31.10.1983
Efri deild: 10. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 429 í B-deild Alþingistíðinda. (299)

42. mál, orkulög

Ólafur Jóhannesson:

Virðulegi forseti. Það er ekki meining mín að tefja þetta mál með löngum umr. En það kom aðeins fram misskilningur í máli hv. þm. Þorv. Garðars. Ég sagði ekki að þetta mál varðaði ekki Landsvirkjun. Það sagði ég ekki. Ég sagðist ekkert ætla að tala hér um Landsvirkjun eða blanda einstökum fyrirtækjum inn í þessar umr.

Í öðru lagi mætti spyrja hann, af því að hann hefur sýnt fram á að það séu almenn ákvæði sem hann telur heppileg varðandi öll önnur fyrirtæki í þessum geira, að mér skilst, en Landsvirkjun, hvaða ástæður telur hann vera efnislegar fyrir því að allt aðrar reglur að þessu leyti gildi um Landsvirkjun en önnur fyrirtæki sömu gerðar? Í því sambandi tel ég að ekki gott og gilt að vísa til einhverra samninga. Ég veit að hann er mér hjartanlega sammála um það að einstakir aðilar geta ekki gert samninga sem binda á einhvern hátt hendur löggjafarvaldsins. Ég skal ekki segja frekar um þetta en vildi aðeins undirstrika það, að það var á misskilningi byggt að ég hefði haldið því fram að mál þetta varðaði ekkert Landsvirkjun. Það hef ég ekki sagt.