14.03.1984
Neðri deild: 57. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 3763 í B-deild Alþingistíðinda. (3173)

144. mál, lánsfjárlög 1984

Guðrún Agnarsdóttir:

Herra forseti. Minni hl. fjh.og viðskn. Nd. skilar sérstöku nál. um frv. til lánsfjárlaga fyrir árið 1984. Sem fulltrúi Samtaka um kvennalista með áheyrnaraðild að n. stend ég að þessu áliti.

Til n. kom fjöldi fulltrúa og embættismanna frá ýmsum stofnunum og aðilum sem eiga hagsmuna að gæta eða standa að gerð þessa frv. Þær upplýsingar sem þeir gáfu, auk þeirra upplýsinga sem ríkisstj. sjálf gaf í yfirliti frá fjmrn. dags. 3. mars s. l., gefa til kynna að þau lánsfjárlög sem hér eru til afgreiðslu séu óraunhæf. Ekki er sýnt að það fé fáist sem ætlað var að afla á innlendum lánsfjármarkaði og á því enn sem áður að hverfa til þess gamalreynda ráðs að slá stórfelld erlend lán. Gengur þar hver í annars spor í troðna slóð þrátt fyrir ámæli og fordæmingar á slíku athæfi. Er nema von þótt sú spurning vakni: Hver rekur eiginlega þetta land og hver mundi eiga það ef það væri gert upp fjárhagslega? Er okkur Íslendingum í raun um megn að standa sjálfir að rekstri þessa þjóðfélags sem við byggjum? Þurfum við að búa í þessu landi á þann hátt að við veðsetjum okkur í útlöndum? Getum við ekki valið okkur forgangsröð og meiri hófsemd í fjárfestingum sem leyfir okkur meira fjárhagslegt sjálfstæði? Er okkur óhjákvæmilegt að eyða um efni fram?

Það er leitt að sjá að þrátt fyrir gagnrýni núv. ríkisstj. á fjárfestingarstefnu og forgangsröðun fyrri ára þá hefur hugmyndaflug hennar og dirfska því miður reynst lítilla sanda og lítilla sæva. Og hún sækir í sama farið. Þrautatending hennar er hin sama og hinna sem á undan fóru. Þetta eru þeim mun meiri vonbrigði af því að hér gætir lítið sem ekkert þeirrar nýsköpunar í fjárfestingarmálum sem þessi stjórn boðaði. Hér er haldið áfram uppteknum hætti og hér er á ferð sama stefna og ríkt hefur undanfarna áratugi. Áherslurnar hafa lítið sem ekkert breyst frá því sem verið hefur. Því fjármagni sem er til úthlutunar er í allt of ríkum mæli varið í óarðbær eða lítt könnuð verkefni. Sömuleiðis er fjármagni, sem þegar er af skornum skammti, veitt í vafasöm gæluverkefni og dreift víða til að fullnægja skammsýnum sjónarmiðum lítilla hagsmunahópa. Á meðan er virt að vettugi heildarstefna, markviss þróun og samræmd velferð þjóðfélagsins sem heildar. Áfram þenur vindur seglin í óarðbærum framkvæmdum eins og margumræddri flugstöð og Seðlabankabyggingu, til að taka táknræn dæmi, og enn sér engan samdrátt í risnu og annarri eyðslu yfirstjórnar ríkisins. Enn er mokað fé í hið sísoltna gin stórvirkjunarframkvæmda. Á sama tíma er reynt að spara. En hvar? Jú, það eru sparaðir aurarnir meðan krónunni er eytt. Og hvar er klipið af? Jú, það er t. d. klipið af og sparað við Lánasjóð íslenskra námsmanna og líka við Framkvæmdasjóð fattaðra og Erfðafjársjóð. Húsnæðismálin eru í mesta ólestri og verður ekki séð hvernig fjármögnun þeirra verður borgið. Þar munu margir verða illa úti ef ekki verður að gert og er slík ævintýramennska óverjandi.

Þessari forgangsröðun er illt að una. Hin mikla óvissa um fjáröflun og forgangsröðun, sem útskúfar ákveðnum.hluta þjóðarinnar, er ekki viðunandi. Þessi lánsfjárlög og sú stefna sem þau byggjast á þarfnast gagngerðrar endurskoðunar. Svipuð stefna hefur einmitt átt drjúgan þátt í því að koma okkur út í það efnahagsástand sem við nú búum við og er mál að linni.

Í umr. um þetta frv. bæði í Ed. og eins hér í Nd. komu fram bæði athugasemdir og gagnrýni á þau vinnubrögð sem viðhöfð eru þegar fjallað er um fjármál ríkisins. Þessi vinna fer fram í hólfum sem eru um of aðskilin og gætir allt of lítils upplýsingastreymis milli þeirra sem málin vinna. Fer því óþarfa tími í tvíverknað við upplýsingasöfnun og undirbúningsvinnu. Er það þeim mun bagalegra þar sem málin eiga sér tímatakmörk og komast í eindaga. Gefst því allt of stuttur tími til mótandi og afgerandi vinnslu. Þetta er ekki síður slæmt þar sem fjöldi stofnana og einstaklinga úti í þjóðfélaginu bíður í ofvæni og á allt sitt undir ákvörðunum og niðurstöðum nefndarstarfa.

Ég tel að meiri sjálfsagi og virðing fyrir verkefninu, svo og réttindum samstarfsmanna mundi vanda vinnubrögðin og flýta fyrir úrvinnslu. Að lokum vil ég vara hæstv. ríkisstj. við því að vaða lengra út í skuldafenið og ráðleggja henni að hverfa frá því að fjármagna rekstur þessa lands með erlendu lánsfé. Ráðlegg ég henni miklu fremur að huga betur að forgangsröðun sinni og endurskoða forsendur þessa frv. um lánsfjárlög, þannig að þau verði raunhæfari.