31.10.1983
Neðri deild: 9. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 437 í B-deild Alþingistíðinda. (310)

Umræður utan dagskrár

Halldór Blöndal:

Herra forseti. Mér finnst hv. fyrirspyrjandi vera fullviðkvæmur í mátflutningi sínum og fyrir virðingu Alþingis og misskilja raunar hlutverk Alþingis.

Það er nú svo, að löngum hefur verið lögð á það áhersla að með frv. fylgi sem nákvæmastar upplýsingar um hversu mikil útgjöld viðkomandi frv. hafi í för með sér eða hversu miklar fjárskuldbindingar. Ég sé ekki að hægt sé að gefa slíkar upplýsingar nema fyrir liggi hversu mikill vandi bænda er í sambandi við lausaskuldirnar. Ég vil jafnframt minna á að til kasta Alþingis hefur komið varðandi Bjargráðasjóð, og ég man aldrei eftir því að það hafi verið gagnrýnt að ríkisstj. hafi á hverjum tíma reynt að gera Alþingi grein fyrir þeim fjárhagsvanda sem Bjargráðasjóður hefur staðið frammi fyrir vegna erfiðleika t.d. í búskap.

Ég vil líka taka það fram sérstaklega út af þessu, að fyrir skömmu var mikið rætt um að breyta reglum um lánstíma húsnæðisstjórnarlána og jafnframt var unnið að því að lengja lán húsbyggjenda. Ég minnist þess ekki að það hljóð hafi komið úr horni í sambandi við lausn þess máls að það væri að byrja á öfugum enda að byrja á því að reyna að kanna hversu mikil þörfin væri.

Ég vil aðeins að þetta komi fram. Það er þýðingarlaust að leggja fram frv. hér án innihalds. Við afgreiðslu málsins á Alþingi verður að liggja fyrir um hversu miklar fjárhæðir er að tefla. Ég get ekki séð að það sé verra eða rýri á neinn hátt virðingu Alþingis þótt ríkisstj. reyni fyrir fram að auðvelda alþm. nauðsynlega gagnaöflun um efni þess máls sem fyrir liggur hverju sinni.