13.03.1984
Sameinað þing: 64. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 3667 í B-deild Alþingistíðinda. (3076)

424. mál, notkun sjónvarpsefnis í skólum

Menntmrh. (Ragnhildur Helgadóttir):

Herra forseti. Hér er um skylt mál að ræða því sem við vorum að ljúka við.

Hér er svarið við þessum fsp. og ég mun reyna að gera þeim skil á 10 mín. Í fyrsta lagi um athugun á því að Námsgagnastofnun fái til dreifingar myndefni sem sjónvarpið hefur framleitt á liðnum árum og hvað kemur í veg fyrir að Námsgagnastofnun geti fengið slíkt efni til dreifingar í skólum. Svarið við þessu er að það sem aðallega hefur komið í veg fyrir að Námsgagnastofnun fengi myndefni frá sjónvarpinu til notkunar í skólum er að allt efni er háð höfundarrétti skv. höfundalögum nr. 73/1972. Hvaða höfundar eiga þar hlut að máli hverju sinni ræðst af því hvert efnið er og hvernig að upptöku þess á myndband eða kvikmyndafilmu hefur verið staðið.

Menntmrn. óskaði eftir því við höfundarréttarnefnd að hún léti rn. í té álitsgerð um málið. Nefndin skilaði áliti sínu í nóvember s. l. og verður hér á eftir rakið ýmislegt sem máli skiptir í því sambandi.

Í fyrsta lagi er samþykki höfunda nauðsynlegt. Skv. 3. gr. höfundalaga hefur höfundur einkarétt til að gera eintak af verki sínu og til að birta það og þarf því samþykki hans til að verk sé tekið á myndband, að fleiri eintök séu gerð af myndbandinu og til opinberrar sýningar verksins af myndbandinu.

Í öðru lagi um heimildir Ríkisútvarpsins, og í því sambandi um framsal höfundarréttar. Höfundur hefur víðtæka heimild til þess að framselja réttindi sín. Framsal getur byggst á sérstökum samningi milli aðila en einnig getur höfundarréttur gengið til annars aðila um leið og verkið verður til á grundvelli samstarfssamnings. Rétt er að leggja áherslu á að myndefni í sjónvarpi er annaðhvort framleitt af Ríkisútvarpinu sjálfu eða öðrum aðilum.

Athuga þarf heimildir um aðfengið efni. Þegar Ríkisútvarpið kaupir verk til sýningar felst í kaupunum framsal höfundarréttar að einhverju leyti. Hve víðtækt það framsal er fer eftir ákvæðum viðkomandi samnings og þó allir slíkir samningar verði skildir fremur þröngt þarf alveg ótvíræða samningsheimild til upptöku á myndsnældur og til fjölföldunar þeirra til dreifingar vegna afnota í skólum.

Síðan er um verk sem Ríkisútvarpið framleiðir. Námsgagnastofnun óskar m. a. eftir heimild til að nýta fræðsluþætti sem Ríkisútvarpið hefur látið gera. Það fer fyrst og fremst eftir samningum við höfunda eða samtök þeirra hve víðtækan rétt Ríkisútvarpið hefur fengið ef slíkum samningum hefur á annað borð verið til að dreifa. Um slíka samninga gegnir sama máli og áður segir um aðfengið efni að þeir verða skýrðir þröngt. Til upptöku á myndsnældur og dreifingar þeirra til skóla þarf alveg ótvíræða heimild.

Herra forseti. Ég held að tími vinnist ekki til að lesa allt þetta svar þó að þar séu flest atriði sem máli skipta í þessu sambandi. Aðalatriðið er þetta, að höfundarrétturinn skiptir þarna meginmáli. Samkvæmt framansögðu verður að kanna hverju sinni hve víðtækan rétt Ríkisútvarpið hefur til ráðstöfunar þess fræðsluefnis sem í hlut á. Hins vegar er þess ekki að vænta að Ríkisútvarpið hafi almennt öðlast nægilega víðtækan rétt til þess að það geti heimilað þau not sem Námsgagnastofnun hefur óskað eftir og ég vil taka fram að ég tel mjög skynsamlegt að nýta þetta efni miklu meira í skólum en gert hefur verið og mjög nauðsynlegt að koma á þeim reglum sem það heimila.

Höfundarréttarnefndin sem fjallaði um þessa hlið málsins telur einnig eðlilegt að Námsgagnastofnun verði tryggð þau not af ýmsu því fræðsluefni sem um er að ræða og nefnir nokkrar ráðstafanir sem hægt væri að hugsa sér til úrbóta. Í fyrsta lagi að leitast verði við með samningum við rétthafa að tryggja Námsgagnastofnun þau not af verkum sem stofnunin óskar eftir. Á það bæði við um verk sem Ríkisútvarpið lætur gera og það sem það fær annars staðar frá. Slíkt gæti lotið að einstökum verkum og einnig mætti athuga möguleika á heildarsamningum. Ríkisútvarpið eða Námsgagnastofnum stæðu að slíkum samningum.

Ákvæði 2. gr. höfundalaga um not verka í þágu fræðslu þarf að taka til endurskoðunar með hliðsjón af tilkomu myndbanda. Unnið er að slíkri endurskoðun á Norðurlöndum og hún hefur verið á dagskrá á samráðsfundum formanna höfundarréttarnefndanna, þannig að gert er ráð fyrir að Íslendingar gætu orðið aðilar þar að.

Nefndin hefur einnig tjáð sig um þá hugmynd að nú verði leitað samkomulags um not einstakra fræðsluþátta sem eru í vörslu Ríkisútvarpsins og Námsgagnastofnunin hefur sérstaklega leitað eftir. Við slíka samningsgerð hefur fengist reynsla sem komið gæti að gagni bæði við endurskoðun höfundalaganna og gerð heildarsamninga við samtök réttahafa.

Af þessu sem ég hef nú sagt má sjá að því miður er ekki um neina skjóta eða einfalda heildarlausn á máli þessu nú þegar að ræða en fullur vilji er fyrir því af hálfu menntmrn. að reynt verði og stuðlað að því að greiða fyrir samningum sem fyrst og öðrum úrbótum í þessu efni.

Að því er varðar spurningu um stefnu mína í því að nota þessa mikilvægu og sterku fjölmiðla í skólakerfinu hefur skoðun mín á því komið fram bæði í svari mínu við þessari fsp. svo og við fyrri fsp. Ég hef mjög reynt að stuðla að því að þessu verði komið á og geri mér grein fyrir að höfundarréttur stendur þarna nokkuð í vegi og vona að það verði einfaldara ef frv. til höfundalaga nær fylgi á Alþingi.

Þessi sömu svör eiga í raun og veru við um fjórðu spurninguna líka. Þessi sömu atriði koma einnig til greina í sambandi við samvinnu um skólasjónvarp þannig að allt verður þetta skoðað í því samhengi og tekið upp til nýrrar skoðunar þegar ljóst verður um afdrif höfundalagafrv.