13.03.1984
Sameinað þing: 64. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 3671 í B-deild Alþingistíðinda. (3080)

424. mál, notkun sjónvarpsefnis í skólum

Fyrirspyrjandi (Karl Steinar Guðnason):

Herra forseti. Ég þakka þau svör sem hér hafa komið fram. Ég tel þau þó markast af því að lítið hafi verið gert til að hafa frumkvæði í þessum málum. Ég veit að núv. menntmrh. hefur verið stutt í embætti en ég treysti því að hún hafi ákveðið frumkvæði í þessu og efast ekki um hennar vilja til að gera slíkt.

Ríkisútvarpið — sjónvarp hefur verið aðalframleiðandi myndefnis á myndbönd og hentar sumt af því skólunum mjög vel. Ég veit að margsinnis hefur verið leitað eftir því af Námsgagnastofnun að fá slíkt efni til notkunar í kennslu en ekkert hefur skeð. Það hefur þvælst í kerfinu og ekkert skeð. Ekki þarf að segja mér að margra ára vinnu þurfi til að ræða við höfunda um þessi mál. Vissulega þarf að virða höfundarrétt og það verður að ná samkomulagi en ég efast um að það sé flókið að fá mann eins og Ómar Ragnarsson til að gefa leyfi til að fjölfalda þá þætti er hann hefur gert um íslenska náttúru og íslenskt þjóðlíf. Tökum t. d. þátt Markúsar Á. Einarssonar um veðrið, sem óskað hefur verið eftir en ekki fengist enn þá. Ég trúi því ekki að það sé svo flókið að fá þessa menn til að leyfa að slíkir þættir verði teknir upp og síðan sýndir í skólum.

Ég hygg að þetta verkefni þurfi ekki heldur að vera mjög dýrt. Vissulega má selja þessar spólur á almennum markaði líka og það hlýtur að gefa tekjur. Við höfum mörg fyrirtæki í dag sem gætu sinnt þessu og búin eru ágætum tækjakosti. Vel mætti hugsa sér, að mínu viti, að fela þeim til einhvers ákveðins tíma að annast þetta verkefni á meðan ekki tekst að gera það í gegnum útvarp eða sjónvarp.

Ég endurtek áskorun mína um að menntmrh. hafi visst frumkvæði í þessu. Greinilegt er á svari hennar að hún lítur á þessi mál mjög jákvæðum augum. Ég tel að það sem nú skorti á sé einmitt þetta frumkvæði, að ýtt sé á og tekið til hendi. Því með því að hafa málið í þeim farvegi sem verið hefur gengur ekki neitt enda liggur það fyrir að málin eru eins stödd og fyrir mörgum árum síðan.