13.03.1984
Sameinað þing: 65. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 3721 í B-deild Alþingistíðinda. (3138)
203. mál, úttekt á rekstrar- og afurðalánakerfi atvinnuveganna
Þórarinn Sigurjónsson:
Herra forseti. Mig langaði í stuttu máli, af því að það er nú farið að líða ansi á kvöldið, að leiðrétta nokkur atriði sem komið hafa fram í umr. og í fyrsta lagi það sem hv. þm. Kristófer Már Kristinsson sagði í sinni ræðu.
Hann talaði t. d. um trúnaðarbrest milli bænda og neytenda. Ég kannast ekki við slíkt, en e. t. v. er það að einhverju leyti rétt. Það hefur verið alið á vissum þáttum sem hafa haft þær afleiðingar að kannske hefur orðið trúnaðarbrestur þarna á milli. Það er okkur öllum hér inni sjálfsagt á móti skapi. Ég vil halda því fram. En ég er hræddur um að fjölmiðlar hafi stundum átt nokkurn þátt í því að ala á þessum atriðum sem gjarnan hafa orðið til þess að orðið hefur trúnaðarbrestur.
Hann minntist líka á í sinni ræðu að bændur hefðu framleitt minna, en hefði fjölgað jafnframt. Þetta er rangt. (KMK: Ég sagði að það virðist stefna búmarksins að bændur framleiddu minna.) Það er rétt, það kom á eftir. En það hefur stórfækkað fólkinu sem vinnur við landbúnaðinn. Framleiðslan hefur aftur á móti ekki minnkað. Þess vegna er þetta ekki rétt hjá hv. þm., en það getur vel skeð að búmarkið verði til þess enda er það neyðarráðstöfun sem er verið að beita til að draga úr framleiðslu.
Hv. þm. Guðmundur H. Garðarsson kom hérna að nokkrum atriðum sem ég get ekki látið hjá liða að leiðrétta út af því að hann sleit þar setningar úr samhengi í minni ræðu. Mér finnst eðlilegt að þar sé rétt eftir haft og get haft það alveg eins og ég sagði það.
Hann kom að því t. d. að hann hefði aldrei séð neina skýrslu um þessi mál nema Þorvaldar Búasonar. Mér fannst það undirstrika líka hvað hann er ókunnugur í þessu máli og hefði átt að geta kynnt sér það betur, ef hann hefði kært sig um að gera það, út af því að þessi mál hafa verið til umr. hér á þingi, eins og hv. þm. Egill Jónsson tók rækilega fram, um nokkur undanfarin ár. Þess vegna þótti mér heldur miður að hann skyldi ekki hafa kynnt sér málið betur áður en hann fór að leggja eingöngu þessa einu skýrslu til grundvallar sínu máli hvað varðarlandbúnaðinn.
Hv. þm. Guðmundur H. Garðarsson sagðist hafa áhuga fyrir bændum og viðskiptum við landbúnaðinn og væri þess vegna ekkert síður bændavinur en við hinir. Ekki rengi ég það, það dettur mér ekki í hug, en hitt vil ég segja að mér finnst, og það tók ég greinilega fram í minni ræðu, skrítið þegar þessir hv. þm., sem þykjast vera kunnugir, og eru kannske að vissu leyti, einhverjum bændum, taka upp svona mál án þess að nokkurn tíma hafi frá samtökum bænda komið fram um það ósk að þau mál væru tekin upp hér á Alþingi, þ. e. hvað varðar afurða- og rekstrarlán. Hér er þess vegna tekið upp mál af þm., sem fyrst og fremst eru þm. þéttbýlisins, sem ekki hefur sérstaklega verið samþykkt eða beðið um að flytja um till. hér á Alþingi.
Ég vil taka fram í þessu sambandi að ég sagði í minni ræðu hér áðan, sem ég ætla að endurtaka: Ekki hafa bændasamtökin mér vitanlega óskað eftir breytingum á núverandi fyrirkomutagi og ættu þau þó að hafa forustu um að fá lagfæringar á þeim sérstöku samningum sem eru um afurða- og rekstrarlán
Ég held að þarna sé innlegg í málið, að það ætti ekki síst að koma frá þeim sem verða að búa við kerfið beiðni um endurskoðun. Ég held að að þessu leyti ættum við að hlusta á þá fyrst og fremst. Hinu er ég sammála, og ég hef ekki mótmælt því á neinn hátt hérna í ræðu, að eðlilegt væri að skoða þetta, en ég tel óeðlilegt, eins og ég reyndar tók fram, að fram komi till. um það á meðan ráðh. er að láta gera athugun á þessu á sínum vegum. Ég er algjörlega sammála því að við eigum að endurskoða kerfið. Við eigum að láta það vera sem mest í takt við tímann. Ef hægt væri að stjórna þessu á betri hátt þá væri ég innilega sammála því.
