofnun ríkisins að gera athugun á hvort hagkvæmt sé að koma á fót fríiðnaðarsvæði við Keflavíkurflugvöll.“

Till. þessi hefur verið flutt á fimm síðustu þingum en aldrei orðið útrædd. Ástæður fyrir þessum tillöguflutningi eru ýmsar blikur sem verið hafa á lofti í atvinnumálum Suðurnesja nokkur undanfarin ár. Hafa hundruð manna verið þar á atvinnuleysisskrá svo mánuðum skiptir. Af þeim sökum hefur Alþingi tvisvar ályktað að gerð verði athugun á atvinnulífi Suðurnesja og áætlun um eflingu þess. Árið 1978 ályktaði Alþingi að fela ríkisstj. að hlutast til um að Framkvæmdastofnun ríkisins kannaði atvinnustöðu svo og félagslega aðstöðu íbúa byggðarlaga í nágrenni Keflavíkurflugvallar. Í síðari ályktuninni, frá 1979, var Framkvæmdastofnun ríkisins falið að undirbúa og gera framkvæmda- og fjármögnunaráætlun um alhliða atvinnuuppbyggingu á Suðurnesjum. Nokkur undirbúningsvinna hefur átt sér stað en engin niðurstaða fengist hvað þá fjármagn.

Atvinna á Suðurnesjum byggist að mestu á sjávarútvegi og starfsemi á Keflavíkurflugvelli. Vegna slæms ástands fiskstofna og vannýttrar afkastagetu fiskiskipa er ekki hægt að gera ráð fyrir fjölgun sjómanna. Frystihús á Suðurnesjum eru tiltölulega mörg en lítil og hefur reyndar farið fækkandi hin síðari árin. Afkastageta þeirra nýtist illa vegna sveiflna í fiskveiðum og skorts á búnaði í mörgum tilvikum. Framtíðarþróun fiskvinnslunnar getur því allt eins leitt til aukinnar tæknivæðingar og hagræðingar fremur en meiri vinnuaflsnotkunar. Vegna mikillar samkeppni í Atlantshafsflugi er óvarlegt að ætla að um umtalsverða aukningu verði að ræða í flugrekstri á Atlantshafsleiðum um tíma og þótt nú gangi betur má gera ráð fyrir áföllum annað slagið. Af því sem ég hef hér sagt að framan er ljóst að mjög lítil vöxtur, ef ekki samdráttur, er fyrirsjáanlegur í undirstöðuatvinnugreinum Suðurnesja.

Mjög stór hópur ungs fólks er nú að vaxa úr grasi á Suðurnesjum. Meðalstærð þeirra árganga sem nú eru að byrja að koma inn á vinnumarkað er ca. 270–290 manns, en meðalstærð þeirra árganga sem hverfa af vinnumarkaði vegna aldurs er ca. 50–70 manns. Aldrei skila sér allir inn á vinnumarkað, en varlega áætlað þurfa að bjóðast a. m. k. 150 ný störf á ári svo að allir þeir nýliðar sem koma inn á vinnumarkað eigi kost á atvinnu heima fyrir.

Í drögum að iðnþróunaráætlun fyrir Suðurnes, sem byggðadeild Framkvæmdastofnunar birti í nóv. 1980, er bent á að uppbygging iðnaðar sé líklega besta leiðin til aukinnar atvinnu og bættra tekna á svæðinu. Á Suðurnesjum eru mjög góðar aðstæður til iðnþróunar hvað framboð orku og hráefnis snertir, en hins vegar vantar þar mjög tækni- og verkkunnáttu í iðnaði. Af þeim sökum er óeðlilegt að iðnaður vaxi í neinum mæli nema til komi sérstakar aðgerðir í iðnþróun. Það er reynslan frá Shannon á Írlandi að tilkoma fríiðnaðarsvæðis þar hefur leitt til stóraukinnar tækni- og verkþekkingar í iðnaði á svæðinu, auk annars konar ávinnings. Þess vegna er vel þess virði að athugað sé hvort einn liður í eflingu iðnaðar á Suðurnesjum gæti hugsanlega orðið stofnun fríiðnaðarsvæðis á Keflavíkurflugvelli.

