13.03.1984
Sameinað þing: 64. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 3680 í B-deild Alþingistíðinda. (3090)

185. mál, greiðslur ríkisfyrirtækja til Vinnuveitendasambandsins

Ólafur Ragnar Grímsson:

Herra forseti. Samvinnuhreyfingin í landinu kynnir alþjóð í sjónvarpi viðhorf sín til þjóðfélagsins með því að leggja á borð þrjá spilastokka. Í þessari auglýsingu er sérstakur spilastokkur fyrir ríkisrekstur, sérstakur spilastokkur fyrir einkarekstur og sérstakur spilastokkur fyrir samvinnurekstur. (Gripið fram í.) Það er alveg rétt, það eru ýmsir gosar þar.

Það sem gerst hefur í þessu máli er að ráðherrar Framsfl. hafa tekið að sér að flytja allmörg spil úr ríkisbunkanum yfir í einkarekstrarbunkann hvað snertir forræði á samningamálum og fjármagn til hagsmunagæslu. Þannig blasir þetta mál á mjög einfaldan hátt við almenningi, sem oft í viku hverri fær að sjá þá mynd sem samvinnuhreyfingin hefur látið gera og sýna í sjónvarpi til að útskýra hin einföldu lögmál þjóðfélagssamsetningarinnar. Það verður þess vegna ekki fram hjá því gengið að forusta Framsfl. hefur kosið að styrkja vinnuveitendasambandsbunkann allrækilega í þessum þjóðfélagslegu spilum.

Það er mjög fróðlegt að heyra hæstv. iðnrh. koma hér og lýsa húsbóndavaldi sínu yfir Framsfl. og sjá Pál Pétursson, Steingrím Hermannsson og Jón Helgason sitja fáorða, nánast þegjandi, undir þessari lýsingu hæstv. iðnrh. Sverris Hermannssonar á því að hann sé orðinn sérstakur gæslumaður á samvisku Framsfl. — stefnu sem týnst hafi fyrir mörgum árum, en hann hafi nú tekið að sér að hrinda í framkvæmd. Ég óska Framsfl. til hamingju að vera búinn að fá þennan sátnahirðir fyrir stefnuna, hæstv. iðnrh. Sverrir Hermannsson. Hins vegar vil ég minna þann sama ráðh. á að þeir sem nú eru í forustu fyrir samtökum launafólks í landinu hafa hafnað algerlega þessari gjörð. Samtök launafólks hafa mótmælt þessari hefndarráðstöfun, sem hæstv. iðnrh. greip til þegar hann var í stríði við launafólk hjá ÍSAL-verksmiðjunni og hefur í för með sér það að Vinnuveitendasamband Íslands hefur núna mun meiri fjárráð til þess að heyja stríð sitt við launafólkið í landinu.