07.03.1984
Neðri deild: 55. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 3456 í B-deild Alþingistíðinda. (2988)
155. mál, kosningar til Alþingis
Kjartan Jóhannsson:
Herra forseti. Það má í sjálfu sér halda því fram að það kosningakerfi, sem felst í því frv. sem hér er til umr., sé meingallað. Það má gera á ýmsum forsendum. En það hefur einn mikinn kost, það er nefnilega langtum skárra en það kerfi sem við búum við núna. Það er ekki svo lítill kostur og nægir í rauninni til þess að mæla með frv. meðan ekki hefur náðst samstaða um annað betra. Af þessu leiðir að við Alþfl.menn lítum á það, sem í þessu frv. felst, sem áfanga til réttrar áttar. Í annan stað felst í þessum orðum mínum að við lítum svo á að ef unnt reynist á þessu þingi að ná samstöðu um enn frekari úrbætur þá tökum við því fagnandi og erum til þess fúsir að vinna með öðrum að því.
Ég þarf tæpast við umr. um þetta frv. til laga um kosningar til Alþingis að minna á langa baráttu Alþfl. fyrir jöfnun kosningarréttar og frumkvæði hans og þátttöku í þeim úrbótum sem gerðar hafa verið í þeim efnum á hverjum tíma. Nú er nokkuð langt um liðið síðan seinast voru gerðar úrbætur í jöfnun kosningarréttar og hefur mjög horfið til rangrar áttar í millitíðinni. Þess vegna höfum við Alþfl.-menn líka margoft gert þetta að umtalsefni á undanförnum áratug eða jafnvel hálfan annan áratug. Það hefur ætíð verið stefnuskráratriði hjá Alþfl. að draga úr misrétti og auka jafnrétti að því er kosningarrétt varðar.
Það eru í rauninni mannréttindi að kosningarrétturinn sé jafn. Íslendingum hefur gengið illa að uppfylla það skilyrði, svo ekki sé sterkar tekið til orða. Eins og kerfið hefur verið seinustu árin eða áratugina a. m. k. hafa menn búið við óviðunandi skerðingu á mannréttindum að því er kosningarrétt varðar.
Það er vitaskuld engin afsökun þó að misrétti ríki á öðrum sviðum. Misrétti á einu sviði getur ekki réttlætt misrétti á öðrum sviðum. Það á að leiðrétta misréttið hvar sem það birtist og hvaða nafni sem það nefnist. Af þeim sökum eru þau rök haldlaus t. d. að vegna hugsanlegs eða áþreifanlegs aðstöðumisréttis af ýmsu tagi, t. d. að því er varðar þjónustu, milli mismunandi hluta í landinu skuli menn láta óbreytt það misrétti sem ríkir í kosningarréttinum. En í þessu felst þá jafnframt að menn hljóta að gera þá kröfu að það misrétti, sem ríkir í aðstöðu, sé líka leiðrétt eftir mætti og eins fljótt og frekast er unnt. Einmitt í þá veru gerði Alþfl. till. um það á s. l. vetri, þegar þessi mál voru til umfjöllunar, að stjórnmálaflokkarnir byndust samtökum um að snúa sér jafnframt að öðrum misréttismátum og úrlausn þeirra. Yfirlýsing þess efnis var samþykkt af hálfu stjórnmálaflokkanna og fylgdi frv. til l. um breytingar á stjórnskipunarlögum þegar það var lagt fram í fyrra. Þess vegna leggjum við líka áherslu á að sá þáttur samkomulagsins verði nú efndur og að menn snúi sér að því af fullu afli að taka á þeim málum sem í þeirri yfirlýsingu felast.
Í þeirri lotu sem leiddi til þess frv. sem hér er til umr. má segja að komið hafi fram þrjú meginviðhorf við upphaf mátsins. Framsfl. tók þá afstöðu að flytja skyldi, ef svo má orða það, svonefnd uppbótarþingsæti á suðvesturhorn landsins og láta þar við sitja. Alþb. og Sjálfstfl. lýstu því strax við upphaf lotunnar yfir að þeir teldu það ekki rétta leið en töldu hins vegar ekkert því til fyrirstöðu að fjölga þm. mjög verulega til að ná því ásættanlega markmiði sem þeir töldu að stefna þyrfti að. Í því sambandi voru oft nefndar tölur á bilinu 67–70 þm.
