14.03.1984
Neðri deild: 57. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 3740 í B-deild Alþingistíðinda. (3162)

210. mál, vísitala framfærslukostnaðar

Kristín Halldórsdóttir:

Herra forseti. Ég skal ekki orðlengja þetta. Það er búið að fjalla hér um þær brtt. minni hl. sem ég styð. Hér hafa orðið nokkrar umr. um neyslukönnun sem vísitöluútreikningurinn byggist á. Get ég tekið undir flest það sem sagt hefur verið, einkum í sambandi við nauðsyn þess að slík könnun taki til fleiri staða utan höfuðborgarsvæðisins með eða án upphafsstafs. En ég hnýt um það sem segir í grg. með þessu frv. um samsetningu þeirra fjölskyldna sem könnunin hefur tekið til. Hér segir, með leyfi forseta:

„Sem fyrr var ákveðið, að fyrirhuguð neyslukönnun skyldi taka til launþega einna, með þessari hefðbundnu flokkun: Verkamenn, sjómenn, iðnaðarmenn, opinberir starfsmenn, verslunar- og skrifstofufólk í þjónustu einkaaðila. Iðnaðarmenn, er væru jafnframt vinnuveitendur, voru ekki hafðir með. Þátttaka var bundin við hjón með eða án barna 17 ára eða yngri á árinu 1978. Heimilisfaðir mátti ekki vera eldri en 66 ára á árinu 1978, en hins vegar voru engin aldursmörk við neðri enda aldursstigans. Aldur eiginmanns réð þannig þátttöku — eiginkona mátti vera eldri en 66 ára 1978. Skal í þessu sambandi upplýst, að hlutur heimilisföður í öflun tekna utan frá var í öllum tilvikum nema fjórum meiri en hlutur heimilismóður.“

Vantar ekki eitthvað inn í myndina? Hvar er sú fjölskylda sem hefur aðeins eina fyrirvinnu? Hvar eru einstæðu foreldrarnir? Flestir munu vera sammála um að neysluvenjur slíkra fjölskyldna séu með öðrum hætti en þeirra sem njóta beggja foreldranna, beggja fyrirvinna. Mig langar því að spyrja ráðh. álits á því hvort hér sé ekki um atriði að ræða sem taka þurfti tillit til.