14.03.1984
Neðri deild: 57. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 3765 í B-deild Alþingistíðinda. (3174)

144. mál, lánsfjárlög 1984

Kristín Halldórsdóttir:

Herra forseti. Ég ætla aðeins að gera eina grein þessa frv. að umtalsefni. Ég vil vekja athygli á lið sem óhugsandi er annað en að mótmæla harðlega. Það er 27. gr. þessa frv. til lánsfjárlaga eins og það kom frá Ed. Hún hljóðar svo, með leyfi forseta:

„Þrátt fyrir 1. lið ákvæðis til bráðabirgða í lögum nr. 72/1982, um námslán og námsstyrki, skal hlutfallstala lána af reiknaðri fjárþörf námsmanná eigi hækka í 100% fyrr en 1. janúar 1985.“

100% lán af reiknaðri fjárþörf hefur verið baráttumál námsmanna í mörg ár. Námsmenn samþykktu á sínum tíma hertar endurgreiðslur lána m. a. vegna þessa ákvæðis um 100% lán af reiknaðri fjárþörf. Nú eru liðnir tveir og hálfur mánuður síðan 100% ákvæðið gekk í gildi. Búið er að reikna námsmönnum 100% lán þrjá fyrstu mánuði ársins og nú er verið að reikna upp lánin og skuldabréf fyrir apríl og maí að verða tilbúin. Námsmenn og stjórn lánasjóðsins gátu að sjálfsögðu ekki beðið eftir því hvernig þessu frv. reiddi af. Það hefði tafið úthlutun lána fram á sumar. Auðvitað fór stjórn lánasjóðsins að lögum og mun úthluta 100% lánum til námsmanna þar til frv. það sem við nú fjöllum um verður að lögum og séð er hvernig 27. gr. þess reiðir af í meðförum þingsins. Augljóst er því að lánað verður 100% a. m. k. fram á vor.

Nú mun hér vera um afturvirkni að ræða sem þýðir að verði 27. gr. samþykkt hafa námsmenn fengið of háa úthlutun fyrri hluta þessa árs og ætti þá að taka af þeim aftur það sem umfram er. Að áliti stjórnar Lánasjóðs ísl. námsmanna er þetta nánast óframkvæmanlegt. Það virðist því augljóst ef greinin verður samþykkt að dregið verði af þeim sem hlut eiga að máli á haustmisseri og er hætt við að þá verði hagur margra bágur. Í slíkum tilfellum sem þessum er það óþolandi hringlandaháttur að fresta ákvæðum sem þegar hafa öðlast gildi og ég átel harðlega hvernig að þessum málum hefur verið staðið. Því miður lítur út fyrir að þessi aðför ríkisstj. að Lánasjóði ísl. námsmanna verði ekkert einsdæmi á þessu ári en ég ætla ekki að fara út fyrir efnið hér, tíminn leyfir það ekki, enda mun væntanlega gefast tækifæri til að ræða þau mál nánar í næsta fyrirspurnatíma á Alþingi. En ég geri það að till. minni og legg á það mikla áherslu að 27. gr. þessa frv., sem bætt var inn í í meðförum Ed., verði felld út.