13.03.1984
Sameinað þing: 64. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 3673 í B-deild Alþingistíðinda. (3083)

185. mál, greiðslur ríkisfyrirtækja til Vinnuveitendasambandsins

Forsrh. (Steingrímur Hermannsson):

Herra forseti. Fyrst nokkur orð vegna ummæla hv. þm. um að nokkurn tíma hafi tekið að ná saman þessum upplýsingum. Ég vil upplýsa að það er út af fyrir sig rétt, en stafar af því að reikningar viðkomandi fyrirtækja fyrir s. l. ár lágu ekki fyrir hjá Ríkisendurskoðun, og því varð að fá þessar upplýsingar beint frá hverju fyrirtæki og tók nokkurn tíma. Síðustu upplýsingarnar komu núna rétt fyrir hádegið.

1. spurningin er: „Hvaða fyrirtæki, „sem eru í umsjá iðnrn.“, munu sækja um aðild eða hafa sótt um aðild að Vinnuveitendasambandi Íslands?“

Iðnrh. hefur í samræmi við þá ákvörðun sína sem kynnt var á fundi ríkisstj. 26. janúar s. l. beint þeim tilmætum til eftirgreindra fyrirtækja að þau sæki um inngöngu í samtök vinnuveitenda:

1. Sementsverksmiðja ríkisins, 2. Íslenska járnblendifélagið hf., 3. Þörungavinnslan hf., 4. Kísiliðjan hf. Um þessi fjögur fyrirtæki er það að segja að þau munu sækja um fulla aðild að Félagi ísl. iðnrekenda og verða þar með aðilar að VSÍ. Þessi fyrirtæki hafa um skeið verið aukameðlimir að Félagi ísl. iðnrekenda skv. sérstökum samningi milli Félags ísl. iðnrekenda og hvers fyrirtækis um sig.

Þá eru fyrirtæki þar sem nokkuð annar háttur verður á hafður.

5. Landssmiðjan. Gert er ráð fyrir að Landssmiðjan verði aðili að VSÍ með því að gerast fullgildur meðlimur í Meistarafélagi járniðnaðarmanna og þar með að Sambandi málm- og skipasmiðja. Landssmiðjan hefur seinustu ár verið aukameðlimur í Sambandi málm- og skipasmiðja. 6. Sjóefnavinnslan hf. Gert er ráð fyrir fullri aðild Sjóefnavinnslunnar hf. að Félagi ísl. iðnrekenda og þar með að VSÍ. 7. Rafmagnsveitur ríkisins. Gert er ráð fyrir beinni aðild RARIK að VSÍ. 8. Jarðboranir ríkisins. Gert er ráð fyrir beinni aðild Jarðborana ríkisins að VSÍ. 9. Landsvirkjun. Gert er ráð fyrir beinni aðild Landsvirkjunar að VSÍ.

2. spurning: „Er ætlunin að önnur fyrirtæki ríkisins, t. d. Áburðarverksmiðjan, verði látin sækja um aðild að Vinnuveitendasambandinu?“

Eins og þegar hefur komið fram hjá mér í umr. um þetta mál lít ég svo á, að þar sem ekki er um annað samið á milli stjórnarflokkanna sé þetta ákvörðun hvers einstaks ráðherra. Landbrh. hefur alveg nýlega tilkynnt ríkisstj. að hann geri ráð fyrir að Áburðarverksmiðjan hf. gerist aðili að VSÍ. Aðrar ákvarðanir hafa ekki verið teknar svo ég viti.

Í þriðja lagi: „Hve miklar upphæðir greiða fyrirtæki ríkisins til VSÍ á árinu 1984? Sundurliðun óskast eftir fyrirtækjum. Eftir hvaða reglum eru gjöldin til VSÍ ákveðin?“

Það er kannske rétt að koma að síðasta lið spurningarinnar fyrst.

Kostnaður vegna aðildar að VSÍ er 0.4% og nefnist þjónustugjald af heildarlaunagreiðslum næstliðins árs, þ. e. kostnaður vegna fullrar aðildar árið 1984 reiknast af launum ársins 1983. Endanlegar tölur um launagreiðslur fyrirtækjanna, sem í hlut eiga, á árinu 1983 liggja ekki fyrir hjá Ríkisbókhaldi, en með aðstoð iðnrn. hefur upplýsinga um það efni verið aflað frá hinum einstöku fyrirtækjum beint.