Þegar þotur urðu algengar í Atlantshafsflugi laust fyrir 1960 féllu millilendingar til eldsneytistöku á Shannon á Írlandi að mestu niður. Hafði það í för með sér mikið atvinnuleysi í nálægum byggðarlögum. Stjórnvöld á Írlandi brugðust við þessum vanda með því að stofna sérstakt þróunarfélag Shannon-flugvallar. Meginhlutverk þess var að finna leiðir til þess að tryggja vöxt og viðgang flugvallarsvæðisins, örva farþega- og vöruflutninga um völlinn og efla atvinnulíf í byggðarlögum nálægt vellinum. Í þessu skyni kom þróunarfélagið á fót fríiðnaðarsvæði við Shannon-flugvöll árið 1959. Strax í upphafi voru eftirfarandi fríðindi boðin fyrirtækjum sem vildu koma til Shannon:

Algjört tollfrelsi að því er snertir innflutning á hráefnum, vélum og tækjum til framleiðslunnar. Sama máli gegndi um útflutning fullunninnar vöru

Leiga til 25 ára á verksmiðjubyggingum sem þróunarfélagið reisti. Byggingar þessar voru annaðhvort staðlaðar byggingar eða reistar í samráði við fyrirtækið. Leigan miðaðist við byggingarkostnaðinn.

Óafturkræf fjárframlög er svöruðu til helmings af kostnaðarverði véla sem kaupa þurfti fyrir hlutaðeigandi verksmiðju.

Sérþjálfun verksmiðjufólks hinum erlendu fyrirtækjum að kostnaðarlausu.

Algjört skattfrelsi til 1983. Þetta þýddi 25 ára skattfrelsi fyrir þau fyrirtæki sem fyrst hösluðu sér völl í Shannon, en það gerðist árið 1959.

Skattfrelsi er boðið á útflutningshagnaði a. m. k. til 1990 ef starfsemi hefst fyrir 1981. Gildir þetta raunar fyrir öll útflutningsfyrirtæki á Írlandi. Fjármagnsfyrirgreiðsla hefur nú verið aukin og styrkir til rannsókna og vöruþróunar standa til boða. Þá má nefna þjónustu hvers konar við atvinnurekstur, bæði viðskiptalega og tæknilega.

Nú eru á Shannon-fríiðnaðarsvæðinu iðnfyrirtæki, þjónustufyrirtæki og vöruhús sem veita 4500 manns atvinnu og þekja um 200 þús. m2 gólfflöt. Samtals eru þetta 100 fyrirtæki og er mjög lítið um stórfyrirtæki þar. Framleiðslan er einkum á sviði rafeinda- og raftækjasmíði, efnaiðnaðar og verkfæragerðar.

Reynslan af fríiðnaðarsvæðinu í Shannon er mjög góð. Auk þess að hafa veitt þúsundum Íra atvinnu hefur mikil verkþekking verið flutt inn í landið. Þá hafa Írar einnig öðlast af þessari starfsemi mikla reynslu í iðnþróunaraðgerðum. Má nefna að Shannon-þróunarfélagið vinnur nú að uppbyggingu atvinnu á um 4800 km2 svæði umhverfis Shannon.

Fjölmargar þjóðir, sem búa við atvinnuleysi, einkanlega í þróunarlöndunum, hafa fylgt fordæmi Íra og eru nú rekin nokkur hundruð fríiðnaðarsvæða í heiminum. Á öllum þessum stöðum eru mikil fríðindi í boði fyrir þau fyrirtæki sem þangað vilja koma. Mjög ólíklegt er að það sé fjárhagslega hagkvæmt fyrir Íslendinga að keppa á almennum grundvelli við önnur fríiðnaðarsvæði í heiminum um að fá til sín erlend fyrirtæki. Á meðan atvinnuástand er jafngott og raun ber vitni á Íslandi, þó að það hafi farið versnandi, getur varla talist hagkvæmt að bjóða erlendum fyrirtækjum sömu kjör og önnur fríiðnaðarsvæði bjóða. Hins vegar virðist full þörf á að kanna hvort einhver erlend fyrirtæki sjái sér hag í því að koma á lakari kjörum en annars staðar vegna þeirra sérstæðu aðstæðna sem í boði yrðu, svo sem jarðhiti, ódýrt rafmagn, vinnuafl með tækniþekkingu í sjávarútvegi, að mestu tollfrjáls aðgangur að Evrópumörkuðum og lega mitt á milli Ameríku og Evrópu. Ekki er vafi á því að fjölmörg íslensk fyrirtæki mundu sjá sér hag í því að reka sína starfsemi á fríiðnaðarsvæðinu. Varðandi slíkt þyrfti að kanna hvort fríiðnaðarsvæði sé hagkvæm leið til þess að efla íslenskan útflutningsiðnað eða hvort einhverjar aðrar ráðstafanir væru jafngóðar eða betri.

