31.10.1983
Efri deild: 10. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 435 í B-deild Alþingistíðinda. (306)

12. mál, tollskrá

Ragnar Arnalds:

Virðulegi forseti. Ég ætla sannarlega ekki að lengja þennan fund frekar með því sem ég segi. Ég vildi bara lýsa yfir stuðningi mínum við það frv. sem hér liggur fyrir. Ég hef verið þeirrar skoðunar að þau fríðindi sem felast í þessu ákvæði tollalaganna heyri liðinni tíð til og eigi ekki lengur við, eigi að afnemast. Það er öllum kunnugt að ríkisstj. sú sem starfaði undir forsæti Ólafs Jóhannessonar samþykkti að nýta ekki þessi fríðindi. Jafnhliða því var flutt frv. um afnám þess tollalagaákvæðis sem heimilar endurgreiðslu tolls af bifreiðum sem ráðherrar flytja inn.

Þess misskilnings hefur gætt í fjölmiðlum að það hafi einungis verið þetta eina ár sem reglan var ekki notuð, þ.e. milli áranna 1978 og ’79, og það hafi einungis verið ráðherrar Alþb. og Alþfl. sem stóðu að því. Þetta er á misskilningi byggt. Það voru ráðherrar allra þriggja flokkanna, sem áttu sæti í stjórn Ólafs Jóhannessonar á sínum tíma, sem stóðu að þessu. Og sama gilti um ráðherra í stjórn Gunnars Thoroddsens. Eftir að ráðherrar í ríkisstj. Geirs Hallgrímssonar höfðu hagnýtt sér þessi fríðindi, sumir eftir að sú stjórn hætti störfum, hagnýttu engir ráðherrar sér þessi fríðindi í stjórn Ólafs Jóhannessonar og stjórn Gunnars Thoroddsens. Það sem skeði svo aftur núna á þessu sumri er að reglan er endurvakin. Regla, sem hafði verið lögð til hliðar og ekki hagnýtt þó hún væri í lögum, var endurvakin. Ég ætla ekki að fjölyrða frekar um það. En hér liggur fyrir till. um það að heimildin sé tekin úr lögum í eitt skipti fyrir öll og ég styð þá till.