13.03.1984
Sameinað þing: 64. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 3665 í B-deild Alþingistíðinda. (3073)

423. mál, íslenskt efni á myndsnældum

Fyrirspyrjandi (Eiður Guðnason):

Herra forseti. Ég vil byrja á því að þakka hæstv. menntmrh. fyrir svarið en jafnframt vekja athygli á því að efni till., það sem till. hljóðar um, hefur ekki verið framkvæmt, þ. e. till. hljóðar um það að teknar verði upp viðræður við eigendur höfundarréttar íslensks efnis sem flutt hefur verið í sjónvarpið en þetta hefur ekki verið gert. Nú er það ráðh. að fela Ríkisútvarpinu að annast þessar viðræður, eða ég lít svo á, og ég vil aðeins að það komi mjög sterklega fram að ég held að þetta verði að gera. Alþingi er búið að lýsa vilja sínum í þessu efni og ég held að skylt sé að fara að því. Raunar skil ég ekki þann hátt sem rn. hafa eftir að Alþingi hefur samþykkt þáltill. Fram kom áðan að hún var þá send til umsagnar til ýmissa aðila. Þetta hefur komið fram hér áður varðandi till.

Ég sé ekki að þegar Alþingi er búið að samþykkja einfalda viljayfirlýsingu hafi neinir aðrir aðilar í þjóðfélaginu neitt um það að segja. Þetta er vilji Alþingis sem fram er kominn í samþykkt og það mál þarf ekkert að senda til umsagnar annarra aðila. Það kom fram hér um daginn þegar ég spurði um efni till. er varðaði hjólbarða að hún hafði verið send Bifreiðaeftirliti ríkisins eftir að Alþingi samþykkti hana. Bifreiðaeftirliti ríkisins kemur málið bara ekkert við þegar Alþingi er búið að lýsa yfir sínum vilja í málinu. Þetta finnst mér vera meginatriði varðandi allar þáltill. En ég hvet sem sagt til þess að menntmrh. beini því til forráðamanna Ríkisútvarpsins að taka upp þessar viðræður við fulltrúa þeirra sem eiga höfundarrétt. Hins vegar kom það fram í svari ráðh. að Ríkisútvarpið hefur kannað möguleika á því að fjölfalda svona efni. Ég verð að segja að þau rök, sem Ríkisútvarpið ber fram, eru afar léttvæg. Auðvitað þarf að kaupa tækjabúnað sem kostar eitthvað. Auðvitað þarf að fá starfsmenn til að annast þetta. Það eru engin rök í málinu að viðhaldsdeild sjónvarpsins hafi svo mikið að gera að þetta sé ekki hægt. Þetta á að geta verið þjónusta sem stendur undir sér fjárhagslega. Það er enginn að tala um að gefa þessa þjónustu. Það á að selja þetta fyrir kostnaðarverð og það á ekki að þurfa að vera mjög dýrt.

Ég lít svo á og túlka þessi svör Ríkisútvarpsins sjónvarps þannig að enginn áhugi sé á því að hefja þessa starfsemi og ég tel það mjög miður. Mér er t. d. kunnugt um að Námsgagnastofnun hefur óskað eftir því að fá þætti, sem gerðir voru í sjónvarpinu um veðurfræði, fjölfaldaða til að nota við kennslu í skólum og eftir þessu hefur verið óskað um ýmislegt fleira efni. En þetta stendur allt á því að ekki hefur verið samið við þá sem eiga höfundarrétt. Hjá Ríkisútvarpinu — sjónvarpi virðist því miður ekki vera vilji til að framkvæma þetta og það ber að harma. Það er mikið af mjög góðu efni, eins og hæstv. ráðh. réttilega minnti á, t. d. barnaefni, sem væri ástæða til að börn hefðu meiri aðgang að en bara þegar þetta er sýnt einu sinni í sjónvarpi. Það er alls konar fræðsluefni, að ekki sé talað um íslensk leikrit og kvikmyndir, sem er nauðsynlegt að hafa aðgengilegt svona. Þetta er menningaratriði, þetta á að vera aðgengilegt og Ríkisútvarpið á að geta séð svo um að svo sé án þess að það þurfi að vera neinn fjárhagslegur baggi á þeirri stofnun.