13.03.1984
Sameinað þing: 64. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 3681 í B-deild Alþingistíðinda. (3091)

185. mál, greiðslur ríkisfyrirtækja til Vinnuveitendasambandsins

Guðmundur Einarsson:

Herra forseti. Ég ætlaði að gera hérna nokkrar aths.

Í fyrsta lagi ætlaði ég að benda á að umrædd 0.4% eru miðuð við hærra verðbólgustig en við sjáum fram á núna, þannig að hér er um að ræða umtalsvert meiri peninga en hefðu komið þarna til greiðslu á allra síðustu árum. Það er spurning hvort ríkið ætti kannske að fara fram á endurskoðun á 0.4% framlaginu, miðað við þá verðtagsþróun sem verið hefur að undanförnu. Þessar 1.5–2 millj. verða til viðbótar styrk sem þegar er veittur frá ríkinu til hagdeildar VSÍ á fjárlögum íslenska ríkisins. Þarna er því ansi vel að verið. Ætli ekki láti nærri að hægt sé að ráða 3–6 menn í fulla vinnu fyrir það fé til að sinna þessum vettvangi?

Vegna ummæla hæstv. iðnrh., sem komu fram hérna áðan, þá fyrst um ÍSAL og erlent forræði í samningum, væri kannske ágætt að spyrja hvort ríkisstj. hafi þakkað ÍSAL fyrir að benda sér á þetta erlenda forræði, því að frumkvæðið að inngöngunni í VSÍ kom frá ÍSAL en ekki ríkisstj., sem þó kvartar yfir þessu erlenda forræði.

Það má líka spyrja hvort samningamenn launþega hjá ÍSAL hafi þá verið að semja við strengjabrúður frá Sviss í nýafstöðnum samningum, vegna þess að ekki var ÍSAL aðili að VSÍ í þeim samningum sem nú eru nýafstaðnir.

Um önnur ummæli hæstv. iðnrh. um nauðsyn á styrkingu heildarsamtaka á vinnumarkaði vil ég segja að það er fróðlegt að heyra þessi ummæli núna þegar stefnan er þveröfug á flestöllum sviðum mannlegra samskipta, í fyrirtækjum, í sveitarfélögum og fjölmörgum samtökum smáum og stórum, þar sem lögð er sífellt meiri áhersla á að kljúfa þessi samtök niður, vinna í minni einingum og starfa nær fólkinu.