13.03.1984
Sameinað þing: 64. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 3688 í B-deild Alþingistíðinda. (3106)
Um þingsköp
Eiður Guðnason:
Herra forseti. Ég vil aðeins vekja athygli á því að hér hefur verið vakið máls á máli sem væntanlega, eins og fram hefur komið, verður til lykta leitt næst þegar fundur verður haldinn í Sþ. Forseti hefur látið svo ummælt að því aðeins sé hægt að leyfa þm. að taka til máls utan dagskrár að ráðh. hafi samþykkt að svara. Það má vel vera að þessi venja hafi viðgengist í þinginu. En þetta þýðir m. ö. o. að alþm. geta ekki kvatt sér hljóðs utan dagskrár til að vekja athygli á ákveðnum málum eða beina athygli sérstaklega að þeim nema ráðh. samþykki. Ég verð að segja að ég er ekki þingreyndur né þinggamall maður, en þetta finnst mér óviðunandi. Þm. hljóta að eiga þann rétt að geta kvatt sér hljóðs utan dagskrár án þess að ráðh. samþykki það þótt ákvæði um slíkar umr. sé að vísu ekki að finna í þingskapalögum. Það er alger andhverfa hlutanna að þm. skuli ekki geta vakið máls á málum, þ. e. að ráðh. skuli, með því að neita að svara eða hafna því að svara eða biðja um frest til að svara, geta komið í veg fyrir að þm. veki máls á málum sem þeir telja að séu brýn og þoli ekki bið.