08.03.1984
Sameinað þing: 63. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 3530 í B-deild Alþingistíðinda. (3021)

378. mál, ríkisfjármál 1983

Fjmrh. (Albert Guðmundsson):

Virðulegi forseti. Það er furðulegt með virðulegan 8. þm. Reykv. að hann heldur hér eiginlega sömu ræðuna með mismunandi áherslum fund eftir fund og þetta er ræða sem við heyrðum áður en hann kom á Alþingi. Sem sagt, þm. eru ágætir áður en þeir verða þm., þeir eru fífl þegar þeir eru komnir inn á þing, en þeir eru enn þá meiri fífl þegar þeir verða ráðherrar. Þetta er ræða hans í hnotskurn eins og sagt er. (StB: Erum við sammála um það?) Ég er ekki að taka undir með hv. þm., það er bara dálítið leiðinleg plata að hlusta á. En málið sjálft, sem hér er á dagskrá, var afskaplega lítið rætt þannig að það er engu að svara þar.

Ég vil virða þá ósk forseta að reyna að vera stuttorður og að tala í símskeytastíl til að svara því sem ég tel mig þurfa að svara. Það eru fáar spurningar sem ég hef ástæðu til að svara og við vitum að það er ekki oft sem starfsfólk Alþingis óskar eftir því að fundir verði styttir. Virðulegur þm. Geir Gunnarsson er víst farinn enda ekkert sem ég sé ástæðu til að svara honum. Formaður Alþfl., Kjartan Jóhannsson, 3. þm. Reykn., er líka farinn en ég vil þó biðja flokkssystkini hans um skilaboð til hans: Það er mjög mikið langt frá því að ríkisstj. sé búin að missa kjark og því síður fjmrh. get ég fullvissað hann um.

Hitt er annað mál að ég kem hér fram með vanda og kynni hann mánuði áður en til stóð. Ég hafði tilkynnt áður en fjárlög voru samþykkt að ég mundi gera alþm. og Alþingi grein fyrir stöðu ríkissjóðs á þriggja mánaða fresti. Ég kem hingað með það sem annars hefur verið afgreitt í kyrrþey með aukafjárveitingum. Ég held að það sé annað en að sýna kjarkleysi. Það er að horfast í augu við vandann og það er oftast nær talin byrjun á lausn á flótta undan vanda, ef ekki lausn, þannig að ég hef þar með svarað þeim sem hafa komið að þessu atriði.

Virðulegum fyrrv. hæstv. kollega mínum hefði ég þurft að hafa miklu lengri tíma til að svara. En það er ekki að ástæðulausu að í lok maímánaðar, þegar þessi ríkisstj. tók við, voru skólarnir að loka vegna þess að ekki var hægt að greiða rafmagnsreikninga, ekki hitareikninga, ekki flutning barna til og frá skólunum. Allir sjóðir, hvar sem leitað var í öllum ráðuneytum, tómir. Því miður er ekki tími til að fara út í þessar umr., sem virðulegur þm. hóf, en ég vil þó minna á, bara til að rifja það upp af því að ég veit að fyrrv. hæstv. fjmrh. vill gleyma því, að eina ráðið, sem Alþb.-menn þekktu þá og kom fram að fundi loknum í Alþb., var að stofna til samvinnu allra flokka um fjögurra ára neyðaráætlun sem átti að framkvæma á þessum tíma til að bjarga því sem aflaga hafði farið í þeirra stjórnartíð. Þetta er skráð í Þjóðviljanum og það hlýtur að vera satt.

Virðulegi forseti. Ég veit að tíminn er afskaplega naumur. Ég vil bara segja það að þegar í ljós kom að eitthvað var til að leggja fyrir Alþingi gerði ég það til þess að alþm., bæði stjórnarþingmenn og stjórnarandstöðuþingmenn, fengju að vita af því sem áður hafði verið falið fyrir þeim. Ég var t. d. búinn að vera 10 ár þm. áður en ég hafði hugmynd um hvernig aukafjárveitingar áttu sér stað, hvernig fjárlög voru gerð frá degi til dags á annan hátt en að ég tók þátt í að afgreiða þau hér á Alþingi. Það gekk svo hratt fyrir sig að kynna þessar niðurstöður að um leið og ég fæ þær á blaði á mánudagsmorgni óska ég eftir aukafundi ríkisstj. til að kynna vandann ríkisstj. og strax þar á eftir þingflokkum sem standa að ríkisstj. og strax þar á eftir stjórnarandstöðunni, sama daginn. Og lái mér það hver sem vill þó að ég óski eftir því að fá eina til tvær vikur til að koma með lausnir. Það ætlast enginn til þess í alvöru að ég komi með lausn á þessum vanda, sem er uppsafnaður í gegnum árin, á sama degi og ég kynni vandann sjálfan. En það koma tillögur og hluti af þeim hugmyndum, sem fram hafa komið, er birtur í Tímanum. En þær eru ekki tillögur frá mér heldur hluti af mörgum öðrum hugmyndum sem hafa komið fram. Engin þeirra hefur verið rædd í ríkisstj. þannig að ekki er hægt að segja að það sé ágreiningur í ríkisstj. Það er enginn ágreiningur í ríkisstj. og hvernig sem þið látið komið þið honum ekki fyrir þar.