07.03.1984
Efri deild: 58. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 3440 í B-deild Alþingistíðinda. (2972)
222. mál, Aflatryggingasjóður sjávarútvegsins
Skúli Alexandersson:
Virðulegi forseti. Sú ákvörðun sem felst í því frv. sem hér er til umr. var tilkynnt við ákvörðun fiskverðs í byrjun febr. Þá strax mótmæltu sjómannasamtökin því að þannig skyldi vera farið með Aflatryggingasjóð sem hér er lagt til. Á undanförnum dögum hafa einnig verið að berast mótmæli frá sjómönnum og samtökum þeirra í sambandi við þetta frv. Eru þau öll á einn veg og undirstrika yfirlýsingu fulltrúa sjómanna við fiskverðsákvörðun, að það er einróma álit sjómanna og sjómannasamtaka að þannig skuli ekki vera haldið á hlut Aflatryggingasjóðs, það sé verið að breyta eðli þessarar stofnunar frá því að vera kauptryggingarstofnun sjómanna í það að vera stofnun til þess að standa undir fjárfestingu útgerðar.
Kannske er ekki ástæða til að ræða þetta frv. mikið við 1. umr. Frv. kemur til nefndar sem ég er í og þar verður vitaskuld leitað umsagna þeirra aðila sem þetta frv. snertir fyrst og fremst. En hæstv. ráðh. nefndi að hér væri fyrst og fremst um tímabundna ákvörðun að ræða, enda kemur fram í grg. frv. að svo sé. Í upphafi grg. er sagt, með leyfi hæstv. forseta:
„Í framhaldi af ákvörðun fiskverðs og vegna hins alvarlega þorskaflabrests á þessu ári, svo og nýrra reglna um stjórn botnfiskveiða á árinu, er nauðsynlegt að gera sérstakar ráðstafanir í sjávarútvegi og er frv. þetta annað af tveimur, sem flutt eru í þessu skyni.“
Í þessum orðum er því slegið strax föstu að orðinn sé aflabrestur á þorskveiðum á Íslandi á árinu 1984 og að grunnur þessa frv. byggist fyrst og fremst á því. Ég held að það ætti að vera ósk ráðh. og ósk okkar allra — það er ósk mín a. m. k. — að umr. um frv. verði frestað vegna þess að allar fréttir af fiskveiðum umhverfis Ísland eru á allt annan veg en að það sé að verða aflabrestur á þorskveiðum. Síðasta stórfréttin í því efni birtist í Morgunblaðinu í morgun. Þar segir að mikill afli sé nú á Halamiðum og jafnvel meiri en þar hefur verið undanfarin ár. Og hver er það svo sem tilkynnir þær fréttir? Það er formaður farmannasambands Íslands, skipstjóri á Páll Pálssyni, maður sem stóð að því að undirbúa kvótafrv. Nú lýsir hann því yfir að sjálfsagt sé að fella kvótann úr gildi. Samtímis er verið að leggja til hér í hv. Ed. að frv. sem byggist á þeirri skoðun að það verði þorskaflabrestur á Íslandsmiðum árið 1984 skuli tekið til afgreiðslu og gert að lögum. Ég ítreka að ef það er raunverulega forsenda þessa frv. að það verði þorskaflabrestur hér eru engin rök fyrir því að frv. verði hér áfram til umr. og verði að lögum.
Hæstv. ráðh. nefndi einnig að svo hefði verið með
Aflatryggingasjóð á undanförnum árum að bætur hans hefðu raunverulega ekki komið til skipta. Það er reyndar rétt að þær féllu ekki inn í skiptahlutinn, en þær voru aftur á móti fyrst og fremst trygging þess, og þess vegna hafa sjómenn fallist á að ákveðinn hluti útflutningsgjalda rynni til þessa sjóðs, að sjómenn fengju kaup sitt greitt. Þær voru raunverulega þáttur af hlutaskiptareglunni. Sú leið sem nú er farin er alls ekki þessu lík. Það sem nú er lagt til að verði gert tryggir ekki, eins og hæstv. ráðh. sagði, að útgerðin geti borgað sjómönnum hlut eða kauptryggingu, sem sjálfsagt verður oftar ef svo fer, sem spáð er hér í frv., að aflabrestur verði, vegna þess að nú er komin sú skipting á að hlutur Aflatryggingasjóðs fer fyrst og fremst til þeirra sem fiska vel. Skiptingin fer eftir aflahlutfalli á skip, en tryggir ekki að þeir sem af einhverjum ástæðum koma með minni afla að landi hafi möguleika á tryggingu eða fjármagni úr sjóðnum til að standa í skilum við sína skipshöfn.