Með því að setja á stofn fríiðnaðarsvæði er verið að hvetja til stofnunar atvinnurekstrar sem að öðrum kosti væri vart mögulegur eða hagkvæmur í landinu. Þeir sem helst virðast munu hafa áhuga á aðstöðu og rekstri á fríiðnaðarsvæði á Keflavíkurflugvelli eru aðilar á eftirtöldum vettvangi:

a. Japönsk og bandarísk fyrirtæki gætu séð sér hag í því að reka samsetningarverksmiðju hér vegna nálægðar við Evrópumarkað og vegna þess tollfrelsis sem þau nytu gagnvart innflutningi til landa EFTA og Efnahagsbandalagsins.

b. Sérhæfð alþjóðleg fyrirtæki gætu séð sér hag í því að reka vörugeymslur á Keflavíkurflugvelli vegna hagstæðrar legu hans mitt á milli Evrópu og Norður-Ameríku.

c. Ekkert fríiðnaðarsvæði í heiminum, svo vitað sé, getur boðið upp á jarðhita, en hann má nýta á ýmsa vegu í iðnaði. Einnig gæti reynst hagkvæmt að nýta hann til eldis á verðmætum krabbadýrum, t. d. humri og rækju, fiskum og e. t. v. til kjúklingaeldis í stórum stíl. Tollfrelsi á fóðri mundi e. t. v. hafa mjög hvetjandi áhrif á slíka starfsemi.

d. Einn möguleiki enn er að kjötvinnslufyrirtæki kaupi dilkakjöt og njóti útflutningsbóta á kjötinu eins og aðrir útflytjendur. Bæði í Færeyjum og: á Nýfundnalandi er markaður fyrir unnar kjötvörur sem íslensk kjötvinnslufyrirtæki gætu hugsanlega komist inn á. Ekki er þó víst að fríiðnaðarsvæði þurfi til þess að framkvæma þessa hugmynd.

e. Þá eru ýmsir möguleikar fyrir hendi í rafeindaiðnaði sem er tengdur sjávarútvegi og nýtingu annarra auðtinda á hafi úti. Ef tækniþekking er fyrir hendi má þróa upp ný tæki á þessu sviði vegna þeirrar reynslu og verkþekkingar sem fyrir hendi er í fiskvinnslu og sjómennsku.

Eins og ég hef áður drepið á virðast framtíðarmöguleikar atvinnulífs á Suðurnesjum að mestu bundnir við iðnað. Hins vegar er lítil reynsla og tækniþekking í iðnaði fyrir hendi á svæðinu. Ekki er vafi á því að stofnun fríiðnaðarsvæðis mundi bæta þar verulega úr auk þess sem fjölbreytni í atvinnuvali mundi aukast. Þá gæti samstarf sveitarfélaga á Suðurnesjum og ríkisins um stofnun fríiðnaðarsvæðis síðar meir leitt til stofnunar þróunarfélags atvinnulífs á Suðurnesjum öllum.

Hugmyndin um fríiðnaðarsvæði á Keflavíkurflugvelli er vel þess virði að á henni verði gerð rækileg könnun. Hvers konar atvinnufyrirtæki mundu hafa áhuga á starfrækslu þar, hver væri efnahagslegur ávinningur að stofnsetningu þess og hvaða rekstrar- og eignarform verði heppilegast á svæðinu? Þó tillaga þessi geri sérstaklega ráð fyrir að fríiðnaðarsvæði verði á Keflavíkurflugvelli er rétt að geta þess að einnig kemur mjög til greina að fríiðnaðarsvæði yrði við Straumsvík, en þar eru hafnarskilyrði mjög góð og aðstaða að mörgu leyti hentug.

Í umræddri könnun mætti hafa þá staðreynd í huga. Jafnframt ber að vara við of mikilli bjartsýni af niðurstöðum slíkrar könnunar því að samkeppni á milli fríiðnaðarsvæða í heiminum er mjög hörð og oft og tíðum boðin fjármagnsaðstoð sem er langt umfram það sem kemur til greina að bjóða upp á hér á landi.

Ég legg til að að loknum umr. verði málinu vísað til hv. atvmn.