Strax við upphaf þessara viðræðna og þessarar umfjöllunar benti Alþfl. á að að því frágengnu að gera landið að einu kjördæmi eða stækka kjördæmin mjög verulega ætti að vera unnt að ná þeim jöfnuði, sem að virtist vera stefnt, með því að hafa þm. 63 svo framarlega sem úthlutunarreglum þingsæta yrði breytt. Jafnframt að með því að breyta úthlutunarreglum þingsæta og halda sig við þessa tölu þingsæta, 63, mætti í rauninni ná meiri jöfnuði en við enn frekari fjölgun þingsæta og óbreyttar reikniaðferðir við úthlutun þingsæta. Í reikniaðferðunum sjálfum var þannig og er fólgið mjög mikið misrétti sem næsta ókleift er að leiðrétta öðruvísi en að breyta úthlutunarreglunum sjálfum. Þessi sjónarmið urðu ofan á eftir ítarlega umfjöllun í öllum flokkum og þau móta það frv. sem hér liggur fyrir. Við Alþfl.-menn teljum það verulegan áfanga í sjálfu sér að menn hafi þannig tekið sér það tak að líta á úthlutunarreglurnar sjálfar og það misrétti sem í þeim hefur verið fólgið og leitast við að leiðrétta það með því að taka á vandamálinu þar sem það einmitt er.
Þingflokkur og flokksstjórn Alþfl. fjölluðu oft um þetta mál á s. l. vetri þar sem þessi sjónarmið flokksins og þau markmið um jöfnuð, sem við vildum stefna að, voru áréttuð. Við töldum að líta ætti á þann möguleika að gera landið að einu kjördæmi eða stækka kjördæmin en að því frágengnu yrðu menn að ganga til verksins eins og ég hef hér lýst. Ég sé ekki ástæðu til þess hér eða nú að rekja þessar samþykktir Alþfl. sérstaklega en vísa til ræðu minnar við afgreiðslu á frv. til stjórnskipunarlaga í fyrra varðandi þetta atriði.
Í þessu frv., eins og það liggur hér fyrir, felst að mínum dómi tilraun til þess að draga verulega úr misrétti sem í gildi er í þjóðfélaginu. Í þessu frv. birtist hve langt menn náðu með bærilegu samkomulagi á s. l. vetri. Frv. ber þess vitaskuld merki að um málamiðlun er að ræða milli andstæðra sjónarmiða, bæði að því er byggðarlög varðar og að því er flokka varðar. Fæstir, kannske engir, hafa fengið nákvæmlega það sem þeir sóttust eftir heldur einungis hluta af því. Þetta er þess vegna spor í rétta átt en einungis áfangi að mínum dómi og að dómi okkar Alþfl.-manna.
Á þessu frv. eru vitaskuld hnökrar og ýmislegt sem menn geta hnotið um. Reglur, sem fylgt er, eru t. d. óþarflega eða óþægilega flóknar að mínum dómi og sum atriði virðast ekki með öllu sanngjörn eða fyllilega rökstudd. Af þessum sökum — og þetta gildir einkum að því er varðar úthlutun jöfnunarsæta — höfum við nokkurn fyrirvara um það atriði og við kysum að þar mætti betrumbæta og einfalda. Hins vegar var hér staðar numið í fyrra eins og frv. liggur fyrir og því skulum við halda meðan samkomutag hefur ekki náðst um annað betra og einfaldara.
Þetta frv. fer nú til skoðunar í sérstaklega kjörnum nefndum. Ég vænti þess að sú athugun verði vönduð og vendileg en þó fljótvirk því að það á ekki og má ekki draga lengi að ganga frá þessu máli. Ég get fyllilega tekið undir þau sjónarmið sem komu fram fyrr í umr. um þetta mál að óeðlilegt er að Alþingi sitji á öðrum grundvelli og ósanngjarnari en þeim sem menn hafa náð samkomulagi um, sitji löngum á þeim grundvelli, enda hefur venjan verið sú að gengið yrði eins fljótt og mögulegt er til kosninga eftir að gengið hefur verið frá stjórnarskrárbreytingu og kosningalagabreytingu í sambandi við það. Ég skal ekki fara lengra inn á þá sálma, herra forseti, en gangur þess máls var rakinn mjög ítarlega í umr. fyrir tveim dögum.
Kostir frv., sem hér liggur fyrir, felast annars vegar í því að ná betri jöfnuði milli stjórnmálaafla í landinu og hins vegar í því að draga úr misrétti milli landshluta ef við eigum að halda okkur við hin einföldustu grundvallaratriði sem geta talist sérstakir kostir frv.
