13.03.1984
Sameinað þing: 64. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 3662 í B-deild Alþingistíðinda. (3068)

199. mál, lífríki Breiðafjarðar

Fyrirspyrjandi (Friðjón Þórðarson):

Herra forseti. Á þskj. 356 hef ég leyft mér að bera fram fsp. til hæstv. menntmrh. sem svo hljóðar:

„Hvað hefur verið gert til að framfylgja þál. frá 22. mars 1979 um verndun og könnun á lífríki Breiðafjarðar?“

Á 100. löggjafarþingi árið 1978 flutti ég till. til þál. um verndun og könnun á lífríki Breiðafjarðar. Efnislega var tillgr. á þá leið að Alþingi ályktaði að skora á ríkisstj. að stuðla hið fyrsta að því að hið fjölþætta lífríki Breiðafjarðar yrði kannað og verndað eftir því sem þurfa þætti í samráði við heimamenn og náttúruverndarsamtök. Till. fylgdi löng og ítarleg grg. sem ekki verður gerð að sérstöku umtalsefni nú. Eftir venjulega þinglega meðferð var áðurnefnd till. samþykkt einróma sem ályktun Alþingis hinn 22. mars 1979.

Þar sem nú eru nærri full fimm ár liðin frá samþykkt till. er ekki óeðlilegt að spurt sé: Hvað hefur verið gert til að framfylgja þál. frá 22. mars 1979 um verndun og könnun á lífríki Breiðafjarðar?