14.03.1984
Neðri deild: 57. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 3737 í B-deild Alþingistíðinda. (3159)

210. mál, vísitala framfærslukostnaðar

Ólafur Ragnar Grímsson:

Herra forseti. Hv. þm. Ólafur Þ. Þórðarson hefur hreyft hér mjög athyglisverðum þætti sem nauðsynlegt er að skoða nánar.

Það er alveg rétt, sem hv. þm. hefur sagt, að í þessu landi er mikill munur á kjörum fólks, bæði eftir landshlutum og ekki síður eftir þjóðfélagshópum. Þessi munur hefur aukist mjög á síðustu misserum. Ég er þeirrar skoðunar að hann sé nú orðinn svo mikill að í reynd sé tómt mál um það að tala að meðaltalskönnun á framfærslu fjölskyldna hér í landi, sem tekin er eftir almennum úrtaksaðferðum, þar sem allar fjölskyldur í landinu eru í einum og sama potti, gefi raunhæfa mynd af þeim kjörum sem í landinu eru.

Þessu til skýringar má taka mjög einfalt og þekkt dæmi úr slíkum tölfræðilegum umr. Dæmið er á þann veg, að ef í einu baðkari er sjóðandi heitt vatn og í öðru baðkarinu er ískalt vatn sé viðkomandi einstaklingi óhætt að fara í bað vegna þess að meðaltalshitinn sé í lagi. Ef hann ætlaði sér hins vegar í bað og færi ofan í sjóðandi heita baðið skaðbrenndi hann sig svo að það yrði að fara með hann á sjúkrahús.

Þannig er það alkunn regla að meðaltöl sem tekin eru úr mjög ólíku safni þjóðfélagshópa gefa í reynd ranga mynd af þeim veruleika sem við blasir.

Ég var þeirrar skoðunar, þegar unnið var að þeirri neyslukönnun sem hér er til umr., að það hefði átt að leggja mun meira á sig við að afla gagna úr öllum landshlutum. Ég lét þá skoðun í ljós á þeim tíma við þá aðila, innan þings og utan, sem að þessu verki komu. Það er hins vegar rétt að þeir sem í stjórnsýslukerfinu báru ábyrgð á framkvæmd könnunarinnar töldu það allt of mikið verk fyrir sína stofnun að stunda svo viðamikla athugun. Ég var þá þeirrar skoðunar að mótbárurnar, sérstaklega frá starfsmönnum Hagstofu Íslands, stöfuðu einfaldlega af því að Hagstofan hefði ekki aflað sér reynslu við kannanavinnubrögð af þessu tagi. Hagstofan er ein elsta gagnasöfnunarstofnunin í þessu landi og hún hefur sérþjálfað sig í gagnasöfnun þar sem fyrst og fremst er beitt öðrum aðferðum en eiga við þegar slíkar neyslukannanir eru lagðar til grundvallar. Þess vegna töldu forráðamenn Hagstofunnar og aðrir þeir sem í krafti embætta sinna komu að þessu verki þetta vera mun veigameira en ég og ýmsir aðrir, sem reynslu hafa haft af almennum atferlis- og viðhorfakönnunum í þessu þjóðfélagi og annars staðar, töldum að ætti að vera. Enn á ný kemur í ljós að þeir sem embættislega eiga að koma að slíku verki eru að mínum dómi með óeðlilegar viðbárur þegar þrýst er á um að fleiri kannanir séu gerðar og á skemmri tíma.

Ég held að það sé mikið til í því, sem hv. þm. Ólafur Þ. Þórðarson sagði áðan, að Alþingi eigi sjálft að taka af skarið í þessum efnum og skylda með lögum viðkomandi stofnanir til að framkvæma neyslukannanir sem byggðar séu á neysluferli fólks, bæði í landshlutum og einstökum samfélagshópum. Ég tel að skipting á slíku eftir landshlutum sé jafnvel ekki nægilega fíngerð skipting til að gefa rétta mynd. T. d. held ég að fólk sem býr á Akureyri eða Selfossi hafi töluvert öðruvísi neyslumunstur og útgjaldabyrði en fólk sem býr annars staðar á Norðurlandi eða í öðrum hlutum Suðurlands. Sama veit ég að gildir innan Vesturlands, Austurlands og einnig Vestfjarða.

Við vitum það, alþm., að umr. í þessu húsi snýst nánast á hverjum degi í einu eða öðru formi um kjör fólksins í landinu. Hér eru fluttar fsp. um samgöngumál, um upphitunarkostnað. Hér er rætt um láglaunabætur. Hér er rætt um skattamál. Hér er rætt um kjaramál og fjölmarga aðra þætti sem á einn eða annan hátt snerta kjör fólksins í landinu. Engu að síður er það alveg rétt, sem hv. þm. Ólafur Þ. Þórðarson benti hér á, að við höfum ekki nægilega ítarlegar né nægilega fíngerðar upplýsingar um það kjaramunstur sem ríkir í þjóðfélagi okkar. Þess vegna erum við oft eins og menn fálmandi í myrkri þegar við erum að ræða um hvaða afleiðingar hin og þessi löggjöfin hafi eða erum að rökræða mismunandi aðferðir sem mega að gagni koma hinum einstöku samfélagshópum.