Ég vil koma að því líka að hv. 6. þm. Reykv. minntist á að þetta væri eins og átthagafjötrar á bændastéttina, sem hefðu verið lagðir á hana einhvern tíma fyrr meir. Þarna er ákaflega drjúgt til orða tekið. Ég held að þetta kerfi hafi ekki verið neinir átthagafjötrar á neinn máta, heldur var með því reynt að bæta úr því ófremdarástandi sem var á afurðasölumálum á sínum tíma. Það ætti hv. þm. líka að geta kynnt sér af spjöldum sögunnar.
Hv. þm. Guðmundur H. Garðarsson sagði að það sem hann segði hér hefði aldrei verið hugsað sem nein árás af sinni hálfu á bændur. Ég held að ég hafi hvergi tekið það fram heldur að það hafi verði árás á bændur. Ég skal lofa ykkur að heyra hvað ég sagði um það. — Og hann bætti því við að ég hefði nefnt sérstaklega Samband Ísl. samvinnufélaga í því sambandi, en hann hefði ekki minnst á það í sinni ræðu. Mér fórust orð á þennan veg: En flm. hv. Guðmundur H. Garðarsson talaði nær eingöngu um þann þátt sem snýr að bændum og samvinnufélögum þeirra. — Ég nefndi ekki Samband Ísl. samvinnufélaga þarna, en hann veit það alveg eins og ég að það eru mörg fleiri félagasamtök sem reka vinnslustöðvar landbúnaðarins, sláturhús og mjólkurbú.
Áður en ég læt þessu lokið ætla ég aðeins að koma að því sem hv. þm. Egill Jónsson sagði áðan. Hann byrjaði á því að segja að till. væri ekki lík till. sem hv. þm. Eyjólfur Konráð Jónsson hefði flutt hér fyrr á árum, enda sagði ég það heldur aldrei í minni ræðu, en ég sagði að hún væri mjög í sama anda. Ég held að ekki sé hægt að neita því að það eru vissir þættir í þessari till. sem benda í sömu átt.
Hv. þm. minntist líka á ýmislegt fleira og þar á meðal að ég hefði verið að tala um árás á bændurna. Hann var sem sé með þetta sama. Þetta er alls ekki rétt. Ég sagði það aldrei. En ég sagði: Er ekki hér, ég spyr að því, er ekki hér einu sinni enn þá á ferðinni árás á bændur og hin frjálsu félagasamtök landsmanna? — Ég sagði ekki að þetta væri árás. ég spurði hvort ekki væri hér verið að gera árás á þá. Það má segja að kannske sé óbeint sagt að gerð sé árás, en ekki vil ég segja að svo sé. (GHG: Það er ekki mál hans að ræða það.) Það er ekki mál hans að ræða það, segir hv. þm., en hann hafði margt við þetta að athuga. (GHG: Það er annað mál,) Já, og það er kannske nokkuð svipað og að gera árás á það kerfi sem nú er fyrir þessi samtök. Hv. þm. Egill Jónsson kom líka að því að bændur þyrftu að fá sitt verð greitt sem allra fyrst. Ég vil í lokin undirstrika að ég er algjörlega sammála því. Ef við getum komið því á með þeirri endurskoðun sem nú fer fram hjá Seðlabanka er það mikils virði. (EgJ: Og ýmsu fleiru.) Og ýmsu fleiru, já.
Ég sagði aldrei í mínu máli að ég væri á móti því að bændur fengju leiðréttingu á sínu kerfi. Ég hélt að þið hefðuð tekið eftir því líka að ég sagði að æskilegt væri að geta einfaldað það og koma betra lagi á það, en ég sá ekki ástæðu til þess að endilega væri um tvíverknað að ræða varðandi úttekt á þessum málum.