Um önnur atriði var í sjálfu sér ekki jafn ítarlega fjallað í umfjöllun stjórnmálaflokkanna á sínum tíma og nefni ég þar atriði eins og það sem venjulega hefur gengið undir nafninu persónukjör. Í þeim efnum náðu stjórnmálaflokkarnir tiltölulega skammt í fyrra og vissulega væri ástæða til að gefa því máli sérstakan gaum og auka valfrelsi kjósenda, bæði frá því sem í gildi er og frá því sem í þessu frv. er. Við hefðum talið það bæði æskilegt og eðlilegt að farið yrði í það nú að leita eftir samstöðu um aukið valfrelsi í þessum efnum.
Varðandi reikniverkið sjálft í því kosningakerfi, sem hér er lagt til vil ég vísa til mjög ítarlegrar grg. sem fylgir þessu frv. og ekki gera það frekar að umtalsefni á þessu stigi þó að ástæða kynni að vera til þess, tel að ýmsu leyti eðlilegra að sú umfjöllun fari að verulegu leyti fram í hinum sérkjörnu nefndum.
En hins vegar vil ég enn og aftur minna á þá yfirlýsingu sem fylgdi því samkomulagi sem gert var í fyrra um það að þingflokkarnir mundu beita sér fyrir aukinni valddreifingu og virkara lýðræði samhliða afgreiðslu nýrrar stjórnarskrár, m. a. að fá sveitarfélögunum meira sjálfsforræði og þannig verði völd og áhrif landsmanna á þeirra eigin málum aukin óháð búsetu þeirra. Jafnframt að þingflokkarnir muni beita sér fyrir sérstökum aðgerðum til þess að jafna félagslega og efnalega aðstöðu manna þar sem mismununar vegna búsetu gætir helst.
Þessi yfirlýsing er í sannteika tvíþætt. Annars vegar varðar hún stjórnarskráratriðið og hins vegar varðar hún efnahagsleg og félagsleg atriði sem eru utan stjórnarskrár.
Að því er hið síðara varðar er ekkert því til fyrirstöðu að á því sé tekið óháð því hvernig endurskoðun stjórnarskrárinnar miðar. Ég vil gera það að till. minni að forustumenn stjórnarflokkanna, þ. e. annars vegar 1. flm. þessa frv. og í annan stað 2. flm. þessa frv., hæstv. forsrh., hafi frumkvæði og forustu um það starf sem þarf að inna af hendi í þessu sambandi. Get ég þessa sérstaklega til þess að ýta á eftir því að þetta starf verði unnið og tel eðlilegt að forustan hvíli á þessum höndum með tilliti til þess að hér þarf sjálfsagt að gera ýmsar athuganir sem eðlilegt er að ríkisstj. standi undir að því er kostnað varðar.
Um hið fyrra atriði, afgreiðslu nýrrar stjórnarskrár og það sem því fylgir, vil ég minna á að Alþfl. lagði á það áherslu í fyrra að stjórnarskráin í heild sinni yrði afgreidd samhliða þeirri breytingu sem væri verið að semja um og gera á þeim atriðum sem vörðuðu kosningarréttinn í landinu. Þetta varð ekki ofan á í fyrra. Ekki var meiri hluti fyrir því í þinginu. En við erum enn þessarar skoðunar, Alþfl.-menn, að bæði sé æskilegt og nauðsynlegt að hin endurskoðaða stjórnarskrá komi sem allra fyrst til umfjöllunar í þinginu. Ég vil jafnframt upplýsa að þingflokkur Alþfl. hefur þegar svarað þeirri málaleitan sem formaður stjórnarskrárnefndar beindi til þingflokkanna fyrir jól um umsögn um frv. eins og það liggur nú fyrir. Þeirri málaleitan var beint til þingflokkanna með bréfi frá stjórnarskrárnefnd og þingflokkur Alþfl. hefur svarað því sömuleiðis með bréfi.
Herra forseti. Ég skal ekki fjölyrða öllu frekar um þetta frv. á þessu stigi en ítreka það, sem ég sagði í upphafi, að þó að menn geti kannske talið þetta frv. að ýmsu leyti gallað hefur það einn yfirgnæfandi kost, það er miklu betra en það kerfi sem við höfum búið við. Meðan ekki hefur annað betra fundist, sem náðst hefur samstaða um, er þetta ærin og næg ástæða til að mæla með samþykkt þess.