Með líkum hætti tel ég að hér á höfuðborgarsvæðinu svokallaða sé nú ríkjandi miklu meiri kjaramunur en verið hefur í áraraðir, jafnvel nokkra áratugi. Alþm. og forstjórinn, þó maður nefni ekki ráðh. með sínar 80 þús. kr. á mánuði, hefur eðlilega allt öðruvísi neyslumunstur en einstætt foreldri eða láglaunamaður með 14–15 eða 16 þús. kr. Það segir sig sjálft. Umframeyðsla forstjóranna, þingmannanna, ráðuneytisstjóranna og ráðherranna skapar inni í framfærsluvísitöluna alls konar útgjaldaliði, en þúsundir launafólks hafa aldrei neinn möguleika á að veita sér það sem í þeim liðum felst.

Það eru milli 10 og 20 þús. launafólks á höfuðborgarsvæðinu sem tilheyra verkalýðsfélögum þar sem samningar um kaup og kjör gefa til kynna að kjörin séu ekki nema á bilinu 12–13 til 17–18 þús. kr. Menn geta einfaldlega gert sér í hugarlund að þegar húsaleigan er komin upp í 7–8 þús. kr., rafmagn og hiti gefur nokkrar þúsundir í viðbót og matarreikningurinn fyrir slíkt heimili nemur mörgum þúsundum króna er ekkert orðið eftir fyrir aðra útgjaldaliði sem sú framfærsluvísitala sem við erum nú að fjalla hér um hefur í sér fólgið með mjög skýrum hætti.

Ég hefði talið nauðsynlegt að sú nefnd sem um þetta frv. fjallaði hér í þinginu, bæði í Ed. og einnig í Nd., hefði kallað til sín ýmsa af þeim fræðimönnum sem eru sérfræðingar í því að gera slíkar neyslu-, atferlis- og viðhorfakannanir á skömmum tíma með alláreiðanlegum hætti. Slíkir menn eru til í þessu landi. Þeir eru prófessorar við háskólann eða starfandi við ýmsar rannsóknarstofnanir. Þeir hefðu getað veitt mjög greinargott yfirlit um það, með hvaða aðferðum væri hægt á tiltölulega skömmum tíma að fá allgóðar yfirlitsupplýsingar um neysluvenjur og þar með útgjaldamunstur hinna ýmsu þjóðfélagshópa. Ég fullyrði að þótt slíkar mælingar væru aldrei 100% nákvæmar væru þær a. m. k. nákvæmari mynd af því samfélagi sem við búum í en sú framfærsluvísitala sem við erum hér að fjalla um. Þess vegna eru það að mínum dómi fræðilega séð ekki gild rök hjá þeim embættismönnum eða fulltrúum hagsmunasamtaka sem hafa látið þau rök í ljós að ekki sé fræðilega kleift að afla á skömmum tíma nákvæmari, ítarlegri, víðtækari upplýsinga um hið fjölbreytilega útgjaldamunstur í þessu landi. Ég tel að það sé einfaldlega rangt og væri reiðubúinn til þess hér, þó Alþingi sé ekki rétti vettvangurinn til þess, að rökstyðja það ítarlega með tilvísunum í ýmiss konar rannsóknir og rannsóknaraðferðir sem hafa verið þróaðar hér og annars staðar á þessu sviði.

Ég tel þess vegna að þessi hv. deild eigi í fullri alvöru að hugleiða að breyta þessu frv. á þann veg að setja inn í það ákvæði sem skyldi hlutaðeigandi stofnanir til að hefjast nú þegar handa um rannsókn á útgjaldamunstri fólks eftir byggðarlögum og eftir ákveðnum þjóðfélagshópum. Ef hv. þm. Ólafur Þ. Þórðarson og aðrir þeir sem þessu máli hafa hreyft í umr. eru reiðubúnir að skoða það nánar er ég fyrir mitt leyti fús til að hugleiða að gerast meðflutningsmaður að brtt. í þá átt milli umr. í þessari hv. deild svo að við getum skoðað það á raunhæfan hátt að hafist verði handa um að veita þjóðinni, okkur sjálfum og öðrum, þær nákvæmu upplýsingar sem hægt er að afla — og ég undirstrika það — um hin ólíku útgjaldamunstur sem ríkjandi eru í samfélagi okkar.