14.03.1984
Neðri deild: 57. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 3734 í B-deild Alþingistíðinda. (3154)

210. mál, vísitala framfærslukostnaðar

Viðskrh. (Matthías Á. Mathiesen):

Herra forseti. Fsp hv. 3. þm. Reykv. áðan til mín treysti ég mér ekki hér og nú að svara, en ég er reiðubúinn að athuga það sem kom fram í ræðu hans og vænti þess að við 2. umr. málsins geti ég svarað honum skýrt varðandi þá spurningu.