Vert er einkum að hafa tvennt í huga í þessu efni: Annars vegar tekur verulegur hluti starfsmanna þessara fyrirtækja laun samkv. kjarasamningum BSRB eða BHM við fjmrh. Á það t. d. við um ýmsa tæknimenn, sérfræðinga og skrifstofumenn.

Samkv. lögum nr. 46 frá 1973, um kjarasamninga opinberra starfsmanna, og lögum nr. 29 frá 1976, um kjarasamninga BSRB, er það samninganefnd ríkisins sem af hálfu fjmrh. annast samninga við starfsfólk þessara sambanda. Til Vinnuveitendasambandsins fara að sjálfsögðu aðeins þjónustugjöld vegna þeirra starfsmanna ríkisfyrirtækja sem VSÍ annast samninga við.

Hins vegar ber að benda á að greiðslur til VSÍ verða í réttu hlutfalli við þann hluta ársins sem aðildin varir, þ. e. fyrirtæki sem t. d. gengur í VSÍ 1. apríl n. k. greiðir af 2/3 hlutum heildarlaunagreiðslna næstliðins árs. Af framangreindum fyrirtækjum eru það aðeins tvö, þ. e. Rafmagnsveitur ríkisins og Landssmiðjan, sem nú þegar hafa fengið fulla aðild að Vinnuveitendasambandi Íslands.

Þetta ber að hafa í huga þegar tölur verða nefndar hér á eftir sem byggðar eru á þeim upplýsingum um heildartaunagreiðslur fyrirtækjanna 1983 sem aflað hefur verið. Skal ég þá geta um upphæð eins og ef um heilt ár væri að ræða og svo hins vegar miða við 1. apríl t. d. án þess að ég geti fullyrt að fyrirtækin verði þá öll orðin fullgildir aðilar.

1. Sementsverksmiðja ríkisins. Heildarlaunagreiðslur árið 1983 voru 62 millj. 804 þús. kr. BSRB- og BHM-starfsmenn fengu þar af í laun 7 millj. 707 þús. 800 kr. Þjónustugjöld til VSÍ reiknast því af 55 millj. 96 þús. kr. Miðað við heilt ár væru það 220 þús., miðað við aðild frá 1. apríl n. k. væru þjónustugjöld 147 þús. kr.

2. Íslenska járnblendifélagið hf. Heildarlaunagreiðslur árið 1983 voru 60 millj. 336 þús. 720 kr. Starfsmenn samkv. sérkjarasamningi fá þar af í laun 10 millj. 513 þús. 792 kr., þ. e. BHM og BSRB. Þjónustugjöld til VSÍ reiknast því af 49 millj. 822 þús. 928 kr. Miðað við heilt ár væru það 199 þús. kr., en miðað við aðild frá 1. apríl n. k. væru þjónustugjöld 132 þús. kr.

3. Þörungavinnslan hf. Heildarlaunagreiðslur árið 1983 9 millj. 401 þús. 529 kr. Þjónustugjöld til VSÍ miðað við heilt ár væru kr. 37 þús., en miðað við aðild frá 1. apríl n. k. væru þjónustugjöld 25 þús. kr.

4. Kísiliðjan hf. Heildarlaunagreiðslur 1983 26 millj. 255 þús. 799 kr. Samkv. sérkjarasamningi fengu starfsmenn í laun 2 millj. 572 þús. 840 kr. Þjónustugjald til VSÍ reiknast því af 23 millj. 682 þús. 959 kr. Miðað við heilt ár væru það 94 þús. kr., en miðað við aðild frá 1. apríl n. k. væru þjónustugjöld 63 þús. kr.

5. Landssmiðjan. Heildarlaunagreiðslur 1983 voru 21 millj. 65 þús. 648 kr. Samkv. sérkjarasamningi fóru þar af í laun 4 millj. 91 þús. 156 kr. Þjónustugjald til VSÍ reiknast því af 16 millj. 974 þús. 492 kr. Miðað við heilt ár væru það 67 þús. kr. en miðað við aðild frá 1. apríl n. k. væri þjónustugjald 45 þús. kr.