Hæstv. ráðh. boðaði einnig að að því yrði stefnt að breyta Aflatryggingasjóði á næsta ári, hverfa frá því að nota sjóðinn eins og hann hefur verið notaður. Hefur það verið gagnrýnt af mörgum og sjálfsagt verið gagnrýnisverð sú aðferð sem notuð var til úthlutunar úr Aflatryggingasjóði. Yrði hann í auknum mæli notaður til að jafna á milti ára eftir breytinguna. Þá er eðli sjóðsins breytt. Það hlýtur að verða tekið til yfirvegunar frá hendi sjómannasamtaka hvort sá háttur fellur að því markmiði sem Aflatryggingasjóður hafði áður og hefur. Hitt tel ég að væri miklu nauðsynlegra að líta frekar á þá vankanta sem á Aflatryggingasjóði hafa verið og reyna að má þá af. Það hefur svo sem verið haft á orði að vissar útgerðir gerðu allt að því út á Aflatryggingasjóð og nú komi það m. a. fram, þegar skipta skuli kvóta á milli skipa, að þeir sem öfluðu fjármuna í Aflatryggingasjóð beri skarðan hlut frá borði, en ekki þeir sem nutu þaðan fjármagns. Ef slíkt er satt og slíkt er rétt ber mikla nauðsyn til að breyta þar til.
En til viðbótar við að skerða hlut sjómanna, sem nú þurfa frekar á öðru að halda en því að hlutur þeirra sé skertur, er þetta frv. raunverulega beint framhald af þeirri stefnu hæstv. ríkisstj. að reyna að leysa vandamál þjóðfélagsins með því að sækja það fjármagn sem til þess þarf í vasa launþega og vasa framleiðslustéttanna. Það er vitaskuld ekki verið að gera annað með þessu frv. en að taka vissan hlut af sjómönnum til að reyna að létta undir með útgerðinni. Þessi þáttur, að það sé gripið til þess að lækka kaup í landinu til að reyna að halda niðri verðbólgu og það sé gripið til þess að taka af hlut sjómanna svo að útvegsmenn fái pínulítið betri stöðu, er vitaskuld alrangur. Það þarf að taka á báðum þáttum jafnhliða. Það þurfti bæði að minnka verðbólgu í landinu og líka styrkja stöðu útgerðar á Ístandi. Það er alls ekki heppileg leið að taka eingöngu frá einum aðila og það þeim sem síst skyldi.
Hæstv. ráðh. nefndi að það væru ýmsir þættir sem hefðu gert útgerð erfitt fyrir á undanförnum árum, m. a. olíuverð og vextir. Þessir þættir eru enn í dag mjög lítið breyttir. Hlutur banka í vöxtum hefur ekki minnkað. Hann er jafnvel mun meiri en hann var áður en núverandi hæstv. ríkisstj. tók við völdum. Á sama máta hefur olían ekki lækkað gagnvart útgerð. Hún er núna þriðjungi dýrari en í löndunum í kringum okkur. Það er sára lítið gert til að leysa þessi vandamál útgerðar. Ég mun sjálfsagt ræða þetta mál í sjútvn. og þar fáum við, eins og ég nefndi áður, fullrúa hagsmunaaðila til að upplýsa okkur frekar um sínar skoðanir á þessu máli, en mér sýnist öll rök hníga að því, einmitt eftir því sem segir í grg., að þetta frv. eigi að fara hægt og helst að stöðvast sem fyrst.