12.03.1984
Efri deild: 59. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 3636 í B-deild Alþingistíðinda. (3039)
135. mál, skipamælingar
Heilbr.- og trmrh. (Matthías Bjarnason):
Virðulegi forseti. Samhljóða frv. var flutt á síðasta þingi rétt fyrir þinglok og náði ekki fram að ganga. Með samþykkt þess er leitast við að samræma og einfalda þær aðferðir sem hinar ýmsu þjóðir viðhafa við mælingu skipa.
Á s. l. ári, nánar tiltekið 18. júlí, tók gildi ný alþjóðasamþykkt um mælingu skipa, sem gerð var á ráðstefnu Alþjóðasiglingamálastofnunarinnar í London 1969. Skv. lögum frá 12. maí 1970, um skipamælingar, var samþykkt að Ísland staðfesti þessa samþykkt og hefur það verið gert. Hins vegar er nauðsynlegt að breyta lítillega lögum frá 1970 um skipamælingar. Því er með þessu frv. lagt til að Siglingamálastofnun verði heimilað að mæla skip eftir núgildandi reglum jafnframt nýju reglunum, svo lengi sem ástæða þykir til.
Eftir núgildandi mætingarreglu, svokallaðri Osló-samþykkt, er mælieiningin rúmlestir, en samkvæmt nýju mælingarreglunum er stærð skipa mæld í tonnum. Þar er nokkur munur á. Vegna þess að fjölmörg ákvæði í lögum og reglugerðum hér á landi nota rúmlestir sem viðmiðunarmörk mundi tonnaviðmiðun eingöngu valda ruglingi í skipamælingum hér. Og til þess að unnt sé að ákvarða rúmlestatölu skips, þegar stærð þess skv. hinni nýju mælingasamþykkt er fundin í tonnum, er nauðsynlegt að mæta skipið aftur skv. núgildandi mælingarreglu.
Rétt er að geta þess að alþjóðasamþykktin frá 1969 nær aðeins til skipa sem eru 24 metrar að lengd eða meira. Því er óhjákvæmilegt að hafa reglur, sem ráðh. setur, um þau skip sem samþykktin nær ekki til og þess vegna er heimildarákvæði í frv. þess efnis. Ég legg til að að lokinni þessari umr. verði frv. vísað til hv. samgn.