6. Sjóefnavinnslan hf. Heildarlaunagreiðslur voru á seinasta ári 5 millj. 199 þús. 641 kr. BSRB- og BHM-starfsmenn eða aðrir skv. sérkjarasamningum sem ekki falla inn í VSÍ fengu þar af í laun 874 þús. kr. Þjónustugjald til VSÍ er því reiknað af 4 millj. 325 þús. 641 kr. Miðað við heilt ár væru það 17 þús. kr., en með aðild frá 1. apríl n. k. 11 þús. kr.

7. Rafmagnsveitur ríkisins. Heildarlaunagreiðslur 1983 voru 150 millj. 737 þús. kr. BSRB- og BHM-starfsmenn eða aðrir skv. sérkjarasamningi fengu þar af í laun 59 millj. 51 þús. kr. Þjónustugjöld til VSÍ reiknast því af 91 millj. 686 þús. kr. Miðað við heilt ár væru það 366 þús. kr., en miðað við aðild frá 1. apríl n. k. yrði þjónustugjaldið 244 þús. kr.

8. Jarðboranir ríkisins. Heildarlaunagreiðslur 1983 voru 20 millj. 582 þús. 335 kr. BSRB- og BHM-starfsmenn eða aðrir skv. sérkjarasamningi fengu þar af í laun 3 millj. 2 þús. kr. Þjónustugjald til VSÍ reiknast því af 17 millj. 560 þús. 335 kr. Miðað við heilt ár væru það 70 þús. kr., en miðað við aðild frá 1. apríl n. k. eru þjónustugjöldin 46 þús. kr.

9. Landsvirkjun. Heildarlaunagreiðslur fyrir 1983 eru 131 millj. 200 þús. kr. BSRB- og BHM-starfsmenn fengu þar af í laun 49 millj. 593 þús. 600 kr. Þjónustugjöld til VSÍ reiknast því af 81 millj. 606 þús. 400 kr. Miðað við heilt ár væru það 326 þús. kr. Miðað við aðild frá 1. apríl n. k. yrðu þjónustugjöldin 217 þús. kr.

Heildarþjónustugjöld til VSÍ miðað við aðild allt árið 1984 hefðu því orðið 1 millj. 396 þús. kr. Heildarþjónustugjöld til VSÍ miðað við aðild frá og með 1. apríl n. k. yrðu 930 þús. kr.

Eins og fram hefur komið fer samninganefnd ríkisins f. h. fjmrh. með samninga við stéttarfélög opinberra starfsmanna. Vinnumálanefnd ríkisins, sem skipuð var í nóv. 1973, hefur hins vegar verið ráðherrum og ráðuneytum svo og einstökum atvinnufyrirtækjum ríkisins til aðstoðar við gerð kjarasamninga um kaup og kjör þeirra starfsmanna sem félagar eru í verkalýðsfélögum innan Alþýðusambands Íslands. Skv. upplýsingum ríkisbókhaldsins var kostnaður vegna þeirrar nefndar 388 þús. 473 kr. árið 1982. Endanlegur kostnaður vegna ársins 1983 liggur ekki fyrir, en hann er áætlaður 590 þús. kr.

Það skal einnig tekið fram að í viðtölum við stjórnir og stjórnendur þessara fyrirtækja kom fram að þau hafa borið verulegan kostnað af samningum sínum við hin ýmsu stéttarfélög og þau telja að með aðild að VSÍ muni þeim einnig sparast hluti af þeim kostnaði. Sömuleiðis kom fram í þeim viðræðum að þau hafa notið þjónustu Félags ísl. iðnrekenda og telja að með því sem þau hafa greitt þangað hafi þau fengið ágæta þjónustu og þess virði sem fyrir hefur verið greitt.

Um aðrar spurningar hv. þm. get ég lítið sagt. Málið var rætt í þingflokki Framsfl. og ákveðið að láta það afskiptalaust. Ég hef ekki rætt við stjórnir viðkomandi fyrirtækja og hef engar upplýsingar um viðhorf þeirra. Mér er þó kunnugt um að stjórnendur Áburðarverksmiðjunnar leggja áherslu á að fá aðild að VSÍ.

Um það hvort vinnumálanefnd ríkisins verði lögð niður get ég ekkert sagt. Því mun fjmrh. væntanlega svara.