14.03.1984
Neðri deild: 57. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 3739 í B-deild Alþingistíðinda. (3160)

210. mál, vísitala framfærslukostnaðar

Karvel Pálmason:

Herra forseti. Það er langt síðan hafi það þá nokkurn tíma gerst — að hv. 7. þm. Reykv. hefur flutt jafn skynsamlega ræðu og hann gerði nú. Ég hygg að ef menn hugleiði þessi mál hljóti þeir að komast að niðurstöðu um að það er æði fjölbreytt lífsmunstrið í þjóðfélaginu, bæði borið saman milli kjördæma og eins innan svæða í hverju kjördæmi. Þannig að ég tek mjög undir það sem hann sagði áðan og hefur raunar sagt áður. En ég veit ekki, hv. 7. þm. Reykv., hvort sækja eigi þessa vinnu eða fræðslu fyrst og fremst til Háskólans. Ég dreg mjög í efa að þar sé neitt rýmra eða víðara til veggja hvað varðar víðsýni í þjóðfélaginu en er í hinum ýmsu kerfum innan ríkisins á öðrum sviðum (ÓRG: Ég sagði bara að hin tæknilegu vinnubrögð væru þar fyrir hendi.) Það má vera.

En aðeins út af því sem hæstv. ráðh. sagði. Ég tel alveg fráleitt að ætla í þessu tilfelli að það verði Kauplagsnefnd sem ákvarði í hvaða landshlutum eða á hvaða svæðum slík könnun verður gerð. Það hefur sýnt sig að sú ágæta nefnd, án þess að ég ætli á nokkurn hátt að lasta hana, hefur haldið sig æði lengi við sama landssvæðið og ekkert bendir til þess að þar hafi orðið nein sérstök hugarfarsbreyting í þá átt að þar yrði frekar víkkað meira út en gert hefur verið í sambandi við t. d. næstu könnun sem gerð yrði. Þannig að ég tel að nauðsynlegt sé að festa það í lögum frá Alþingi að Kauplagsnefnd skuli gera þetta með þeim hætti sem Alþingi vill þannig að það sé á hreinu.

Ég held að ekki verði komist fram hjá því að við meðferð málsins hér í deild komi slík tillaga fram. Þá sést hverjir það eru sem áfram vilja hjakka í sama farinu með því að gera slíkar kannanir í raun og veru bara hér á höfuðborgarsvæðinu eða að láta nefnd úti í bæ ákveða það hvar það verði gert. Ég sé ekki að hæstv. ráðh. eða ríkisstj. eða þingmeirihluti hér geti neitt haft á móti því að hér verði það ákvarðað af Alþingi með hvaða hætti þetta skuli gert en ekki nefnd úti í bæ látin um það. Ég held að skynsamlegt væri að feta sig af þeirri braut, sem að mínu viti hefur allt of lengi verið farin, að láta embættismenn kerfisins ráða of miklu um með hvaða hætti á málum er tekið hverju sinni. Það væri nær fyrir hv. Alþingi a. m. k. að staldra við, helst að stíga til baka og taka sér meira af því valdi sem það á að hafa til að ákvarða framvindu mála.

Ég tek alveg undir það og veit að hv. 7. þm. Reykv., talar þar af reynslunni að embættismenn í kerfinu eru tregir í taumi. Þar veit ég að hv. 7. þm. Reykv. talar af fullkominni reynslu. Þannig að ekki er hægt að láta þá ráða ferðinni í þessu máli og raunar ekki öðrum heldur.

Að síðustu, það kom ekki í huga minn fyrr en hv. 5. þm. Vestf. nefndi það, en það hvarflar ekki að mér að ef ráðist yrði í að gera slíka láglaunahópskönnun eða láglaunaheimilakönnun, hvað sem menn vilja kalla það, yrði hún bara gerð hér á höfuðborgarsvæðinu. Ég treysti því að láti hæstv. viðskrh. verða af því að gera slíka könnun sem ég vona, nái hún til landsins alls og verði gerð á þann hátt að hún sé marktæk. Öðruvísi er ekkert gagn að þessu. Það er heldur ekkert gagn að því að gera slíkar kannanir áfram sem sýna einvörðungu lífsmunstur eða neyslumunstur hluta þegna þjóðfélagsins.

Þess vegna ítreka ég að ég vænti þess að hæstv. ráðh. verði jákvæður fyrir því að breyta frv. í það form að það verði skylda Kauplagsnefndar að gera neyslukannanir með þeim hætti að þær verði marktækar alls staðar að af landinu og það verði Alþingi sjálft sem ákvarði með hvaða hætti þær verði gerðar.