14.03.1984
Neðri deild: 57. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 3736 í B-deild Alþingistíðinda. (3157)

210. mál, vísitala framfærslukostnaðar

Viðskrh. (Matthías Á. Mathiesen):

Herra forseti. Örfá orð út af því sem hv. 3. þm. Reykv, sagði. Ég sagðist vera reiðubúinn að kanna það mál sem hann spurði mig um. Ég væri hins vegar ekki í stakk búinn til að svara því hvort mögulegt væri að gera slíkt nú og eins og hv. þm. ræddi um.

Varðandi það sem hv. 5. þm. Vestf. sagði er ég þeirrar skoðunar að eðlilegast sé að Kauplagsnefnd hafi með höndum hvernig val á sér stað, þegar slík neyslukönnun er gerð, sem er grundvöllur að framfærsluvísitölu. Í þessu frv. er gert ráð fyrir því eins og áður að Kauplagsnefnd hafi allan rétt til að haga þeim málum eins og henni finnst skynsamlegast. Þar eiga m. a. fulltrúar Alþýðusambands Íslands sæti. Og það kemur fram í grg. með frv. hvaða staðir það voru sem hafðir voru með í neyslukönnuninni 1978–1979. Hvort Kauplagsnefnd teldi rétt að fjölga þeim eða fækka verður að mínum dómi að vera hennar mál.